Við vórum komnir út í Atlantshaf.
Ned Land var inni hjá mér. Við höfðum enga tilraun getað gert til að
flýja á leiðinni gegnum Miðjarðarhafið. Nú sat hann þarna brúnaygldur og
beit á jaxlinn.
„Það er engin ástæða til að láta hugfallast“, sagði ég. „Nú förum við
upp að Portúgalsströndum. Frakkland og England eru skamt á burtu. Ég
trúi ekki öðru en færi gefist eftir nokkra daga“.
Ned Land leit á mig og opnaði munninn.
„Það verður að gerast í kvöld“, sagði hann.
Mér hnykti við. Ég hafði satt að segja ekki búist við svo skjótri
breyting á högum mínum. Mér varð orðfátt í svipinn.
„Í kvöld verðum við örfáar mílur undan landi“, sagði Ned Land. „Nóttin
er dimm og vindur stendur á land. Þér hafið heitið að láta ekki standa á
yður, hr. prófessor“.
Ég svaraði engu.
„Klukkan níu!“ sagði hann ennfremur. „Þá er Númi inni í klefa sínum og
skipverjar geta ekki heyrt til okkar. Í bátnum eru árar, mastur og segl.
Ég hefi fengið mér skrúflykil, mátulegan fyrir skrúfurnar sem báturinn
er festur með. Alt er til taks. Konsæll verður með mér, þegar ég fer að
losa bátinn, en þér bíðið í bókaklefanum þangað til ég gef yður
vísbendingu“.
Ned Land gekk út, og beið ekki eftir að ég svaraði. Og þegar á alt var
litið,—hverju átti ég að svara? Það var rétt sem hann sagði, við urðum
að nota tækifærið. Við gátum verið komnir langt út í haf daginn eftir.
Ég hélt til í herberginu mínu það sem eftir var dagsins. Ég var í svo
mikilli geðshræringu, að ég var hræddur um að Númi veitti því eftirtekt,
ef hann sæi mig. Tilfinningar mínar voru tvískiftar: Ég hlakkaði til að
verða aftur frjáls maður og komast til vina og vandamanna. En mér
leiddist að skilja við hið mikla furðuverk mannlegrar snildar, Sæfarann,
og vera ekki hálfnaður með vísindaleg störf og rannsóknir sem ég hafði
með höndum. Það var ljóti dagurinn. Ýmist hugleiddi ég alla þá ánægju,
sem ég nyti þegar ég kæmi á land, eða ég óskaði með sjálfum mér að
eitthvað kæmi fyrir, sem hindraði Ned Land að fremja fyrirætlun sína.
Miðdagsmatinn át ég ekki fyr en kl. var orðin sjö. Þá vóru einir 2 tímar
eftir! Óþreyjan ætlaði að gera út af við mig. Ég gat ekki setið kyr, en
varð að fara að ganga um gólf. Mér datt í hug að alt gæti komist upp
áður en við kæmumst burt frá skipinu. Og svo yrðum við dregnir fyrir
Núma skipstjóra, sem yrði stórreiður, eða það sem verra var, hryggur
yfir því, að ég skyldi bregðast honum. Ég fékk ákafan hjartslátt.
Ég gekk inn í salinn til að sjá enn einu sinni herbergið, sem ég hafði
lifað í svo margar ánægjustundir og drukkið af bikar vísindanna, og
virða fyrir mér í síðasta sinn öll þau furðuverk, sem þar vóru geymd.
Klukkan sló átta.
Ég leit á skipstjórnaráhöldin. Áttavitinn sýndi að við héldum áfram
norðureftir, með fram ströndinni. Hraðinn var ekki mikill og djúpstaða
skipsins var 10 faðmar. Alt þetta var svo hentugt sem orðið gat fyrir
fyrirætlun okkar.
Svo snéri ég aftur inn í herbergið mitt, fór í hlýjan fatnað, tók saman
skjöl mín öll og annað sem ég þurfti að hafa meðferðis. Svo var ég
ferðbúinn.
Þegar klukkan var að verða níu, lagði ég eyrað við hurðina á
skipstjóraklefanum og hleraði, en varð einskis var. Ég yfirgaf herbergið
mitt og fór inn í salinn. Þar var hálfbjart og enginn maður inni.
