V.

Sæfarinn hélt áfram förinni. Hann rann um veglausan sægeiminn eins og

kólfi væri skotið, dag eftir dag. Ég sat lengstum í salnum við lestur og

rannsóknir. Nóg var úr að velja í bókasafni skipsins. En mest var þó

vert um hina miklu bók náttúrunnar, sem Númi skipstjóri fletti upp fyrir

mér á hverjum degi, á þann hátt að renna hlerunum frá gluggunum. Sjórinn

sjálfur og sædýraríkið var óþrotlegt rannsóknarefni fyrir mig. Ég fann

það brátt, að rit mitt „Um leyndardóma undirdjúpanna“ þurfti mikilla

umbóta við, því margt reyndist mér þar rangt eða ónákvæmt. Svo hafði ég

mörgu við að bæta, svo næsta útgáfa hlaut að verða miklum mun stærri.

Leiðin sem við fórum var mörkuð á kortið daglega, eins og Númi hafði

sagt. Ég fylgdi stefnunni með athygli, vegna rannsókna minna, því á þeim

hafði ég allan hugann og gætti naumast dagatals eða tímalengdar.

Númi stýrði gegnum Persaflóann og þaðan inn í Rauðahafið. Hann hélt

stöðugt í norðurátt og þótti mér það furðu gegna, þegar svona var langt

komið.

Lesseps var að grafa Suezskurðinn mikla um þetta leyti, en hann var ekki

kominn nærri alla leið gegnum eiðið. Hvað ætlaði skipstjórinn fyrir

sér? Ég var stöðugt að hugsa um það, því mér var farið að þykja nóg um.

Dag einn kom Númi inn í salinn og spurði ég hann þá þegar, hvert hann

ætlaði að fara.

„Hvers vegna spyrjið þér svona! Ég ætla auðvitað yfir í Miðjarðarhafið“,

svaraði hann snúðugt. „Ég býzt við að komast þangað á morgun“.

„Á morgun?“

„Já, prófessor góður. Eruð þér hissa á því?“

„Það er nú komið upp úr á mér að vísu, að falla í stafi, þó eitthvað

furðulegt beri við á skipi þessu. En—þá megið þér herða skriðinn

freklega, ef þér ætlið að sigla suður fyrir Afríku og verða kominn inn í

Miðjarðarhaf á morgun“.

„Suður fyrir Afríku, segið þér hr. prófessor!—Hvaða erindi eigum við

þangað?“

„Ég hélt að Sæfarinn væri ekki vel fallinn til að ferðast landveg. Og

komist hann ekki yfir eiðið . . . . ?“

„Þá fer hann undir það“.

„Er það fært?“

„Já, ég hefi fundið göng mikil neðansjávar, sem liggja gegnum eiðið,

djúpt í jörðu. Þau kalla ég Arabisku göngin“.

„Hvernig stóð á því að þér funduð þau?“

„Það skal ég segja yður“, svaraði skipstjórinn. „Ég hafði veitt því

eftirtekt að í Miðjarðarhafinu og Rauðahafinu vóru nokkrar fiskitegundir

af sama tagi. Kom mér þá til hugar að samband mundi vera milli hafanna.

Nú er sjávarhæðin meiri í Rauðahafinu og hlaut því að falla straumur úr

því yfir í Miðjarðarhafið. Ég gerði tilraun til að ganga úr skugga um

þetta á þann hátt, að ég veiddi nokkra fiska nálægt Suezeiðinu, festi

eirhringi við sporðinn á þeim og lét þá svo lausa. Þegar ég kom upp

undir Sýrlandsstrendur nokkrum mánuðum seinna, var ég svo heppinn að

rekast á nokkra af þessum fiskum. Ég átti nú ekki annað eftir en finna

opið á göngunum á botni Rauðahafsins, og það hepnaðist mér um síðir. Ég

hætti mér inn í göngin og komst í gegnum þau slysalaust. Síðan hefi ég

farið um þau mörgum sinnum“.

Mér þótti þessi frásaga næsta merkileg og flýtti mér að segja félögum

mínum af þessu. Konsæll komst á loft af ánægju, en Ned Land ypti öxlum.

„Neðansjávargöng“, át hann eftir; „slíkt og þvílíkt hefi ég aldrei heyrt

talað um!“

„Hafið þér heyrt talað um Sæfarann?“ spurði Konsæll. „Til er hann þó,

og hitt er engu ótrúlegra, að þessi göng séu til“.

