Klukkan sex morguninn eftir fórum við að búa okkur til burtferðar. Var
þá hin langa heimskautsnótt að færast yfir og orðið hálfrökkvað.
Stjörnur vóru að koma í ljós á himninum og skein hið fagra
stjörnumerki, „Suðurkrossinn“ skærast á miðju hálofti.
Vindkulið var helkalt og 30 stiga frost á mælinum. Rekaísinn varð
þéttari og þéttari og milli jakanna var að myndast dökkleitur
lagnaðarís. Eftir lítinn tíma hlaut sjórinn að vera allagður og engin
leið að komast að heimskautslandinu.
Sökkviklefarnir vóru fyltir og seig Sæfarinn niður í þrjú hundruð metra
dýpi. Skrúfan tók að snúast og skipið rann af stað í norðurátt. Um
kvöldið vórum við komnir langa vegu inn undir hafþökin.
Ég eyddi tímanum við lestur, því gluggarnir á salnum vóru byrgðir að
utan. Var það gert til að fyrirbyggja að ísjakar rækjust í þá. En oft
dvaldi hugur minn við þessa viðburðaríku heimskautsför og alt sem á
dagana hafði drifið þessa fimm mánuði, sem við vórum búnir að vera
neðansjávar. Við vórum búnir að fara sjö þúsund mílur og sjá margt afar
merkilegt og fágætt. Ég hafði grætt mikinn og margvíslegan fróðleik á
þessari ferð. Vakandi og sofandi sökti ég mér niður í nýstárlegar og
furðulegar rannsóknir, sem hafið gaf mér tilefni til að stunda.
Klukkan þrjú um nóttina vaknaði ég við snöggan kipp. Ég þaut upp í
rúminu, horfði út í myrkrið og hlustaði, vissi ég þá ekki fyr til en ég
fleygðist úr rúminu fram á mitt gólf. Sæfarinn hlaut að hafa rekist á
eitthvað og hrokkið afturábak.
Ég klæddi mig í snatri og skreiddist meðfram þilinu inn í aðalsalinn.
Þar var bjart inni. Ýms húsgögn lágu þar á víð og dreif um gólfið, en
til allrar hamingju vóru dýrustu myndastytturnar og borðin, með merkustu
gersemunum svo vel fest, að þau hafði ekki sakað. Veggmyndirnar á
bakborða héngu langt út frá þiljunum að neðanverðu. Sæfarinn lá á
stjórnborðshlið og hreyfðist ekki heldur en jarðfastur klettur.
Framan úr skipinu var að heyra þrusk mikið og mannamál. Ég ætlaði að
fara út úr salnum, en þá komu þeir Konsæll og Ned Land í flasið á mér.
„Hvað er um að vera?“ spurði ég.
„Ég ætlaði einmitt að fara að spyrja húsbóndann að því sama“, svaraði
Konsæll.
„Það fór eins og mig grunaði“, sagði Ned Land. „Sæfarinn hefir rent upp
á grynningar og liggur svo illa sem hugsast getur“.
„Vitið þið hvort við erum ofansjávar?“ spurði ég.
„Nei“, svaraði Konsæll.
„Við skulum fara og vita hvers við verðum vísari!“
Ég skundaði þangað sem þrýstimælirinn var, og varð ekki lítið forviða
þegar ég sá að við vórum staddir á þrjú hundruð og sextíu metra dýpi.
„Hvernig í ósköpunum stendur á þessu!“ varð mér að orði.
„Við skulum fara og spyrja skipstjórann“, sagði Konsæll.
„Það er nú svo, en hvar er skipstjórinn?“ spurði Ned Land.
„Komið þið með mér!“
Við fórum út úr salnum og inn í bókasafnsklefann. Hann var mannlaus.
Datt mér þá í hug að Númi mundi náttúrlega vera við stýrið. Við kusum
heldur að bíða en fara þangað og snérum því aftur inn í salinn.
Ned Land brann í skinninu. Ég lofaði honum að rausa og geysa, eins og
hann vildi og svaraði engu. Ég sat og hlustaði stundarkorn þangað til
Númi alt í einu vatt sér inn úr dyrunum. Það var óvanalegur asi á honum
og lét sem hann sæi okkur ekki, en fór að athuga þrýstimælirinn og
áttavitann. Þegar hann var búinn að því, snéri ég mér að honum og spurði
hvað fyrir hefði komið.