Ég opnaði dyrnar að bókaklefanum, þar var jafn draugalegt. Ég
staðnæmdist við hurðina sem lá að miðskips-ganginum og beið þar eftir
vísbendingu frá Ned Land.
Alt var kyrt og hljótt. Snúningshnykkir vélarinnar var eina hljóðið sem
heyrðist. En meðan ég stóð þarna og hlustaði, urðu þeir smátt og smátt
strjálli og hægari og hættu loks með öllu.
Hvað var nú á seyði? Dauðaþögn var alt umhverfis. Blóðið suðaði fyrir
eyrum mér eins og ég væri með hitasótt.
Ég varð var við dálítinn kipp, sem ég kannaðist við. Sæfarinn var að
leggjast á mararbotninn, en engin vísbending kom frá Ned Land.
Alt í einu opnaðist hurðin að salnum og Númi skipstjóri kom inn.
„Þér eruð þá hérna“, sagði hann, „ég hefi verið að leita að yður
alstaðar. Eruð þér kunnugur sögu Spánverja?“
Ég var svo ruglaður, að ég mundi ekki í svipinn eitt orð úr sögu
Spánar. Að eins örfá nöfn flugu mér í hug: Philip—númer eitthvað og
Karl—Karl fimti. En það var víst ekki þetta, sem skipstjórinn átti við.
Ég heyrði hann endurtaka spurninguna, og gerði nú mitt ítrasta til, að
koma fyrir mig orði.
„Ég er mjög illa að mér í henni“ svaraði ég.
Númi ypti öxlum og settist niður. Ég settist líka, eins og ósjálfrátt.
„Þá skal ég segja yður dálitla sögu“, sagði Númi. „Lúðvík 14. konungur
yðar gerði sonarson sinn að konungi á Spáni, eins og yður er kunnugt um.
Lúðvík lét alt eftir sér, sem hann gat. Spánverjum mátti líka standa
nokkurn veginn á sama hvort þeim var illa stjórnað af frönskum prins eða
austurrískum, enda létu þeir svo búið standa. En Holland, Austurríki,
England og Þýzkaland bundust samtökum til að koma honum frá völdum og
setja í stað hans erkihertoga frá Austurríki.
Spánverjar höfðu hægt um sig. Það var það eina sem þeir gátu gert.
Filippus gerði slíkt hið sama. Hann gerði það eina sem í valdi hans
stóð, en það var að senda til Ameríku eftir peningum. Síðari hluta
ársins 1702 stefndu nokkur skip, hlaðin gulli, að ströndum Spánar. Þeim
fylgdi franskur herfloti undir forustu Chateau-Renards. Þeim var ætlað
að lenda í Kadiz; en sú borg var þá í hervörzlum enskra skipa.
Chateau-Renard fór þá vestur með landi og inn í Vióflóann við
útnorðurströnd Spánar. Þar ætlaði hann að koma gullinu á land. En þá
risu borgararnir í Kadiz upp öndverðir og andmæltu því. Þeir áttu
einkarétt á að afferma öll skip, sem komu frá amerísku nýlendunum, og
héldu nú fast á þessum rétti sínum. Filippus var gunga og þorði ekki
annað en gera að vilja þeirra. Flotinn lá í Vióflóanum þangað til enskur
floti, miklu stærri, kom og réði á hann 22. október.
Chateau-Renard varðist í lengstu lög. En þegar hann sá ekkert undanfæri
lengur kveikti hann í skipunum og þar sukku öll auðæfin í sjávardjúp“.
Ég heyrði tæplega hvað Númi sagði, og því síður að ég fylgdist með
efninu. Ég hafði allan hugann á fyrirætlun okkar félaganna, og beið
eftir því sem verða vildi.
Númi horfði á mig með háðslegu augnaráði, og reyndi ég þá að láta svo
sem ég veitti máli hans glögga athygli.
„Núna erum við staddir í Vióflóanum“, sagði hann. „Viljið þér líta á,
prófessor?“
Númi stóð upp og gekk inn í salinn. Ég fór á eftir honum. Ekki var ljós
þar inni, en gluggarnir vóru opnir og sjórinn uppljómaður kring um
skipið.