„Já, við verðum víst að vona að svo sé“, sagði Ned, „því fljótar komumst

við inn í Miðjarðarhafið“.

Um hádegisbil daginn eftir fór Sæfarinn upp að yfirborðinu. Við

félagarnir fórum þegar upp á þilfar. Land var að sjá langt til austurs,

en ógreinilega þó, því þokuslæðingur lá yfir.

Við vórum að spjalla saman nokkra stund. En alt í einu þagnaði Ned Land

og benti út yfir hafið.

„Lítið þið á“, sagði hann.

„Ég sé ekkert“, svaraði ég. „Ég hefi ekki augun yðar“.

„Sjáið þér ekkert á hreifingu framundan á stjórnborða?“

Ég neytti sjónarinnar af fremsta megni og kom loks auga á stóra skepnu,

með langan og dökkleitan skrokk.

„Koma fyrir hvalir í Rauðahafinu?“ spurði Konsæll.

„Það ber við að þeir flækjast þangað“, svaraði ég.

Ned Land hafði ekki augun af dýrinu. „Þetta er ekki hvalur“, sagði hann.

„Ég þekki hvalina og þeir þekkja mig“.

Sæfarinn nálgaðist skepnuna óðfluga.

„Hvaða herjans dýr er þetta!“ hrópaði Ned Land. „Það hefir ekki klofinn

sporð, eins og hvalur, og önnur sundfæri þess líkjast klunnalegum

útlimum á landdýri“.

„Það er sækýr, ef húsbóndanum þóknast“, sagði Konsæll.

„Nei, það er ekki sækýr“, sagði ég. „Það er eins konar hvalur af

höfrungakyni, sem er orðinn mjög fágætur. Hann er kallaður dýkingur.“

Ned Land hafði ekki augun af hvalnum. Honum stóð alveg á sama um nafnið.

En svona hval hafði hann ekki séð áður, og brann nú í skinninu af

vígahug.

„Svona hval hefi ég aldrei drepið“, sagði hann.

Í þessum svifum kom Númi skipstjóri upp á þiljur og heyrði hvað Ned Land

sagði.

„Munduð þér vera fáanlegur til að taka upp fyrri starfa yðar, rétt í

þetta sinn?“ spurði Númi.

Ned Land þreif ósjálfrátt báðum höndum til skutulsins.

„En ég vil ráða yður til að missa ekki marks. Það getur riðið yður

sjálfum á miklu“, bætti Númi við.

Ned Land setti upp kæruleysis- og fyrirlitningarsvip, en svaraði engu.

„Eru þeir illir viðureignar, dýkingarnir?“ spurði ég.

„Já, í meira lagi“, svaraði Númi. „Það eru dæmi þess að þeir hafa ráðist

á hvalveiðamenn og hvolft bátunum undir þeim. Ég er ekki hræddur um Ned

Land, þó ég segði svona. Ég sagði það af því ég veit, að honum þykir

gott kjöt, en kjötið af dýkingnum er mesta sælgæti“.

Númi kallaði niður í skipið og komu þá 7 menn upp að vörmu spori. Þeir

losuðu bátinn og settu hann á flot. Sex menn settust undir árar en einn

fór að stýrinu. Við félagarnir þrír komum okkur fyrir í skutnum. Númi

varð eftir í Sæfaranum.

Skipverjar ýttu frá og lögðust á árarnar. Sóttist róðurinn fljótt og

vórum við komnir í námunda við hvalinn innan lítillar stundar. Þegar

fáir faðmar vóru eftir, hægðum við ferðina. Ned Land fór fram í stafninn

og stóð þar með reiddan skutulinn. Skutultaugin var ekki föst í bátnum,

eins og vanalegast er, heldur var endinn á henni festur við dufl, sem

flaut á yfirborðinu, en línan var í sjó. Mátti sjá af því hvað skutlinum

leið.

Þessi dýkingur var óvanalega stórvaxinn, ýkjulaust 10 álnir á lengd.

Hann lá í sjóskorpunni og hreyfði sig ekki, heldur en hann væri

sofandi. Mátti því komast mjög nærri honum.

