Hvernig ég komst upp á þilfar veit ég ekki. Ned Land og Konsæll hafa að
líkindum hjálpað mér upp; en ég andaði að mér hreinu lofti—og það var
mér öllu öðru dýrmætara. Menn sem setið hafa í svelti um langan tíma,
verða að gæta varúðar, þegar þeir fá aftur nægan mat. En þess þurftum
við ekki. Við svelgdum loftið svo mikið sem þörfin krafði.
„Hér er gott að koma. Hér er nóg af blessuðu loftinu“, sagði Konsæll.
Ned Land, sagði ekkert, en hann gapti svo ákaflega, að það hefði gert
hvern meðalhákarl skelkaðan. Þvílík lungu! Þau sogugu og kvæstu, eins og
stærsti smiðjubelgur.
Við náðum okkur aftur furðu fljótt og ég flýtti mér að þakka félögum
mínum fyrir umönnun þeirra á mér. Ég er viss um að án þeirra aðstoðar
hefði ég ekki haldið lífinu.
Eftir nokkra töf fór Sæfarinn aftur í kaf og hélt áfram ferðinni
norðureftir. Við stefndum á suðurodda Ameríku. En hvert var ferðinni
heitið? Hvort ætlaði hann að beygja vestur fyrir Ameríku, út í
eyðivíðáttu Kyrrahafsins, eða austur í Atlantshafið, meðfram ströndum
Evrópu eða Ameríku?
Það var vafamál, sem skifti miklu.
Ég bjóst við að Númi mundi stýra í vestur og ljúka svo hringför sinni
umhverfis hnöttinn. En sú ætlun brást. Hann beygði til austurs og hélt
norður með ströndum Ameríku.
Hinn 16. dag aprílmánaðar höfðum við landsýn. Vórum við þá fjórar mílur
undan Marteinseyjum.
Ned Land fór að hyggja á flótta að nýju. En við vórum of langt frá
löndum enn sem komið var.
Við félagarnir höfðum langa samræðu um flóttaundirbúninginn. Kom þá Ned
Land fram með uppástungu, sem mér var í meira lagi um geð. Hann sagði að
nú ætti ég að fara og hitta Núma skipstjóra að máli tafarlaust, og fá að
vita fyrir víst, hvort hann ætlaði sér að halda okkur á skipinu
framvegis. Þetta þótti mér ekki hyggilega ráðið og líklegra til að
spilla ráðagerð okkar. Ég vænti einskis góðs af Núma, og taldi okkur
verða mundi vandara ráða, ef hann fengi nokkurn grun um þessa
fyrirætlun. Auk þess var Númi orðinn óvanalega einrænn og fálátur, upp
á síðkastið. Það var svo að sjá sem hann forðaðist mig, enda varð hann
sjaldan á vegi mínum. Áður var hann vanur að rannsaka með mér ýmsar
nýjungar, sem fyrir okkur bar í ríki sævarins og fræða mig um hitt og
annað. En nú var hann alveg hættur því og kom því nær aldrei inn í
salinn.
Mér var óskiljanlegt af hverju þetta stafaði. Það gat verið að honum
mislíkaði vist okkar á Sæfaranum. En ekki gat ég samt trúað honum til að
gefa okkur lausa.
Tuttugasta apríl vórum við í fjórtán hundruð metra dýpi. Mararbotninn
var ósléttur mjög og stórgrýttur. Vóru víða gjár og gjótur milli
klettanna, svo djúpar að ekki sá til botns. Á klettunum uxu afar stórir
þönglar og þarategundir ýmsar.
Við félagarnir sátum út við gluggann og athuguðum það sem fyrir augun
bar. Barst þá talið að sædýrum ýmsum, sem verða hvert öðru að bráð,
eftir stærð og færleik.
Ned Land var ekki ætíð samdóma okkur Konsæl og lagði hann lítinn trúnað
á sögur, sem sagðar eru um stóra kolkrabba.
„Ég hefi sjálfur séð kolkrabba draga stórt hafskip í kaf“, sagði Konsæll
í mestu einlægni.