Rafljósið bar birtu langan veg yfir mararbotninn til allra hliða og
mátti glögt greina alla hluti sem nálægir voru, eins og um hádag væri, á
þurru landi. Botninn var sléttur og þakinn hvítum sandi. Skipsflök láu
til og frá og kringum þau breiður af kössum, kirnum og alls konar hlutum
öðrum. Innanum alt þetta láu dyngjur af gulli, slegnu og óslegnu, silfri
og gimsteinum. Nokkrir menn af Sæfaranum vóru að vinnu kringum skipið,
klæddir kafarabúningi. Þeir söfnuðu gulli og gimsteinum í stórar byrðar
og báru inn í Sæfarann. Fór svo fram um stund.
Mér fanst svo mikið um þessa sjón, að ég gætti í svipinn einskis annars,
en virða fyrir mér auðæfin, sem dyngt var inn í skipið.
„Skilst yður nú að ég sé auðugur?“ spurði Númi. „Svo er víst“, svaraði
ég, „en hvað getið þér gert við alt þetta fé?“
„Hvað ég geri við féð!“ át hann eftir. Svo stóð hann hugsi stundarkorn
og horfði út í sjóinn. Gremjulegt bros lék um varir hans, þegar hann tók
til máls aftur: „Þér haldið auðvitað að ég sé með öllu skilinn að
skiptum við þurlendið og þá, sem það byggja. En þegar ég nú segi yður,
að svo er ekki, þá skilst yður sjálfsagt, að ég hafi nóg við féð að
gera“.
Númi settist niður við gluggann, snéri sér að mér og tók aftur til máls:
„Ég sé að þér skiljið það, þér vitið eins vel og ég, að alt má kaupa
fyrir peninga þar efra. Það er ekki nóg að fórna lífi sínu og sinna, þó
hver einstaklingur heillar þjóðar úthelli blóði sínu fyrir
fósturjörðina,—hver hirðir um það! Hjartablóð heillar þjóðar er einskis
virði í kauphöllinni. Alt er að engu metið nema peningar, miklir
peningar!„ Númi spratt upp og krepti hnefana. “Kaupmenn, kaupmenn!“
þrumaði hann. „Dýrslega sinnaðir, samvizkulausir . . . “
Hann þagnaði alt í einu, eins og hann þættist hafa sagt meira en hann
ætlaði. Eftir stundarþögn snéri hann sér aftur að mér og var þá búinn að
ná aftur sínum vanalega svip hörku og stillingar.
„Margir eru bágstaddir þar efra og þurfa hjálpar með“, sagði hann og fór
út úr salnum.
Mér varð litið út og sá að mennirnir vóru enn að bera inn gullið. En ég
festi ekki hugann við það frekar.
Mér skildist það á því sem Númi sagði, að hann mundi hafa verið flæmdur
út úr mannfélaginu og að hann hefði lagt mikið í sölurnar fyrir
eitthvert málefni. En hvaða málefni? Og hver var hann?
Ég var alveg búinn að gleyma flóttatilraun okkar. Ég lá andvaka mestalla
nóttina og var að brjóta heilann um Núma skipstjóra.
Morguninn eftir kom Ned Land inn til mín og vakti mig. Hann staðnæmdist
fyrir innan þröskuldinn, stakk höndunum í vasana og var alt annað en hýr
á svipinn.
„Það varð lítið úr þessu, í gær“, sagði ég til að rjúfa þögnina.
„Já, skipstjóra-þrælbeinið þurfti nauðsynlega að koma út í því ég ætlaði
upp í bátinn“, svaraði Ned.
„Hann var að taka út peninga í gærkveld“, sagði ég.
Ned Land leit við mér gremjulega. Hann var ekki á því að taka gamni.
Ég sagði honum frá öllu sem ég hafði séð og heyrt, kvöldið áður. En það
hafði alls engin áhrif á hann.
„Við verðum að reyna aftur í kvöld“, sagði hann.
„Í hvaða átt höldum við núna?“ spurði ég.
„Veit það ekki“.
„Jæja, við skulum athuga það um hádegið“.
