Við héldum áfram ferðinni næstu daga og stefndum í suður, eftir miðju
Atlantshafinu. Ned Land var ergilegur sem von var, því á þessum slóðum
var engin von til að við gætum komist frá skipinu. Land var hvergi í
nánd, ekki svo mikið sem eyja eða hólmi nokkurs staðar.
Við vórum þó ekki vonlausir um að Númi mundi sleppa okkur, þegar ferðin
umhverfis hnöttinn væri á enda, ef við hétum því þá við drengskap okkar,
að þegja yfir leyndarmáli hans. Mér datt í hug, hvort ég ætti að tala
við Núma og stinga upp á þessu við hann. Það var að líkindum
þýðingarlaust. Númi var svo oft búinn að láta það á sér heyra, að vegna
þessa leyndarmáls væri hann til neyddur að halda okkur á skipinu áfram.
Ég færði þetta í tal við Konsæl, en hann var engu ráðnari í því en ég,
hvað gera skyldi. Okkur kom þó saman um það, að vekja ekki tortrygð Núma
með því að brjóta upp á þessu við hann, það mundi verða
árangurslaust,—bíða heldur og sjá hvernig skipaðist um atvik og
ástæður.
Því lengra sem suður dró, því fastar lagðist sá grunur í mig að mér
mundi aldrei framar auðnast að sjá ættjörð mína og ástvini.
Ég varð lítið var við Núma skipstjóra þessa dagana. Hann var
niðursokkinn í störf sín og rannsóknir í klefa sínum, og þá sjaldan ég
hitti hann í bókasalnum, var hann annars hugar og afskiftalaus.
Sæfarinn hélt sig jafnaðarlega við yfirborðið, og var þar fátt á sveimi.
Að eins einu sinni sáum við skip; þar á vóru hvalveiðamenn, og skutu
þeir þegar út báti og reru áleiðis til okkar,—héldu auðsjáanlega að þar
væri góð veiðibráð, sem við vórum. Númi skipstjóri vildi ekki eyða tíma
og kröftum manna þessara að óþörfu og fór því í kaf með Sæfarann. Þetta
var atvik, sem Ned Land lét ekki athugalaust fram fara. Ég held honum
hafi gramist sárlega, að hvalveiðamennirnir skyldu ekki geta lagt til
dauðs járnhvalinn okkar með skutlum sínum.
Það bar við á þessum slóðum, að við hittum fyrir stóra hákarla. Flugu
mér þá í hug ýmsar sögur um þá, sem ég svo sagði Konsæl. Það er ef til
vill varasamt að trúa öllu, sem farmenn segja frá, en það er dagsatt að
það sem hér fer á eftir er haft eftir sjómönnum: Í maga á stórum hákarli
fanst einu sinni höfuð af amerískum vísundi og heill kálfur. Í öðrum
fundust tvær hnísur og sjómaður í einkennisbúningi. Í þeim þriðja var
hermaður með alvæpni og í þeim fjórða hestur með riddara og reiðtýgjum.
Þetta er nú að vísu ekki sem trúlegast, en þó get ég ekki samkvæmt eigin
eftirtekt sannað að það sé ósatt. Við fengumst sem sé ekki við
hákarlaveiðar.
Hinn 13. marz ákvað Númi skipstjóri að gera tilraun eina, sem mér þótti
meir en lítið til koma.
Við vórum staddir á 45. breiddarstigi og 37 stigi vestlægrar lengdar, á
þeim stað, þar sem ameríska freigátan „Kongress“ stikaði eitt sinn dýpið
og hafði ekki botn með fimmtán þúsund eitt hundrað og fjörutíu metrum.
Hér ætlaði nú Númi að reyna að komast til botns, og bjó ég mig undir að
athuga nákvæmlega hvernig sú tilraun lánaðist. Gluggarnir á aðalsalnum
vóru opnaðir og við nálguðumst hyldýpið.
Það var ekkert viðlit að sökkva skipinu á þann hátt að fylla sjóklefana.