„Það er svo“, sagði Ned Land. „Hvar skeði það nú?—ef ég má spyrja“.
„Í St. Maló“, svaraði Konsæll.
„Á höfninni?“ spurði Ned háðslega.
„Nei í kirkjunni“.
„Hvað á þetta að þýða?“
„Jú-ójú,—þar er málverk, sem sýnir þetta mjög greinilega“.
Þá hló Ned Land og skaut svo málinu undir minn úrskurð. Ég kannaðist við
það, að mynd þessi væri að vísu hugarburður; en því hélt ég fram, að
kolkrabbar gætu orðið afar stórvaxnir.
Vórum við að skeggræða um þetta fram og aftur og gættum ekki að hverju
fram fór, þar til Konsæll kallaði til okkar alt í einu. Varð okkur litið
út um gluggann og sáum við þá óvænta sjón. Það var skrímsl, afar stórt
og svo hræðilegt, að það hefði vel getað átt heima í kynlegustu
lygasögu.
Þetta var kolkrabbi, sjálfsagt átta metra langur. Hann synti aftur á bak
í sömu átt og Sæfarinn og jafn hratt. Hann hafði átta anga alsetta
sogskálum og var hver um sig tvöfalt lengri en skrokkurinn. Goggurinn
var afar stór og sterklegur og svipaður arnarnefi í lögun. Hann skifti
litum í sífellu, var ýmist stálgrár eða móbrúnn.
Fyrir tilviljun höfðum við rekist á eina af þessum skepnum, sem við
vórum að tala um. Þótti mér bera vel í veiði og ætlaði ekki að láta
tækifærið ónotað. Tók ég því ritblý í snatri og fór að draga mynd af
dýrinu.
En brátt komu fleiri kolkrabbar í ljós. Urðu þeir sjö talsins á stuttum
tíma, stjórnborðsmegin. Þeir fylgdust með skipinu og hnitmiðuðu hraðann
svo nákvæmlega við ferð skipsins, eins og væru þeir fastir við það.
Hefði vel mátt draga mynd af þeim með því móti, að líma gagnsæjan pappír
á rúðuna og gera merkilínur á hann. Að vísu skreið Sæfarinn heldur hægt.
Í einni svipan stöðvaðist skipið og varð af harður kippur, svo gnast í
öllum samskeytum.
„Höfum við rekist á sker?“ spurði ég.
„Hvort sem það er eða ekki, þá erum við á floti enn“, svaraði Ned Land.
Sæfarinn var á floti.—Það var satt. En hann lá kyr. Að vörmu spori kom
Númi inn og næstráðandi með honum.
Ég hafði ekki séð hann áður jafn svipþungan og nú. Hann heilsaði
ekki,—hefir ef til vill ekki tekið eftir okkur—en gekk rakleiðis að
glugganum, athugaði kolkrabbana um stund og sagði svo nokkur orð við
næstráðandann.
Næstráðandi fór þegar út. Nokkru síðar var gluggunum lokað og rafljósið
tendrað.
Ég gekk til Núma.
„Laglegt kolkrabbasafn þetta“, sagði ég.
„Já, hr. náttúrufræðingur“, svaraði hann, „og við verðum að berjast við
þá“.
„Berjast“, át ég eftir. Mér var ekki ljóst hvað Númi átti við.
„Já, ég ímynda mér að eitt af þessum dýrum hafi gripið um skrúfuspaðana
og haldi þeim föstum. Þess vegna komumst við ekki áfram“.
„Hvað er við því að gera?“
„Við verðum að fara upp að yfirborðinu og ráðast á þá með vopnum og
bareflum“.
„Og skutli, ef þér viljið þyggja lið af mér“, sagði Ned Land.
„Það þygg ég gjarna“, svaraði Númi.
Að svo mæltu fórum við til stigans, sem farið var eftir upp á þiljur.
Þar vóru fyrir tíu menn vopnaðir. Höfðu sumir íshögg og barefli af ýmsu
tagi. Við Konsæll fengum okkur sitt höggvopnið hvor, en Ned Land hafði
skutulinn.