Báturinn nálgaðist smátt og smátt, þangað til ekki vóru eftir nema 3

faðmar; þá vóru árarnar lagðar upp.

Ned Land stóð í stafni með reiddan skutulinn. Alt í einu heyrðist hvinur

mikill og hvarf dýkingurinn í sömu svipan. Skutullinn hafði auðsjáanlega

geigað frá beinni stefnu.

„Fari hann í sjóðbullandi!“ öskraði Ned Land í bræði sinni. „Hann slapp

undan skutlinum“.

„Ekki alveg“, sagði ég. „Hann hefir fengið skeinu talsverða, því sjórinn

er blóðlitaður“.

„Skutulinn!“ hrópaði Ned Land.

Hásetarnir þrifu árarnar og reru þangað sem duflið flaut. Þegar

skutullinn var kominn upp í bátinn var farið að elta dýkinginn.

Hann var ekki særður til muna, því hann synti hratt. Hásetarnir lögðust

á árarnar af öllum mætti. Við komumst í skotmál hvað eftir annað, og Ned

Land var að því kominn að kasta skutlinum, en þá fór dýkingurinn jafnan

í kaf, svo að við mistum hans. Þessi eltingaleikur stóð yfir í fulla

klukkustund. Ég var farinn að halda að við yrðum að hætta við svo búið,

en þá varð sú breyting á, að dýkingurinn snéri við alt í einu og kom

rakleitt á móti okkur.

Ned Land var viðbúinn að taka á móti honum.

„Varið ykkur piltar!“ sagði hann.

Stýrimaðurinn sagði nokkur orð á sínu máli, sem að líkindum þýddu

eitthvað svipað því sem Ned Land hafði sagt.

Það fór eins og við höfðum búist við, að dýkingurinn réði þegar á bátinn

og velti honum á annað borðið svo sjór féll inn. Var það snarræði

stýrimannsins að þakka, að bátnum hvolfdi ekki. Hvalurinn beit því næst

í borðstokkinn og vó bátinn á loft með kjaftinum, hvað eftir annað. Ned

Land hélt sér með annari hendi, en í hinni hafði hann skutulinn og lét

hann ganga jafnt og þétt í skrokkinn á hvalnum. Við kútveltumst hver um

annan þveran í bátnum og hefðum eflaust bráðlega hlotið meiðsl eða bana,

ef Ned Land hefði ekki tekist að leggja dýkinginn í hjartað. Hann

linaðist í átökunum, tennurnar urguðu við járnið; svo misti hann taksins

og sökk.

Duflinu skaut upp að vörmu spori og hvalnum rétt á eftir. Hann var þá

dauður. Við festum taug við sporðinn á honum, og hinum endanum við

bátinn. Svo rerum við í áttina til Sæfarans með hvalinn í eftirdragi.

Seinna um daginn átum við kjöt af honum að miðdagsverði. Var það

bragðgott og engu líkara en nautakjöti.

Daginn eftir héldum við áfram norður á bóginn, í hægðum okkar. Um

náttmálaskeið var Sæfarinn við yfirborðið og fór ég þá upp á þilfar. Mig

var farið að langa til að sjá sægöngin sem skipstjórinn hafði sagt mér

af, og fór nú að athuga hvar við værum staddir. Þoka var yfir og myrkt

af nóttu. Ég sá grylla í rauðleitt ljós í nokkurri fjarlægð.

„Fljótandi viti“, var sagt við hliðina á mér.

Það var Númi skipstjóri sem talaði.

„Þetta er vitinn í Suez“, sagði hann. „Við erum þá og þegar komnir að

göngunum“.

„Er ekki vandfarið gegnum göngin?“ spurði ég.

„Ójú, ég er vanur að vera í stýrisklefanum sjálfur og segja fyrir um

stefnuna. En nú verðum við að fara niður“.

Þegar við vórum komnir niður, var öllum hlerum lokað og búið um

vandlega. Sjór var tekinn inn í einn klefann og sökk þá Sæfarinn niður í

6 faðma dýpi.

Ég ætlaði að hverfa til herbergis míns, en Númi skipstjóri kallaði á

mig.

„Langar yður ekki til að koma með mér inn í stýrisklefann, prófessor

góður?“ spurði hann.

„Jú, ég tek mér til þakka“.