Að vísu gat það þyngst svo mikið við það, að það sykki til botns. En þá
var eftir að komast upp aftur, og var mikil tvísýna á því, hvort
vélarnar mundu geta þrýst vatninu út aftur, undir því voðafargi, sem
hlaut að hvíla á skipinu í þessum reginhyl.
Númi lét halla hliðarspöðum skipsins í hálft horn og lét svo skrúfuna
ganga með fullum hraða.
Sæfarinn nötraði eins og þaninn strengur á fiðlu undir átökum vélarinnar
og skrúfunnar, en áfram rann hann jafnt og stöðugt niður á við.
Við Númi vórum staddir í aðalsalnum og athuguðum þrýstimælirinn. Við
vórum komnir á sex þúsund metra dýpi,—langt niður fyrir neðstu takmörk
sædýralífsins. Í þessu djúpi gat engin lifandi skepna haldist við. En
Sæfarinn hélt áfram niður á við, dýpra og dýpra. Sjórinn umhverfis
skipið var auður og aldauða, en aðdáanlega hreinn og tær.
Einni klukkustund síðar vórum við komnir niður í þrettán þúsund metra
dýpi og þó sást ekki enn til botns. Á fjórtán þúsund metra dýpi fór að
grilla í klettanibbur niður undan okkur. En það gátu verið fjallatindar,
eins háir og Mont-Blanc eða Himalaya, og gat því enn verið eftir
óskaplegt dýpi.
Sæfarinn hélt enn áfram og var þó þrýstingurinn orðinn voðalegur.
Járnþynnurnar svignuðu og ískraði í samskeytunum, járnbitar og bindingar
kýttust svo, að brakaði og tísti alt umhverfis.
Við höfðum af að komast niður í sextán þúsund metra dýpi. Var þá
þrístingurinn á skipinu orðinn sextán hundruð loftþyngdir, en það er
sama sem þrjú þúsund og tvö hundruð pund á hvern fersentímeter á
skipinu.
Númi skipstjóri réð af að hætta tilrauninni.
„Við skulum fara upp aftur“, sagði hann, „það tjáir ekki að leggja
skipið undir meira farg. Haldið yður fast!“
Ég var ekki nógu fljótur að átta mig á því, hvað Númi meinti með þessari
skipun, og vissi því ekki fyr af, en ég lá flatur á gólfinu.
Skipstjórinn hafði fyrirskipað að stöðva vélina og snúa hliðarspöðunum
svo, að röndin vissi upp. Sæfarinn flaug upp með feyknahraða, eins og
laus lofbelgur, og risti sjóinn svo hvein við. Það var engin leið að
gera neinar athuganir. Á örfáum mínútum rann hann þessa sextán þúsund
metra leið á enda, flaug eins og kólfur upp úr yfirborði sjávar hátt í
loft upp, féll svo aftur í hafið með voðalegum gusugangi og boðaföllum.
Við héldum eftir þetta af stað suður á bóginn—alt af í suður. Þegar
við komum á móts við suðurodda Ameríku hélt ég að Númi mundi beygja
vestur fyrir, inn í Kyrrahafið og ljúka þar með við hringför sína um
hnöttinn. En því var ekki að heilsa. Sæfarinn hélt stefnunni óbreyttri.
Hver var svo tilgangur skipstjórans? Ætlaði hann að halda suður í
heimskaut, suðurskautið! Það var óðs manns æði! En það var ekki á hann
að ætla, Núma skipstjóra, fífldirfsku hans var alt ætlandi. Það var ekki
furða þó Ned Land væri ekki hollur í hamsi.
Ned hafði talað fátt upp á síðkastið; fálæti hans ágerðist svo, að varla
var hægt að toga út úr honum orð. Ég sá að hann þoldi illa þetta
varðhald og fyltist æ meir og meir hatri og lífsleiða. Þegar hann hitti
Núma skipstjóra, brann honum eldur úr augum og ég var farinn að verða
hræddur um, að í hart slægi milli þeirra bráðlega.
Hinn 14. marz komu þeir Konsæll inn í herbergið mitt. Ég sá að Ned hafði
eitthvert erindi og var talsvert niðri fyrir.