Sæfarinn fór upp að yfirborðinu. Skipverji einn, sem efstur stóð í
stiganum fór að losa um skrúfurnar, sem þiljuhlerunum var fest með. En
áður hann fengi lokið því verki, var hlerunum svift upp af afli miklu.
Kolkrabbi einn hafði sogið sig fastan við hlerann og tekið svo snögt
viðbragð.
Rétt í sömu svipan kom angi og fálmaði niður um hleragatið. Númi var
fljótur til og hjó í sundur angann svo hann valt niður stigann og
engdist viðbjóðslega á gólfinu.
Skipverjar ruddust fast og sóttu upp stigann. Komu þá niður tveir angar,
vöfðust utan um einn hásetann og sveifluðu honum upp um hleragatið.
Númi hljóðaði upp yfir sig og rann upp stigann eins og kólfi væri
skotið. Við hinir fórum þegar á hæla honum.
Kolkrabbinn hélt manninum hátt upp og kramdi hann með sogskálunum.
Maðurinn braust um af megni og kallaði á hjálp, en gat engri vörn við
komið.
Númi sótti þegar að dýrinu og hjó af því einn angann. Næstráðandi átti í
höggi við annan kolkrabba, sem hafði sogið sig fastan við skipið. Gengu
skipverjar vel fram og drógu ekki af sér. Við Konsæll beittum íshöggunum
en Ned Land skutlinum. Lögðum við vopnunum hvað eftir annað á kaf í
grænleitar þjósir skrímslanna. Lagði af þeim megnan óþef, ekki óáþekkur
moskuslykt.
Ég hélt um eitt skeið að manninum væri borgið. Þá var búið að höggva af
dýrinu alla angana nema þann, sem hélt manninum. En þá sendi dýrið yfir
okkur voðamikla gusu af svörtum legi, sem blindaði okkur alveg í
svipinn. Þegar við gátum neytt augnanna aftur var það horfið í djúpið
með manninn.
Eftir þetta sóttum við að ófreskjunum hálfu ákafar en áður. Höfðu dýrin
þá læst sig á skipið tíu eða tólf saman, bæði á súðirnar og þilfarið.
Varð skipið á svipstundu atað blóði og svörtum legi, en afhögnir limir
engdust eins og höggormar til og frá um þilfarið. Ned Land beitti
skutlinum af miklu kappi og hiltist til að leggja dýrin í augun. Þá
vildi svo til að kolkrabbi sló einum anganum á hann, svo hann féll
fyrir.
Ég skundaði til og ætlaði að hjálpa Ned Land, en Númi varð fyrri til.
Keyrði hann höggvopnið upp í ginið á dýrinu og var þá Ned borgið. Spratt
hann á fætur og tvíhenti skutulinn á dýrið svo stóð í hjarta.
Þessi bardagi stóð yfir í einn stundarfjórðung, og fanst okkur það þó
ærið langur tími. Fór svo að lokum að kolkrabbarnir fóru á flótta, þeir
sem svo vóru færir. Vóru flestir illa útleiknir, særðir og sundurtættir.
Númi var allur ataður blóði eftir viðureignina. Stóð hann lengi á
þilfarinu og horfði út á hafið, sem lukti nú yfir einn af félögum hans,
og hrundu honum tár af augum.
Eftir það sá ég ekki Núma í nokkra daga. Hann lokaði sig inni í klefa
sínum og var ekki mönnum sinnandi.
Sæfarinn sveimaði til og frá um þessar sömu slóðir þá dagana. Loks
héldum við áfram ferðinni norðureftir og nálguðumst strendur
Norður-Ameríku. En við fórum langt frá landi og veður vóru hörð um
þessar mundir, þó það bitnaði lítið á okkur.
Dag einn kom Ned Land inn til mín.
„Þetta verður að hafa einhvern enda“, sagði hann. „Númi stýrir nú í
norður. Ég er búinn að fá nóg af Suðurskautinu og ætla ekki að vera með
til Norðurskautsins“.
„Hvað eigum við að gera, Ned Land?“
„Þér verðið að tala við skipstjórann. Að öðrum kosti ætla ég að gera
það. Við nálgumst Ameríku,—erum komnir í námunda við Kanada, ættland
mitt. Ég vil komast héðan hvað sem það kostar“.