Ned Land fór aftur inn til Konsæls. Þegar ég var klæddur, fór ég inn í
salinn. Áttavitinn spáði ekki góðu. Sæfarinn stýrði í suður—landsuður.
Við snérum baki við Evrópu!
Ég beið með óþreyju eftir því, að leið skipsins yrði mörkuð á kortið.
Klukkan hálf tólf vóru sökkviklefarnir tæmdir og Sæfaranum skaut upp að
yfirborðinu. Ég flýtti mér upp á þilfar. Ned land var kominn þangað á
undan mér.
Við sáum hvergi til lands. Ekkert annað en endalausa hafbreiðuna og
nokkur segl út við sjónhringinn. Ylgja var í sjóinn og skýjafar mikið á
lofti. Það var stórviðri í aðsigi.
Ned Land náði ekki upp í nefið á sér fyrir gremju. Þegar dró frá sólu
rétt á eftir, leitaði hann landa með augunum, en varð einskis var.
Næstráðandi notaði tækifærið til að taka sólarhæðina.
Stundu síðar leit ég á kortið. Við vórum 100 mílur undan landi. Öll von
um undankomu var úti að þessu sinni.
Ned Land féll það þungt, en mér varð aftur hughægra, og fór nú að gefa
mig við rannsóknum mínum í ró og næði, eins og áður.
Númi skipstjóri kom inn til mín um kvöldið og spurði með mestu alúð,
hvort mig langaði ekki til að vera með sér á útgöngu á mararbotni.
„Þér hafið jafnan verið á þess konar ferðum að deginum. Langar yður ekki
til að fara eina ferð að næturlagi?“ sagði hann.
Ég þektist það.
„Ég skal segja yður það fyrir, að þetta verður löng og ströng ganga. Við
förum upp á hátt fjall og vegirnir eru illa ruddir hér í djúpinu“, bætti
hann við og brosti.
Ég kvaðst vera við öllu búinn. Svo fórum við niður að hafa fataskifti.
Ég þóttist vita að við ættum að vera tveir einir, því Númi hafði ekki
boðið félögum mínum að vera með í förinni.
Það gekk fljótt að koma okkur í kafarafötin. Þéttiloftshylkin vóru
bundin á bak okkur, en það leit út fyrir að þeir ætluðu að gleyma
rafljóskerunum, og hafði ég orð á því við skipstjórann.
„Við þurfum ekki á þeim að halda“, sagði hann.
Ég hélt að mér hefði misheyrst, en varð of seinn til að endurtaka
spurninguna, því Númi var þá búinn að setja upp hjálminn. Mér var
fenginn járnsleginn stafur í höndina. Að því búnu gengum við út á botn
Atlantshafsins á hundrað og fimmtíu faðma dýpi.
Klukkan var tólf um nóttina, þegar við lögðum af stað. Ljósin á
Sæfaranum lýstu okkur á veg en hurfu brátt sýnum. Vórum við þá staddir í
nyðamyrkri.
Númi benti mér á rauðleitan depil í svo sem mílu fjarlægð. Þegar lengra
dró varð hann bjartur sem eldur og bar svo mikla birtu um sjóinn, að vel
var ratljóst.
Mararbotninn var sléttur en fór hækkandi. Hallinn var þó svo lítill að
við urðum hans varla varir. Við þrömmuðum áfram jafnt og þétt og
stefndum á ljósdepilinn. Förin gekk þó heldur seint. Víða sukkum við
niður í aurbleytu eða flæktumst í þangbeðjum, og innanum þetta var krökt
af skelstönglum og hellusteinum.
Ég heyrði yfir höfði mér einskonar snark, eða smelli, sem urðu stundum
svo hvellir, að þeir líktust stöðugri skothríð. Þetta var stórfeld
rigning, sem dundi á yfirborðinu. Var þetta, með öðru fleira merki þess,
hve glögt hljóð heyrist gegnum vatn. Mér flaug í hug sem snöggvast, að
nú mundi ég verða holdvotur í rigningunni. En svo hló ég að sjálfum mér.
Ég hafði gleymt því í svipinn, að ég var staddur niðri í vatni í
vatnsheldum kafarafötum.
