Þegar komið var norður undir Long-Island, breytti Sæfarinn stefnu og
stýrði í landsuður. Ned Land varð óður og uppvægur, en við þessu máttum
við ekki gera. Við fórum þvert yfir Atlantshafið á skömmum tíma. Fengum
við landsýn af Írlandi og Englandi og stefndum inn í Ermarsund.
Við flutum í yfirborðinu hinn 1. júní. Ég var staddur í aðalsalnum; kom
þá svo mikill hvellur, að ég þaut upp á þilfar til að grenslast eftir
hvað um væri að vera. Ned Land og Konsæll vóru komnir þangað á undan
mér.
„Hvaða hvellur var þetta?“ spurði ég.
„Fallbyssuskot“, svaraði Ned Land og benti á skip, í svo sem mílu
fjarlægð, sem stefndi á okkur.
„Þetta er herskip, það þori ég að veðja um“, sagði Ned Land.
„Það vildi ég að hamingjan gæfi að það kæmi og gæti skotið í kaf þennan
bölvaðan Sæfara“.
„Hverrar þjóðar er skipið?“ spurði ég.
Ned Land hleypti brúnum og hvesti sjónina af fremsta megni. „Ég get ekki
sagt um það, það hefir ekki uppi fána. En eftir reiðanum að dæma er
þetta herskip“.
Við stóðum í stundarfjórðung og athuguðum skipið. Það færðist nær smátt
og smátt. En ekki var unt að segja með vissu, hvort það hafði tekið
eftir Sæfaranum; því síður hvort menn þar höfðu rétta hugmynd um eðli
hans.
Eftir nokkra stund fullyrti Ned Land, að þetta væri bryndreki með
vígtrjónu og þrennum þilförum. Þykkan kolamökk lagði upp um reykháfinn.
Ekki dró það fána á stöng og ekki var unt að sjá litina í toppveifunni.
„Komi það einum mílufjórðungi nær, þá steypi ég mér í sjóinn“, sagði Ned
Land. „Ég ræð ykkur til að fylgja mér eftir“.
Ég ætlaði að svara þessu, en þá gaus hvítur reykjarmökkur út úr
framstafni skipsins og þungur hlutur skall á sjónum skamt fyrir aftan
Sæfarann, svo gusurnar gengu hátt í loft upp. Rétt á eftir heyrðist
snarpur hvellur.
„Þeir skjóta á okkur!“ kallaði ég.
„Þetta eru menn að mínu skapi“, sagði Ned Land.
„Með leyfi húsbóndans . . . . . . já já“, sagði Konsæll og hristi af sér
sjóinn, sem ný kúla jós yfir hann. „Ég ætlaði að fara að segja, að nú
þættust þeir vera að skjóta á náhvelið alræmda“.
„Þeim ætti að vera vorkunnarlaust að sjá okkur“, sagði ég.
„Það hafa þeir gert að líkindum“, svaraði Ned Land.
Mér flaug nýtt í hug. Nú var að líkindum orðið lýðum kunnugt, hvers
eðlis þetta náhveli var. Eftir viðureignina við „Abraham Línkoln“ hafði
Farragút komist að raun um, að þetta var neðansjávarskip, miklu
hættulegra en nokkurt yfirnáttúrlegt sjóskrímsl og nú vóru skip á sveimi
um öll höf, til að reyna að eyðileggja þessa morðvél.
Og Sæfarinn var sannkölluð morðvél, þegar Númi beitti honum í hefnda
skyni, og var full ástæða til að halda, að hann gerði það. Það hafði
hann gert í Indlandshafinu kvöldið góða, þegar við vórum lokaðir inni í
klefanum. Af þeirri ástæðu hafði hásetinn sem særðist á höfðinu, látið
lífið. Að minsta kosti mæltu allar líkur með því. Það var deginum
ljósara að á þessu skipi, sem nú var í nánd, átti Númi ramma óvini, sem
ekki hlífðu okkur og sem Númi mundi við engu hlífa.
Skothríðin jókst ákaft; en kúlurnar lentu í sjónum og hittu ekki
Sæfarann. Okkur furðaði á því að Númi kom ekki upp. Var þó skothriðin
orðin allhættuleg Sæfaranum, því herskipið var komið mjög nærri okkur.