„Óhappa slys“, svaraði hann.
„Eru mikil brögð að því?“
„Um það er ekki full vissa fengin enn“.
„Hefir skipið laskast?“
„Já“.
„Hvernig vildi það til“.
„Því valda ófyrirsjáanleg atvik. Jafnvægislögmálið fylgir sínum kreddum
og má ekki fyrir því gera“.
Ég skildi ekki enn hvað hann fór.
„Hver eru þau óhappaatvik, sem þér talið um?“ spurði ég.
Númi mælti: „Þegar straumar mæða lengi á stórum fjalljökum, þá eyðast
þeir að neðan, eins fer ef þeir berast út í hlýjan sjó, þá bráðnar utan
af þeim hlutanum sem í kafi er. Fer þá svo að lokum að þeir steypast
kollhnýs. Það er svona atvik, sem við höfum orðið fyrir nú. Fjalljaki
hefur kolloltið og lent á skipshliðinni annari. Skipið hefir hrokkið
fyrir, byltst til og orðið ofan á nokkrum hluta jakans.“
„Mætti ekki létta skipið með því að tæma sökkviklefana?“ spurði ég.
„Það er einmitt verið að því núna“, svaraði skipstjórinn. „Sæfarinn er
að lyftast upp, eins og þið sjáið á þrýstimælinum. En jakinn lyftist
líka að sama skapi, svo við erum engu nær fyr en ef svo vill til, að
hann rekst á eitthvað“.
Það fór eins og Númi hafði sagt. Áttum við nú á hættu að jakinn bærist
með skipinu upp undir fastaísinn og molaði það þar.
Þegar þessu hafði farið fram um hríð, kom alt í einu önnur hreyfing á
Sæfarann. Hann var að rétta við. Veggmyndirnar lögðust smátt og smátt að
þilunum. Við stóðum þegjandi og biðum þess sem verða vildi. Liðu svo tíu
mínútur. Þá var Sæfarinn kominn á réttan kjöl.
„Við erum á réttum kili“, sagði ég.
Númi samsinti því og gekk á dyr.
„En erum við á floti?“ spurði ég.
„Það hlýtur að vera“, svaraði skipstjórinn. „Það er verið að létta á
sökkviklefunum og Sæfarinn er því á uppgaungu“.
Rétt eftir að Númi var farinn út stöðvaðist skipið. Var það hyggilegt af
Núma að láta ekki berast hærra upp, því ella gátum við átt á hættu að
rekast upp undir fastaísinn. En það varð hann að forðast.
„Er okkur borgið?“ spurði Konsæll.
„Já“, svaraði ég. „Lánið var með okkur í þetta sinn og mátti ekki miklu
muna, að við yrðum innibyrgðir og köfnuðum í loftleysi.“
„Það er nú svo“, sagði Ned Land.
Í þessu var hlerunum skotið frá gluggunum og lagði inn birtu utan að.
Sæfarinn var á floti. En í tíu metra fjarlægð frá báðum borðum vóru
þverhníptir, gljáandi ísveggir, sömuleiðis fyrir ofan skipið og neðan.
Jakinn sem við flúðum undan hafði rekist á fastaísinn og við vórum
komnir inn í geil eða göng, þrjátíu metra á hæð og breidd. Var nú ekki
annað fyrir en komast út úr göngunum, aftur á bak eða áfram, síga nokkur
hundruð metra niður í djúpið og halda svo ferðinni áfram.
Ljósið í salnum var slökt, en inn um gluggana lagði svo sterka birtu, að
full-ljóst var eftir sem áður. Birta þessi stafaði frá ljóskerum
Sæfarans, en magnaðist margfaldlega af geislabrotinu í ísnum. Hver
ójafna, sprunga og nibba í ísnum ljómaði í ótal litbrygðum eins og
kristalsgler væri. Það var eins og við værum staddir í afarstórum helli,
alsettum bláum, rauðum og grænum gimsteinum, sem skáru í augun af
ljósmagni og litbrygðum.
Þessi sjón var svo fögur og tíguleg að Ned Land varð hrifinn af henni,
hvað þá við hinir. En á þessu varð skjót breyting. Konsæll hljóðaði upp
yfir sig og við tókum ósjálfrátt höndunum fyrir augun.