Eftir hálfrar stundar göngu urðu fyrir okkur klettar og urðir. Vóru
allar gjótur fullar af blikdýrum, sæfjöðrum og öðrum óþektum skeldýrum,
sem öll loguðu í maurildisglæringum, en steinarnir vóru þaktir sæurtum
og íglum. Var heldur sleipt undir fæti sumstaðar og kom mér nú stafurinn
í góðar þarfir. Þegar ég leit aftur, sá ég móta fyrir ljósinu á ljóskeri
Sæfarans, en mjög ógreinilega sökum fjarlægðarinnar.
Það vakti athygli mína, að grjóturðirnar, sem við fórum yfir, vóru
einkennilega reglulega lagaðar. Sumstaðar sá ég langar glufur eða
gjótur, sem lágu eitthvað út í myrkrið, svo hvergi sá fyrir endann á
þeim. Ég varð líka var við, að eitthvað var alt af að brotna undir
blýskónum mínum. Var brothljóðið líkast því, sem það væru þur bein. Ég
laut niður og tók um einn af þessum hlutum. Kom þá í ljós að þetta var í
raun og veru bein, og ég gat ekki betur séð en það væru mannsbein.
Ljósið sem við stefndum á, fór alt af stækkandi, eftir því sem nær dró.
Var það nú að sjá sem stórkostlegt bál, út við sjónhringinn. Ég fór nú
að verða forvitinn, en var þó við öllu búinn. Ég var búinn að sjá og
reyna svo margt furðulegt á þessum sæferðum. Skyldi vera mannabygð
þarna, hugsaði ég með sjálfum mér. Ætli skipstjórinn eigi nú ekki vini
þarna, sem hann ætlar að heimsækja, menn sem hafa verið reknir í útlegð
og fundið griðastað þarna á mararbotni, menn sem hafa verið orðnir
fullsaddir af lýgi, ranglæti og yfirdrepskap mannkynsins!
Ekki var það óhugsandi. Ég var orðinn auðtrúa eftir öll þau undur og
kraftaverk, sem ég hafði reynt af Núma skipstjóra. Það gat hugsast að
hér væri bygð borg af vitrum mönnum og hugrökkum, sem þektu tökin á
lögmálum náttúrunnar og skildu leyndardóma hennar.
Það lýsti meir og meir umhverfis okkur. Skínandi birtu lagði upp af
fjallstindi fram undan okkur, á að gizka 800 feta háum. Ég sá þó ekki
ljósið sjálft, en birtan brotnaði í sjónum og barst til allra hliða.
Ljóslindin sjálf, hver sem hún svo var, hlaut að vera hinum megin við
fjallið, því sú hliðin, sem að okkur snéri var hulin skugga, en hnúkar
og hamraskörð báru við ljóshafið hins vegar.
Númi skálmaði áfram hratt og hiklaust, yfir urðir og ógöngur og hvað sem
fyrir varð. Var auðséð, að hann hafði farið hér um áður og var kunnur
öllum leiðum. Ég fylgdi eftir hiklaust og ósmeikur. Ég dáðist að Núma og
hafði á honum tröllatrú; mér kom ekki einu sinni til hugar, að hann gæti
farið afvega.
Eftir klukkutíma göngu komum við að fjallsrótunum. Varð þar fyrir okkur
einstigi eitt mjótt og ilt yfirferðar, en ekki mátti annan veg komast
upp í fjallshlíðina. Til beggja hliða var trjáskógur mikill og
hrikalegur. Ekki vóru það lifandi lauftré sem við sáum, heldur
lauflausir og lífvana steingervingar sem mynduðu þennan mirkvið. Var
hann líkur afarstórri kolanámu, sem enn hafði ekki orðið fyrir þrýstingi
þungra jarðlaga. Trén stóðu á sterkum rótum í botninum, en kolsvartar
greinarnar gnæfðu upp í skínandi sjóinn líkt og kliptar bréfmyndir,
límdar á gluggarúðu að kvöldi dags. Gatan var gróin íglum og þara og
þakin aragrúa af skeldýrum. Við gengum ýmist eða klifruðum yfir kletta
og klungur, klofuðum yfir fallna trjástofna og tróðumst gegnum
þaraflækjur, sem fléttaðar vóru milli trjágreinanna.