Stýrisklefinn var 3 álnir á hvern veg og lítið eitt hærri. Stýrishjólið

var í honum miðjum. Glerrúður kúptar og sterkar vóru á hverri hlið og

mátti sjá út um þær í allar áttir frá skipinu.

Ekkert ljós var þar inni. En skímu lagði inn um gluggana frá ljóskerunum

utan á skipinu. Maður stóð við stýrishjólið og hélt báðum höndum um

húnana. Hann var mikill vexti og þreklegur.

Rafmagnsþræðir láu úr klefanum niður í vélrýmið og var sá umbúnaður við

endana, að Númi gat ráðið stefnu skipsins og hraða með mestu nákvæmni.

Hann hægði þegar ferðina að miklum mun.

Ég stóð við gluggana á bakborða, og virti fyrir mér háa hamra, sem við

fórum með fram. Númi hafði ekki augun af áttavitanum. Hann sýndi

stýrimanni með bendingum hvernig hann ætti að stýra.

Þegar klukkan var 15 mínútur gengin í 11 tók skipstjórinn sjálfur

stýrið. Sáum við þá eins og hellismunna heljarstóran fram undan okkur.

Inn í hann stefndi Sæfarinn. Úti fyrir heyrðist óvanalegur hávaði og

straumur. Það var sjórinn úr Rauðahafinu, sem hallans vegna braust með

heljar afli gegnum göngin, út í Miðjarðarhafið. Sæfarinn barst með

straumnum eins og kólfi væri skotið og hafði þó vélin aftur á af öllum

mætti.

Ég var með öndina í hálsinum af undrun og aðdáun. Göngin vóru svo þröng,

að skipið straukst nærri með hliðveggjunum. Var sem eldrákir með öllum

litum regnbogans flýgju fyrir gluggana, vegna birtunnar sem lagði á

bergið frá skipinu.

Klukkan 5 mínútur yfir hálf 11 slepti Númi stýrishjólinu og snéri sér að

mér.

„Miðjarðarhafið!“ sagði hann.

Ferðin undir eyðið hafði ekki staðið yfir nema 20 mínútur.

Morguninn eftir hitti ég Ned Land og Konsæl á þilfarinu. Þeir höfðu

sofið báðir á leiðinni gegnum sægöngin og ekki haft hugmynd um hvað fram

fór.

„Þá erum við nú komnir í Miðjarðarhafið“, sagði ég.

„Ekki held ég það sé nú orðið enn“, sagði Ned Land.

„Svo er það ei að síður“, sagði ég. „Ströndin sem við sjáum móta fyrir í

suðri er Egiptaland“.

„Já, annað hvort það, eða eitthvað annað“, svaraði Ned.

„Úr því húsbóndinn segir að svo sé, þá verðið þér að trúa húsbóndanum“,

sagði Konsæll.

„Þér, Ned Land, sem hafið svo hvassa sjón, hljótið að sjá hafnarvirkin í

Port Said“, sagði ég.

Ned Land horfði þangað stundarkorn. „Jæja, það er fyrirtak“, sagði hann.

„Við erum þá í Miðjarðarhafinu í raun og veru. Heyrið þér prófessor, við

getum þá farið að ráða ráðum okkar“.

Ég vissi vel hvað Ned Land átti við, en ég lét sem ég skildi hann ekki.

„Er ekki einmitt núna tækifæri til að strjúka frá Sæfaranum?“ hélt hann

áfram.

„Það er nú hægar ort en gert“, sagði ég.

Ned Land var bráðlátur eftir frelsinu, og orðinn heldur skapstyggur upp

á síðkastið.

„Það getur nú verið“, sagði hann. „En einhver endir verður að vera á

þessu“.

Ég vissi það vel, að Ned Land átti óþolandi æfi á skipinu. Hann var

vanur sjálfræði og svaðilförum á hvalaveiðum. Það lamaði þrótt hans og

heilsu, að vera einangraður svona í iðjuleysi. En ég reyndi að draga

flóttann á langinn, því ég átti margt eftir óséð og órannsakað í

hafinu.

„Alt hefir einhvern enda“, sagði ég. „Þegar við komum í námunda við

Frakkland, England eða Norður-Ameríku, getur vel farið svo að betra færi

bjóðist, þegar minst varir“.