Sæfarinn var lagður af stað og skreið hratt. Öll þessi ógnamergð
ljósgeisla og lita var komin á hreifingu. Var því líkast sem dynjandi
eldregn flýgi fyrir gluggann, og stungu geislarnir augun eins og
nálaroddar.
Hlerunum var skotið fyrir gluggana og gátum við þá tekið hendurnar frá
augunum, en sviðatilkenning höfðum við í sjáaldrinu lengi á eftir.
Klukkan fimm um morguninn urðum við varir við snöggan kipp. Gátum við
þess til, að framstafn skipsins hefði rekist í ísnibbu, og mundi það
hæglega geta sneitt fyrir hana. En brátt varð ég þess var, að skipið
skreið aftur á bak.
„Við förum aftur á bak!“ sagði Konsæll.
„Já“, svaraði ég. „Göngin hafa verið byrgð í þennan endann. Við verðum
að leita útgöngu annarsstaðar“.
Ég var í mikilli geðshræringu, en reyndi að dylja hana fyrir félögum
mínum. Mér eirði ekki að sitja lengur. Ég fór inn í bókaklefann, þaðan
inn í salinn og svo inn í bókaklefann aftur, tók bók og fór að blaða í
henni, en las ekki stakt orð.
Konsæll kom inn til mín.
„Er það skemtileg bók, sem húsbóndinn er að lesa núna?“ spurði hann.
„Já, mjög skemtileg“, svaraði ég.
„Mér datt það í hug. Það er víst 'Um leyndardóma undirdjúpanna'“.
Bókin mín! Ég skelti aftur bókinni og gekk inn í salinn.
Ég beið með óþreyju þess sem verða vildi og var alt af annað veifið að
athuga mælingaverkfærin. Á þrýstimælinum sá ég að við vórum alt af í
þrjú hundruð metra dýpi, og áttavitinn sýndi að við héldum í suður; en
skriðstikan mældi 5 sæmílna hraða á klukkustundinni. Það var hratt farið
í svo þröngum farvegi. En Númi skipstjóri varð að hafa hraðann á, því
hver mínúta var dýrmæt.
Þegar klukkan var gengin tuttugu og fimm mínútur í níu, rakst skipið á
að nýju. Og nú var það skuturinn sem mætti fyrirstöðunni.
Ég fölnaði af ótta, og förunautar mínir spruttu upp og staðnæmdust hjá
mér. Ég tók í höndina á Konsæl.
Í sömu svifum kom Númi skipstjóri inn úr dyrunum.
„Við erum innibyrgðir“, sagði hann.
Mér varð litið framan í Núma. Hann var að sjá jafn skaprór og hann átti
vanda til. Hann staðnæmdist á miðju gólfinu, brá handleggjunum í kross á
brjóstinu og var hugsi um hríð.
Sæfarinn hreyfðist ekki.
Loks tók Númi til máls, jafn stillilega og vant var:
„Það verður líklega út úr, að við köfnum hérna“.
„Er þéttiloftið komið að þrotum?“ spurði ég.
„Við höfum enn nægilegt loft í fjörutíu og átta klukkustundir“.
„Er engin von um að fram úr rakni fyrir okkur, fyrir þann tíma?“
„Við verðum að reyna að brjótast gegnum ísinn. Sæfarinn er nú að
leggjast á botninn á þessum göngum. Svo sendi ég nokkra menn út til að
grenslast eftir hve ísinn er þykkur og hvar tiltækilegast muni að leita
útgöngu“.
Að svo mæltu fór Númi. Sæfarinn seig niður á við hægt og hægt og náði
loks botni á þrjú hundruð og fimmtíu metra dýpi.
„Við erum í miklum vanda staddir“, sagði ég.
„Svo er víst“, svaraði Ned Land, „og er nú sízt tími til ill-lynda og
nöldurs. Ég get beitt íshöggi engu síður en skutli, og vil nú bjóða Núma
skipstjóra liðveizlu mína“.
Við fylgdum Núma þangað, sem skipverjar vóru að fara í kafarafötin. Boði
hans var vel tekið, og sá ég ekki að hann væri seinni að búa sig, en
hver hinna.
Meðan þessu fór fram, hafði hlerunum verið skotið frá gluggunum á
salnum. Gátum við Konsæll því séð, hverju fram fór umhverfis skipið. Að
vörmu spori komu tíu menn út úr skipinu og gengu út á ísinn. Mátti sjá
hvar þeir fóru, Númi skipstjóri og Ned Land, því þeir vóru öðrum miklu
meiri á vöxt.