Að baki okkur grilti ég klettaklungrin svört og hrikaleg, en fram undan
glóði rauður ljósbjarminn og geislastafirnir stefndu í allar áttir, með
undarlegum litbrigðum og ljósbroti. Hér og hvar losnuðu stórir steinar
undan fótum okkar, og ultu ofan brekkuna með dynkjum og skruðningi, sem
skriða félli. Til beggja handa lágu gjár og glufur kolsvartar og svo
langar, að ekki sá fyrir endann. Sumstaðar urðu fyrir okkur bjartir
gangar og greiðir stígar, eins og væru það vegir ruddir af manna
völdum. Ég bjóst við að mæta sæbúum þessum þá og þegar.
Númi hélt stöðugt áfram upp brekkuna og ég vildi ógjarna dragast aftur
úr. Kom nú stafurinn í góðar þarfir, því mjó og tæp var gatan sumstaðar,
en hengiflug að neðan. Furðu greitt gekk þó ferðin, og ekki fann ég til
lofthræðslu. Stundum hljóp ég yfir hyldýpisgjár, sem mér hefði óað við
uppi á þurlendinu, eða ég stiklaði yfir þær á völtum trjástofnum. Það
var eins og ég yrði ekki var við hættuna, svo var hugur minn gagntekinn
að hrikafegurð eyðimerkur þessarar. Á stöku stað slúttu klettarnir fram
yfir undirstöðu sína, eins og þeir væru að leika sér að því, að bjóða
jafnvægislögmálinu byrginn, og enn sá ég þar háa og hornótta steindranga
gnæfa við himininn, svo hallfleytta og mjóa að neðan, sem væru þeir með
öllu undanþegnir þyngdarlögmálinu.
Þéttleiki vatnsins olli því, að mér var ótrúlega létt um allar
hreifingar. Kafarafötin vóru ákaflega þung; ég hafði koparhjálm á höfði
og þykka blýsóla undir iljunum; þó stiklaði ég eins og steingeit upp
snarbrattar brekkur og fann ekki til þreytu eða mæði.
Að liðnum tveim stundum frá því við fórum af stað, vórum við komnir út
úr skóginum. Enn þá vóru hundrað faðmar eftir upp að fjallsgnýpunni.
Mergð af fiskum þaut upp undan fótum okkar, eins og fuglar flýgi upp úr
grasi. Hér og hvar vóru djúpar gjótur og glufur í klöppunum. Vóru þær
fullar af alls konar dýrum og ófreskiskvikindum. Urguðu þau saman klóm
og gripklumbum niðri í myrkrinu, svo ægilega, að hrollur fór um mig
allan. Verra þótti mér þó þegar langar og hrikalegar griptengur lögðust
þversum fyrir framan fætur mína, svo ég komst ekki áfram. Niðri í
myrkrinu glóðu þúsund glyrnur, eins og í eld sæi. Það vóru augu
risastórra kolkrabba og humra. Var að heyra urg og ískur eins og sargað
væri saman járnum, þegar þeir jöpluðu skoltunum. Fleira var þar ferlegra
dýra. Afarstórir krabbar hvíldu þar á bumbunni eins og fallbyssur á
stálstöplum, og biðu eftir bráð, og ægilegir smokkfiskar teygðu angana í
allar áttir eins og lifandi höggorma.
Ég hafði séð margt og reynt og þó brast mig kjark meðal þessara ferlegu
kvikinda, sem ógnuðu mér frá öllum hliðum. En Númi lét ekki þetta á sig
fá. Hann hélt áfram hiklaust og óhræddur og ég var til neyddur að fylgja
honum eftir.
Við komumst upp á stall, breiðan og víðáttumikinn, og bar mér þar enn
fyrir augu ávænt sjón. Það vóru rústir af byggingum,—verulegum
mannvirkjum. Innan um þústir og þyrpingar gat að líta hús og hallir og
háreist musteri, alt sígróið sæliljum, þönglum og þaragresi.
Hvert var það undraland, sem hér hafði sokkið í sæ fyrir árdaga allrar
sögu? Hvaða þjóð hafði átt þá fornaldarfrægð, sem hér var fallin í
gleymsku og dá og Númi skipstjóri leyfði mér einum að líta?