„Við verðum eitthvað til bragðs að taka“, sagði Ned Land. „Ég geri
vísbendingu. Ættu þeir þá að geta skilið, að hér er við heiðursmenn að
eiga“.
Ned Land tók upp vasaklút og ætlaði að veifa honum. En í sama vetfangi
var honum slengt flötum á þilfarið, af afli miklu.
„Afhrakið yðar!“ þrumaði skipstjórinn. „Þér eigið skilið að ég bindi
yður framan á stafnfleyginn, áður en ég kaffæri þetta skip“.
Á sama augnabliki skall kúla á þilfarinu, en hrökk af járninu langt út í
sjó. Skipstjórinn ypti öxlum.
„Það er ykkur sjálfum verst“, heyrði ég hann segja.
Svo vék hann sér að okkur og sagði:
„Viðureignin er hafin, herrar mínir. Farið þið niður!“
„Ætlið þér að greiða atlögu?“ spurði ég.
Númi kinkaði kolli til samþykkis.
„Gerið það ekki“, sagði ég í bænarrómi.
„Fyrir tilviljun hafið þér orðið margs vísari“, sagði hann. „Farið þér
niður“.
Við áttum ekki annars úrkosti en hlýða skipstjóranum. Áður en ég fór
niður sá ég nokkra skipverja skipa sér um Núma og horfðu þeir á skipið
með reiðulegum svip og látbragði; en kúlurnar dundu á Sæfaranum og
umhverfis hann.
Þegar ég var kominn niður í klefann minn fór Sæfarinn af stað og skreið
út úr skotmáli. En það fór eins og mig grunaði, að herskipið elti hann.
Þegar klukkan var orðin fjögur um daginn eirði ég ekki kyrsetunni
lengur. Ég fór út í miðskipsganginn. Hlerarnir vóru opnir og ég hætti
mér upp á þilfar. Númi var að ganga um gólf á þilfarinu og gaf gætur að
herskipinu annað veifið. Það var nú í einnar mílu fjarlægð og leit út
fyrir að Númi væri á báðum áttum, hvort hann ætti að granda því eða
ekki. Ég gerði enn eina tilraun til að miðla málum. En ekki var ég fyr
búinn að opna munninn en Númi kom rakleitt til mín og staðnæmdist fyrir
framan mig. Svipur hans var svo breyttur, sem væri hann orðinn ári eldri
en að morgni þessa dags. Hatur og heift skein úr augum hans, þegar hann
tók til máls.
„Rétturinn er á mína hlið. Þarna er kúgarinn, hann sem hefir svift mig
öllu sem ég elskaði: Föðurlandi og frændum, konu og börnum. Ég hata
hann!“
Ég leit í síðasta sinn til herskipsins feiga, sem sótti nú svo ákaft
eftir Sæfaranum, og fór svo niður til félaga minna.
„Við skulum flýja héðan!“ sagði ég.
„Hvaða skip er þetta?“ spurði Ned Land.
„Ég veit það ekki. En hitt er víst, að það verður sokkið niður á
mararbotn áður þessi dagur er allur. Og af tvennu illu er betra að
farast með því, en taka hér þátt í hryðjuverki, sem við vitum ekki
hversu réttmætt er“.
„Ég er á sama máli“, sagði Ned Land. „En við verðum víst að bíða með það
til næturinnar“.
Leið svo af dagurinn og nóttin færðist yfir. Alt var með kyrð og spekt á
Sæfaranum. Hann hélt áfram með jöfnum hraða, alt af í sömu átt, og
ruggaði þægilega í öldufallinu.
Við ráðgerðum að flýja þegar herskipið væri komið svo nærri, að við
gætum látið heyra eða sjá til okkar. Tungl var í fyllingu og glaðbjart
úti. Gerði það okkur hægra fyrir að flýja. Lítil líkindi vóru til þess,
að við gætum varið herskipið fyrir áhlaupi Sæfarans, þó við kæmumst út
á það. En við ætluðum að gera alt sem í okkar valdi stóð, til að koma í
veg fyrir manntjón. Hvað eftir annað héldum við að stundin væri komin.
Sæfarinn lét herskipið komast mjög nærri, en fór þá jafnan undan aftur.
Liðu svo nokkrar klukkustundir af nóttinni, að ekkert bar til tíðinda.