Áður byrjað væri að brjóta ísinn, var hann kannaður rækilega með löngum
ísnöfrum. Fyrst var borað í hliðarstálin til beggja handa, og náði
nafarinn 15 metra inn í ísinn, en komst þó ekki í gegn. Þótti þá
vonlaust, að reyna frekar í þá átt. Þá var borað niður í botninn. Þar
reyndist ísinn að vera tíu metra þykkur. Var nú ekki annað fyrir, en
höggva þar gat á ísinn, svo stórt, að Sæfarinn kæmist niður um það. En
til þess að það gæti tekist, varð að höggva upp sex þúsund og fimm
hundruð teningsmetra af ís.
Var nú umsvifalaust tekið að brjóta ísinn. Númi markaði fyrir um svo
stóran blett, sem svaraði ummáli skipsins. Þegar farið var að höggva
ísinn, kom í ljós einkennilegt fyrirbrygði, sem varð mikill hægðarauki
við vinnuna. Klakaflísarnar, sem losnuðu, vóru léttari en vatnið, og
leituðu því upp á við jafnharðan og staðnæmdust upp við ísþekjuna í
göngum þessum. Varð hún því að sama skapi þykkari, sem gólfið varð
þynnra.
Eftir tvær klukkustundir kom Ned Land inn í salinn aftur, og var þá
all-dasaður orðinn. Tók þá við nýr flokkur manna af hinum, og vórum við
Konsæll í þeirra hóp. Þeim flokki stýrði næstráðandi skipsins.
Mér þótti sjórinn kaldur fyrst í stað, en mér hitnaði brátt af erfiðinu.
Var mér þó furðu hægt um hreyfingar allar, þrátt fyrir þrjátíu
loftþyngda þrýsting, sem hvíldi á okkur.
Þegar ég kom inn í skipið aftur, að liðnum tveim stundum, til að hvílast
og matast, fann ég talsverðan mun á því, hve loftið í skipinu var verra
en það loft, sem við höfðum andað að okkur við vinnuna. Í herbergjum
skipsins hafði ekki verið skift um loft í fjörutíu og átta
klukkustundir, og var það því orðið talsvert mengað af kolsýru.
Fór svo fram um tólf stundir, að flokkarnir skiftust á um að brjóta
ísinn. Var þá dældin orðin einn meter á dýpt. Með sama áframhaldi þurfti
enn að vinna í fimm nætur og fjóra daga, til þess að ljúka verkinu.
Fimm nætur og fjóra daga! Það vóru illar horfur. Og nú áttum við ekki
meira loft eftir en svo, að vart mundi endast í tvo sólarhringa.
„Já, og ekki nóg með það“, sagði Ned Land, þegar ég hafði orð á þessu
við hann, „þó við höfum af að komast niður úr ísnum, erum við engu
bættari, fyr en við komumst út úr ísnum og náum lofti í auðum sjó“.
Ástæður okkar vóru óneitanlega slæmar, en við vórum samhuga um það
allir, að duga eftir mætti fram á síðustu stund.
Um nóttina var dældin enn dýpkuð um einn meter. En þegar ég byrjaði að
vinna morguninn eftir, veitti ég því eftirtekt, að ísgeilin, sem við
vórum í, var að þrengjast. Hliðarnar færðust nær. Ennþá einn háskinn á
ferðinni! Það var ekki um að villast, sjórinn umhverfis okkur var að
frjósa, og hlaut sá endir á því að verða, að frostið kreisti Sæfarann
saman í heljargreipum sínum.
Þegar ég kom inn í skipið aftur, vakti ég máls á þessu við Núma
skipstjóra. En kjarkur þessa manns var óbilandi.
„Ég veit það“, sagði hann. „En við því er ekki annað að gera, en vinna
hraðar en frostið,—verða á undan því“.
Þann dag vann ég marga tíma af mesta kappi. Vinnan hélt við hugrekki
mínu, og svo var annað, sem hvatti mig til vinnunnar. Loftið í Sæfaranum
var orðið æði þungt og þrungið af óheilnæmi, en við vinnuna höfðum við
hreint loft, sem tekið var úr loftforða skipsins og látið í lofthylkin,
sem við bárum á bakinu.