„Þegar við komum þangað eða þangað“ sagði Ned og ygldi brúnina. „En nú

erum við í Miðjarðarhafinu.—Er það ekki eins gott og allir hugsanlegir

staðir aðrir?“

Ned hafði rétt að mæla, svo að ekki varð á móti borið. Ég vissi ekki

hverju ég átti að svara.

„Hvað heldur Konsæll um þetta?“ spurði Ned Land.

Konsæll sagði það sannast, að hann hefði enga hugmynd gert sér um þetta.

Hann átti enga vini eða ættingja, sem þráðu hann. Hann var allur þar sem

ég var. Hans skilningur á málinu var, í fám orðum sagt, „eins og

húsbóndanum þóknaðist“.

Ég var neyddur til að fastákvarða eitthvað.

„Ég er hræddur um, að við getum ekki bygt neitt á Núma skipstjóra“,

sagði ég. „Okkur er kunnugt um leyndarmál hans og þess vegna lætur hann

okkur ekki lausa. Við verðum því að nota fyrsta færi sem gefst til að

strjúka frá Sæfaranum“.

„Það er einmitt það sem ég hefi í hyggju“, svaraði Ned.

„En fyrsta tilraunin verður að lánast“, sagði ég. „Lánist hún ekki,

verður okkar gætt svo vandlega, að færið gefst aldrei aftur. Við verðum

að fara varlega“.

„Rétt er það“, sagði Ned Land. „En gefist gott tækifæri,—ætlið þér þá

að vera tilbúinn að nota það?“

„Já“.

Ned Land hafði hugsað sér, að annaðhvort yrðum við að synda í land, ef

Sæfarinn flyti nálægt landi að nóttu til, eða við tækjum bátinn og rerum

til lands á honum. En þetta hvorttveggja var ógerlegt, eins og nú stóð

á. Sæfarinn hélt sig langt frá löndum og var lengstum í kafi; rétt eins

og skipstjórinn hefði eitthvert hugboð um ráðagerð okkar.

Einn dag sem oftar var ég sokkinn niður í rannsóknir mínar, inni í

salnum. Við vórum þá komnir suður fyrir Krít. Kom þá yfir mig svo mikill

hiti, að ég varð að losa um föt mín. Ég skildi ekki í því hvaðan sá hiti

stafaði. Við vórum staddir á 10 faðma dýpi, en þar er hitinn litlum

breytingum háður. Mér datt í hug að einhver veiki væri að leggjast á

mig. En hélt þó áfram við iðju mína; en hitinn óx og varð með öllu

óþolandi. Ég ætlaði að fara burt úr salnum, en í því kom Númi skipstjóri

inn, og gekk að hitamælinum.

„Fjörutíu og tvö stig“, sagði hann.

„Já, hvaðan sem þessi hiti stafar, þá er hann óþolandi“, sagði ég.

„Hann verður ekki meiri en við viljum vera láta“, sagði Númi.

„Þá finst mér að þér ættuð að draga úr honum“, sagði ég.

„Það get ég ekki“, sagði skipstjórinn. „En ég get siglt burt frá honum“.

„Kemur hann utan að?“ spurði ég.

„Já, skipið flýtur í sjóðheitum sjó“.

Í sömu svipan var gluggahlerunum skotið frá. Sá ég þá að sjórinn var

hvítur umhverfis Sæfarann. Alt var ein gufuólga eins og í sjóðandi hver.

Ég studdi hendinni á rúðuna, en varð að kippa henni að mér hið bráðasta,

vegna hitans.

Númi sagði að við værum í nánd við eldfjall neðansjávar, sem væri að

gjósa.

Ég leit út um gluggann. Sæfarinn lá kyr, því engin leið var að komast

lengra, vegna hitans. Sjórinn breytti lit og roðnaði smátt og smátt.

Stafaði sá litur frá síndri og ösku sem þyrlaðist í sjónum eins og ryk

í lofti. Brennisteinsfýlu megna lagði um skipið, en í nokkurri fjarlægð

brutust fram lyfrauðar logatungur, svo bjartar, að rafljós Sæfarans varð

að engu fyrir þeim.

Nú var ekki viðlit að haldast við lengur vegna hitans.

Númi skipaði að snúa við. Stundarfjórðungi síðar drógum við að okkur

svalt og hreint loft á yfirborði sjávar.

Sæfarinn (Ferðin kring um hnöttin neðansjávar) · 第 7 / 15 题