Ned Land var þrotin þolinmæðin. Hann gat ekki unað þessari æfi lengur.
Ég var líka orðinn annars hugar, en ég var fyrir sjö mánuðum. Allan
þennan tíma hafði ég verið einangraður frá viðskiftum við aðra menn og
vissi ekki hverju fram fór í heiminum. Númi var orðinn gjörbreyttur.
Áður var hann mér til ánægju og aðstoðar í rannsóknum mínum, en nú var
því með öllu lokið.
Það þurfti flæmskan mann, eins og Konsæl, til að una svona æfi til
lengdar.
„Þér viljið þá að ég spyrji hann, hvað hann ætlar sér fyrir með okkur?“
sagði ég.
„Já“.
„En ég hitti hann sjaldan. Hann forðast að verða á vegi mínum“.
„Því meiri ástæða er til að reyna að komast að einhverri niðurstöðu í
þessu“.
„Ég skal reyna, Ned“.
„Hve nær?“
„Þegar ég hitti hann“.
„Viljið þér að ég nái í hann?“
„Nei, látið mig einan um það. Á morgun . . . .“
„Nei, í dag“, sagði Ned með áherzlu.
„Þá það. Ég skal finna hann í dag“.
Ned Land fór út, og ég einsetti mér að koma þessari fyrirætlan í
framkvæmd þegar í stað.
Ég gekk að skipstjóraklefanum og hleraði. Númi var inni. Ég barði að
dyrum.—Enginn anzaði. Ég barði aftur og lauk svo upp hurðinni. Númi var
þar og laut fram yfir skrifborðið. Hann hafði að líkindum ekki heyrt til
mín. Þegar ég gekk til hans, rétti hann úr sér og leit við mér
reiðulega.
„Hvað viljið þér?“ spurði hann.
„Mig langar að tala við yður nokkur orð“.
„Ég er vant við látinn; ég er að vinna“.
Þetta vóru ekki glæsilegar viðtökur, en ég hugsaði mér að gefast ekki
upp fyr en í fulla hnefana.
„Það er mikilsvarðandi málefni, sem ég ber fyrir brjósti, hr.
skipstjóri“.
„Það er svo“, svaraði Númi háðslega. „Hafið þér dottið ofan á eitthvert
hugvitsráð? Eða hafið þér komist að einhverju leyndarmáli í ríki
hafsins, sem mér er ókunnugt?“
Ég var í vafa um, hvernig ég ætti að hefja máls á erindinu. En áður ég
fengi sagt nokkuð tók Númi aftur til máls og benti um leið á
handritabunka, sem lá á borðinu fyrir framan hann:
„Hérna eru ritverk mín. Í þeim er öllu lýst, sem fyrir mig hefir borið á
sæferðum, það sem snertir náttúru hafsins og þeirra dýra, sem það
byggja. Ég held þeim áfram væntanlega langan tíma enn og bæti mörgu við.
Ég ætla líka að skrifa æfisögu mína“.
Númi hallaði sér aftur í stólnum og horfði í heim fram stundarkorn. Ég
lagði við hlustirnar.—Ætlaði hann að fara að segja mér æfisögu sína?
„Það var í indverska stríðinu“, sagði hann. „Þá var ég ungur; þá átti ég
fagrar vonir; þá gat ég borið traust til mannanna.
Ojá,—ekki var ég þó gamall, þegar gremja og hrygð fóru að sverfa að
mér. Ég hafði lengi horft á þjóð mína þjakaða og hrakta. Alt stóð í
stað, sem til umbóta mátti horfa, en heimska og sérdrægni sátu á
valdastóli. Margra alda menning okkar var fótum troðin og alþýða manna
kúguð. Sérdrægir og óhófsgjarnir valdhafar læstu klónum í þjóðina og
sugu úr henni blóð og merg. En hefndin kom—hlaut að koma. Það var ég,
sem fyrstur hóf merkið og fylkti þjóð minni til orustu gegn kúgun og
ófrelsi. En það var að eins hefndin,—endaslepp hefnd!“
Númi stóð upp og gekk um gólf í ákafa. Það fór hrollur um mig, þegar ég
hugsaði til þess hve Indverjum hafði blætt meðan uppreisnin stóð yfir.