Um kvöldið vórum við enn komnir einum meter dýpra. En loftið í Sæfaranum
var nú orðið svo fult af kolsýru, að Númi varð að opna einn
þéttiloftsklefann og hleypa hreinu lofti út í skipið.
Daginn eftir tók ég til starfa að nýju. Var nú ísinn kominn svo nærri
til beggja hliða og að ofan, að mér duldist ekki að hann mundi læsa sig
utan um skipið áður en við gætum bjargað því. Ég var að því kominn að
láta hugfallast. Til hvers var að strita lengur, fyrst svo átti að fara
hvort sem var, að þetta steingerða vatn kreisti úr okkur lífið! Það var
því líkast sem óargadýr væri að leggja skoltana utan um okkur.
Í sama bili gekk Númi hjá mér. Ég benti með hendinni á ísinn. Á
stjórnborða hafði ísinn þokast nær um fjóra metra. Númi skildi hvað ég
átti við og benti mér að koma með sér. Snérum við inn í skipið aftur,
fórum úr kafarafötunum og gengum inn í aðalsalinn.
„Við verðum að finna eitthvert úrræði, prófessor góður; ella er úti um
okkur“.
„Já, en hvað á það að vera?“
„Ég vildi að Sæfarinn væri sterkari en ísinn!“ sagði Númi. „Þá mundi
hann geta sprengt ísinn, eins og ís sprengir stein, og við þyrftum
ekkert fyrir að hafa“.
„Nei færum við að reyna það, þá yrði Sæfarinn að járnklessu“.
„Já, satt er það. Við verðum að hamla frostinu að ná okkur. Það er ekki
einungis til hliðanna, sem ísinn færist nær, heldur einnig til beggja
enda“.
„Hve mikið loft er eftir?“
„Ekki meira en svo, að leyfarnar þrjóta í fyrramálið“, svaraði Númi
dræmt og leit til mín.
Mér spratt kaldur sviti í enni. Var þó þetta engin nýjung, því ég vissi
vel að svona hlaut að fara. Nú vóru liðnir fimm sólarhringar síðan
hreint loft var tekið seinast.
Ég leit á Núma og sá að hann var annars hugar. Það var að sjá sem honum
hefði hugkvæmst eitthvað, sem hann var að velta fyrir sér.
Eftir nokkra þögn mælti Númi; „Það er ekki mikill sjór umhverfis okkur.
Ef heitu vatni væri dælt út úr skipinu, ætti það að geta hamlað upp á
móti frostinu“.
„Það ættum við að reyna“.
„Komið þér með mér“.
Númi fór með mig inn í matreiðsluklefann. Þar vóru stór og margvísleg
eimingaráhöld, sem höfð vóru til að ná neyzluvatni úr sjónum. Eimíkerin
vóru fylt vatni og hleypt gegnum þau sterkum rafmagnsstraumi. Hitnaði þá
vatnið svo að segja á augabragði og mátti þegar í stað dæla því út
sjóðheitu.
Að liðnum þrem stundum sýndi mælirinn utan á skipinu sex stiga frost.
Það var einu stigi minna en þegar tilraunin byrjaði. Enn liðu tvær
stundir, og var þá frostið ekki orðið meira en fjögur stig.
Þegar leið á nóttina var frostið orðið að eins eitt stig. Hærra var ekki
unt að komast. En þetta dugði, því saltvatn þarf tveggja stiga kulda til
að frjósa. Var því nú afstýrt að við frysum inni á þennan hátt.
Að kvöldi hins næsta dags var búið að höggva svo mikinn ís, að þróin var
orðin sex metra djúp. Þá vóru eftir fjórir metrar,—sama sem fjörutíu og
átta klukkustunda vinna.
Loftið í skipinu varð nú ekki endurnýjað oftar. Það sem til var af
óspiltu lofti, varð að treina handa þeim, sem unnu að klakahögginu.
Loftið var því nær banvænt orðið.
Ég varð altekinn af þróttleysi og doða, sem ætlaði að gera út af við
mig. Klukkan þrjú um daginn elnaði ógleði mín og sóttu á mig geispar svo
tíðir og langir, að við sjálft lá að kjálkarnir gengju úr eðlilegum
skorðum. Því næst kom yfir mig doðamók, svo nærri lá að ég misti
meðvitundina. En ég átti hauk í horni þar sem Konsæll var. Hann hélt í
höndina á mér og reyndi á allan hátt að hughreysta mig og var hann þó
jafn illa haldinn og ég.