Við biðum albúnir að grípa hvert tækifæri, sem byðist. Ned Land ætlaði
að fleygja sér í sjóinn, en ég fékk hann ofan af því. Ég gerði ráð
fyrir, að Sæfarinn yrði ofansjávar, þegar hann réði á herskipið og þá
mundi okkur helzt verða undankomu auðið.
Klukkan þrjú um nóttina fór ég upp á þilfar. Númi stóð þar enn og horfði
stöðugt á herskipið.
Kyrð og friður hvíldi yfir náttúrunni. Himininn var heiður og hafið
spegilslétt. Herskipið fór eftir ljósinu á Sæfaranum og var nú tæp hálf
míla á milli skipanna. Ég sá ljóskerið á frammastrinu og
hliðarljósin,—grænt og rautt. Á herskipinu var kynt svo ákaft undir
kötlunum, að eldbjarma lagði upp um reykháfinn og brá birtu á reiðann.
Fylgdi því ákaflega þykkur reykur og neistaflug.
Ég stóð á þilfarinu þangað til klukkan fimm um morguninn. Skipið
nálgaðist óðum. Hóf það skothríðina á ný, þegar fór að birta af degi.
Næstráðandi kom nú upp á þilfar og nokkrir menn með honum. Tóku þeir upp
handriðið, sem var utan með þilfarinu. Turninum sem ljóskerið var í, var
hleypt niður í skipið. Sömuleiðis þeim, sem var yfir stýrishjólinu og
byrgt yfir opin vandlega. Var þá skipið orðið alveg ójöfnulaust að utan.
Ég fór niður í aðalsalinn. Það var farið að birta. Morgunroðinn brotnaði
í bárugjálpinu og sendi öðru hvoru rauðann bjarma inn um gluggann til
okkar. Þetta var 2. júní,—dagur sem mér líður aldrei úr minni. Sæfarinn
hægði skriðinn. Þóttist ég nú vita að stundin væri komin. Skothríðin
jókst ákaft. Kúlurnar ristu sjóinn svo hvein við.
„Nú skulum við leggja af stað!“ sagði ég.
Við gengum gegnum bókasafnsklefann og út í ganginn; en þegar við komum
að stiganum var hlerunum skelt aftur. Ned Land ætlaði að ryðjast á
hlerann og hrynda honum upp, en ég aftraði honum frá því. Ég heyrði hvin
neðan úr skipinu, sem ég kannaðist vel við. Það var verið að fylla
sökkviklefana, og Sæfarinn seig nokkra metra niður í sjóinn. Við urðum
of seinir fyrir! Sæfarinn fór í kaf til þess að leggja að skipinu sem
næst kjölnum, því þar var það ekki brynvarið. Við vórum inniluktir að
nýju, og neyddir til að vera sjónarvottar að þeim ægilega hildarleik,
sem nú var fyrir hendi. Ég skundaði inn í klefann minn aftur. Ég varð
alveg utan við mig,—vissi ekki í þennan heim né annan um stund og hefði
víst hvorki heyrt né skilið, þó annarhvor félaga minna hefði talað til
mín. Sæfarinn herti skriðinn. Hugsanir mínar og eftirtekt beindust allar
að því, að athuga hreyfingar skipsins og atferli. Sæfarinn nötraði fyrir
átökum válarinnar og ég bjóst við árekstri þá og þegar. Aldrei hefi ég
lifað jafn kvíðvænlega og hryllilega stund eins og þessa.
Ég rak upp hljóð, ósjálfrátt! Ég varð var við kipp, tiltölulega hægan
þó. Ég heyrði að stáltrjóna Sæfarans murði í sundur tré og járn og hvað
sem fyrir varð. Sæfarinn gekk í gegnum skipið, eins og saumnál í gegn um
klæði. Ég spratt upp í otboði og þaut inn í aðalsalinn. Númi var þar
fyrir. Í sömu andránni var hlerunum skotið frá gluggunum og ljósin slökt
í salnum. Mér varð ósjálfrátt litið út um gluggann. Ég sá eitthvert
dökkleitt ferlíki vera að sökkva, svo sem tíu metra frá Sæfaranum. Á því
var stór glompa, sem sjórinn beljaði inn um með miklum hávaða. Svo komu
raðir af súðgluggum og fallbyssuopum og síðast blasti við þilfarið
alskipað lifandi verum, sem börðust við dauðann. Gagntekinn af skelfingu
skundaði ég aftur inn í herbergi mitt.