Hve margar þúsundir þeirra höfðu verið myrtar og svívirtar á allan hátt,
svo flestum mentuðum þjóðum ofbauð. Og þessi maður, Númi skipstjóri, var
þá indverski konungssonurinn, sem stýrði uppreisninni.
Númi staðnæmdist fyrir framan mig.
„Það varð alt árangurslaust“, sagði hann með skjálfandi rómi. „Og hvar
er sú þjóð stödd, sem fargað hefir frelsi sínu. Hún er svift öllum
skilyrðum fyrir því að vera þjóð og geta tekið eðlilegum framförum!
Kúgun er verri en dauði. Það er réttur og skylda hvers manns að fórna
lífi sínu fyrir frelsið.—En ranglætið er réttinum yfirsterkara“.
Númi þagnaði og settist aftur á stólinn. Ég reyndi að tengja saman það
sem honum var nú ríkast í hug og það, sem mér bjó í brjósti.
„Þegar þessum handritum yðar er lokið,—hvað verður þá um þau?“
„Þau verða látin í lokað hylki, sem ekki getur sokkið og sá maður, sem
lengst lifir á skipinu fleygir því í sjóinn“.
„Það væri mjög undir tilviljun lagt“, sagði ég, „og ekki gott að vita í
hvaða höndum það lenti. Þér gætuð ráðstafað því á tryggilegri hátt. Ef
þér létuð mig fá það og . . . . . . . “.
„Það geri ég aldrei“, svaraði Númi.
„Ef þér létuð okkur lausa“, bætti ég við.
„Léti ykkur lausa!“
„Já, það er um það, sem ég ætlaði að tala við yður“, svaraði ég. „Nú
erum við búnir að vera hérna á skipinu í sjö mánuði. Ég og félagar mínir
verða að fá að vita, hvort það er ætlun yðar að halda okkur hér á
skipinu framvegis“.
„Hr. Aronnax, ég hefi sagt yður það fyrir sjö mánuðum, að hver sem kemur
á Sæfarann, verður að vera þar upp frá því“.
„Það er þá blátt áfram þrælkun“.
„Kallið það hvað sem yður þóknast“.
„En þrælnum er þó heimilt að taka sér frelsi, ef hann getur“.
„Hefi ég bannað yður það? Held ég yður í fjötrum?“
Númi stóð með krosslagðar hendur og hvesti á mig augun.
„Hr. skipstjóri“, sagði ég. „Þér hafið vakið hjá okkur hlýjan hug til
yðar. Við höfum orðið hrifnir af snilli yðar og hughreysti. Þér hafið
bannað okkur að auðsýna yður þá samhygð, sem alt háleitt og fagurt
skapar í brjóstum manna. Þér hafið valdið fáleikum milli okkar, sem
gerir okkur lífið gleðisnautt. Þér talið um frelsi. Þér hafið barist
fyrir frelsi, og hafið öðlast að sjálfur, en neitið okkur um það. Hvað
haldið þér að verði úr þessu? Ég hefi með höndum vísindalegar
rannsóknir, sem ég get unan við nokkurn tíma enn. En hvað haldið þér að
verði úr félaga mínum, Ned Land? Hann hlýtur að leggja hatur á yður“.
Númi stóð upp úr sæti sínu.
„Mér stendur svo hjartanlega á sama hvað Ned Land hugsar eða ályktar“,
sagði Númi. „Ég gerði það ekki að gamni mínu að taka ykkur á skipið.
Þetta er í fyrsta sinn, sem þér talið við mig um þetta mál, hr.
prófessor, það verður líka að vera í síðasta sinn“.
Ég fór út úr klefanum í þungu skapi og skýrði félögum mínum frá því, sem
okkur Núma fór á milli.
„Nú vitum við hvað í vændum er“, sagði Ned Land. „Við verðum að flýja,
hve nær sem færi gefst“.