Þegar svona var orðið ástatt í skipinu má geta nærri að við urðum fegnir
að komast út til vinnunnar. Okkur stóð á sama þó verkið væri erfitt, þó
við yrðum yfirkomnir af þreytu. Við gátum dregið andann meðan stóð á
vinnunni, og það var aðalatriðið.
Þegar þessi dagur var á enda vóru eftir að eins tveir metrar milli lífs
og dauða. En loftið var á förum.
Það var óttaleg nótt sem í hönd fór, og næsti dagur þó enn verri. Ég
kvaldist af höfuðverk og svima og reikaði eins og drukkinn maður, þegar
ég stóð upp.
En Númi skipstjóri lét ekki hugfallast af stritinu og þrautunum, sem
hann átti sömu hlutdeild í og við.
Hann einn réði betur fram úr vandræðunum en við allir hinir. Hann afréð
að gera tilraun til að bjarga okkur á auðveldari hátt en íshöggið var.
Þróin sem búið var að höggva, var á stærð við Sæfarann að innanmáli og í
botninum var ísinn að eins einn meter á þykt. Númi lét nú bora göt
gegnum ísinn til og frá. Að því loknu skipaði hann að lyfta Sæfaranum
þaðan sem hann lá og sökkva honum niður í þróna. Þegar skipverjar vóru
komnir inn í skipið, var hlerunum lokað vandlega og vatni hleypt inn í
sökkviklefana. Klefarnir rúmuðu eitt hundrað teningsmetra af sjó. Við
það varð skipið tvö þúsund tíufjórðungavættum þyngra en áður.
Við biðum óþreyjufullir úrslitanna.
Þrátt fyrir suðið í eyrum mér, heyrði ég glögt ísinn bresta undan
kjölnum á Sæfaranum. Alt í einu brast hann allur sundur með braki miklu,
og skipið sökk eins og steinn í djúpið.
„Við erum komnir niður úr“, sagði Konsæll.
Ég kom ekki upp orði, en tók í höndina á Konsæl fast og alúðlega.
Sæfarinn féll eins og steinn í lausu lofti, sökum vatnsþyngslanna, sem í
honum vóru.
Dælurnar vóru settar af stað á augabragði til að þrýsta út sjónum úr
skipinu. Dró því brátt úr fallhraðanum og eftir stutta stund mátti sjá á
þrýstimælinum að skipið var farið að leita upp á við aftur. Var nú vélin
sett af stað og haldið áfram norðureftir með fylsta hraða.
En nú var eftir að vita hve langt var norður úr ísnum. Lengur en einn
dag enn var óhugsandi að nokkur maður í skipinu héldi lífi.
Ég var hættur að vita hvað tímanum leið. Ég vissi það eitt, að ég var
kominn fram í andarslitrin og hlaut að deyja.
Skyndilega lifnaði yfir mér aftur og ég teigaði að mér hreint loft.
Vórum við komnir út úr ísnum og upp á yfirborðið?
Nei, ekki var því að heilsa. En Ned Land og Konsæll höfðu fundið ögn af
lofti í einu kafarahylkinu og létu mig anda því að mér, í stað þess að
neyta þess sjálfir.
Ég ætlaði að ýta því frá mér, en þeir héldu á mér höndunum meðan ég var
að svelgja hreina loftið.
Mér varð litið á klukkuna. Hún var ellefu. Það var liðið nær hádegi,
hinn 28. marz. Ég fann að skipið hristist ákaft af átökum vélarinnar.
Eftir þrýstimælinum að dæma vórum við ekki nema tuttugu fet fyrir neðan
yfirborð sjávar. Ísinn var orðinn tiltölulega þunnur og ekki óhugsandi
að takast mætti að brjótast upp úr honum. Að minsta kosti ætlaði Númi að
gera tilraun til þess. Sæfarinn lagðist skáhallur, svo stafninn vissi
upp á móti ísnum. Til að ná þeirri aðstöðu þurfti ekki annað en fylla
sökkviklefa aftur í skipinu. Svo rann hann undir ísinn og beitti
stáltrjónunni. Gekk svo um hríð og brotnaði ísinn að mun í hverri
atrennu. Loks rann hann í gegnum ísinn og upp á skörina, sem þegar
brast undan þunga skipsins.
Þiljuhlerunum var hrundið upp í einni svipan og hreint loft lagði niður
í skipið.