Mig langaði til að spyrja Núma um þetta. Það var komið að mér að svifta
hjálminum af höfði mér, til þess að geta talað. En Númi gerði ekki annað
en benda upp á fjallstindinn, eins og hann ætlaði að segja:
„Höldum áfram! lengra, lengra!“
Ég gerði mitt ítrasta til að hafa við Núma og eftir nokkra stund komumst
við upp og stóðum á fjallstindinum.
Þeim megin, sem við komum upp var fjallsgnýpan ekki nema 800 fet upp frá
jafnsléttu. En hinum megin var hafið helmingi dýpra og mændi tindurinn
tignarlega út yfir hyldýpið. Útsýn var glögg og geipivíð.
Niður undan var slétta allstór og brann þar bál ógurlega mikið. Fjall
þetta var eldfjall. Af tindinum var ekki lengra en sem svaraði sjötíu
fetum niður að afarstórum eldgýg. Upp úr honum þeyttist glóandi gjall og
hraunleðja, sem valt fram í logandi hringiðum og straumköstum, eins og
fossandi eldflóð. Þessi heljarmikli kyndill bar svo mikla birtu, að
allur mararbotninn var uppljómaður svo langt sem augað eygði.
Og þarna niður undan tindinum vóru leyfarnar af stórri borg, sem lá í
rústum á mararbotni, umturnuð og eyðilögð. Hrunin hús og musteri,
brotnir bogar og raðir af föllnum steinsúlum. Þar gat að líta leyfar af
stórkostlegri vatnsveitu, háreistu höfuðvígi, umkringdu mörgum musterum,
hafnarveggjum, sem eitt sinn höfðu staðið fyrir brimróti hafsins og
veitt vernd og skjól fjölda skipa. Enn mátti sjá löng og breið torg og
stræti og umhverfis alt þetta stóra garða af hrundum borgarmúrum.
Hvar var ég staddur og hver var þessi borg?
Ég þreif í handlegginn á Núma til að láta hann skilja, að ég yrði að fá
einhverja vitneskju um þetta.
Hann tók upp stein, sem líktist krít, gekk að hellubjargi, sem var þar
nærri og skrifaði á það að eins eitt orð—: „Atalanta“.
Það var nóg.—Mér flugu í hug gamlar grískar sagnir um borgina, sem
hafið gleypti á einni svipstundu. Munnmælasögur fornar, sem margsinnis
höfðu verið dæmdar markleysa ein.
Þetta land, sem sögurnar sögðu frá, hafði þá verið til í raun og veru,
og ég stóð nú á jörð þessa lands! Land þetta var afarstórt flæmi, vestur
af Afríku og Evrópu. Það sökk í sæ, svo að eins hæstu fjöllin stóðu upp
úr, þau sem nú eru kölluð Asoreyjar og Madeira.
Í fulla klukkustund sátum við þarna og virtum fyrir okkur þessa fágætu
sýn. Hraunflóðið magnaðist öðru hvoru og jók birtuna. Fjallið nötraði
undir fótum okkar og dunur og dynkir bárust til eyrna okkar gegnum
vatnið.
Mér datt í hug hvort ekki mundi nú einhverntíma sá dagur koma, að ný
náttúrubylting lyfti þessu landi upp aftur, og myndaði með því brú milli
Evrópu og Ameríku, og drægi fram í dagsins ljós hin stórkostlegu, mörg
þúsund ára gömlu mannvirki.
Númi skipstjóri sleit upp úr þessum hugleiðingum mínum. Hann reis á
fætur, rendi augunum í hinsta sinn yfir borgina sokknu og tók mig við
hönd sér, til marks um það, að við skyldum halda af stað.
Okkur gekk greiðlega ferðin niður fjallshlíðina. Þegar við vórum komnir
gegnum skóginn, sáum við móta fyrir ljósinu á Sæfaranum, eins og
ofurlítilli stjörnu í fjarska, og stefndum við á ljósið úr því. Þegar
við loks komum heim í Sæfarann, var farið að elda aftur og móta fyrir
dagrenning á yfirborði hafsins.