„Hvað haldið þér að margir menn séu á Sæfaranum?“ spurði hann.
„Svei mér ef ég veit það“, svaraði ég.
„Það getur varla þurft marga menn, til að stjórna þessum hólk“, sagði
Ned.
„Nei, til þess ætti ekki að þurfa nema svo sem tíu menn“.
„Og hvaða ástæða væri þá til að hafa fleiri?“
Ég skildi fullvel hvað Ned Land fór, og hvesti á hann augun.
„Hvaða ástæða!“ endurtók ég. „Eftir því sem mér skilst, er Sæfarinn ekki
einungis skip, heldur einnig heimili og griðastaður manna, sem hafa sagt
sig úr lögum við mannfélagið, á líkan hátt og Númi skipstjóri“.
Þá tók Konsæll til máls:
„Sæfarinn getur þó ekki rúmað nema vissa tölu manna. Gæti ekki
húsbóndinn reiknað út, hvað þeir gætu verið flestir?“
„Hvernig þá, Konsæll minn?“
„Húsbóndinn þekkir burðarmagn skipsins, og getur því reiknað hve mikið
loft það rúmar. Þegar svo við bætist að húsbóndinn veit hvað hver maður
þarf mikið loft, og að loftið í skipinu verður að endurnýja einu sinni á
sólarhring hverjum, þá . . . .“
Konsæll talaði ekki út, en ég skildi hvað hann fór.
„Já, þetta er auðvelt að reikna“, svaraði ég. „En það er hætt við að
útkoman verði ekki ábyggileg“.
„Það gerir ekkert til“, sagði Ned Land. Hann vildi komast að einhverri
niðurstöðu.
„Jæja“, svaraði ég, „einn maður eyðir um hverja klukkustund öllu því
súrefni, sem felst í eitt hundrað lítrum af andrúmslofti, eða sama sem
tvö þúsund og fjögur hundruð lítrum af lofti á sólarhring. Þá er eftir
að finna, hve mörgum sinnum tvö þúsund og fjögur hundruð lítrar af lofti
rúmast í Sæfaranum“.
„Einmitt rétt“, sagði Konsæll og brosti út undir eyru. Konsæll hafði
víst hugann meira á því, hve fljótur ég var að reikna, en hinu, hver
útkoman yrði. En Ned Land sat hnípinn og óþreyjufullur.
„Burðarmagn Sæfarans er fimtán hundruð smálestir“, bætti ég við; „og
hver smálest er eitt þúsund lítrar. Sæfarinn rúmar þá fimtán hundruð
þúsund lítra af lofti, sem deilt með tveim þúsundum og fjórum hundruðum
gerir . . . .“
Ég flýtti mér að reikna út á pappírsblaði.
„. . . . . gerir sex hundruð tuttugu og fimm. Það er, með öðrum orðum,
nægilegt loft í Sæfaranum fyrir sex hundruð tuttugu og fimm menn í
tuttugu og fjórar klukkustundir.“
Ned Land hnykti við. „Sex hundruð tuttugu og fimm!“ át hann eftir.
„Já, en það er áreiðanlega ekki einn tíundi hluti þess mannfjölda hér á
skipinu“, sagði ég.
„Þó svo sé. Það eru of margir móti þrem mönnum ei að síður“, svaraði
Ned.
Ég ypti öxlum ósjálfrátt.
„Þér verðið að vera þolinmóður, Ned“.
Ned anzaði engu, en hristi höfuðið og strauk hendinni um ennið.
Ég kendi sárt í brjósti um Ned, og vildi feginn verða honum að liði. En
hvað átti ég til bragðs að taka, eða öllur heldur, hvað gat ég
gert?—Ekkert.
Ned Land hafði engu öðru vanist, en sigla frjáls og frí um höfin og
drasla í hvaladrápi. Nú var hann hneptur iðjulaus í þröngum klefa, og
hafði ekki annað að gera en hugsa. Og hvað gat hann svo hugsað um, annað
en það, hvernig hann gæti náð frelsi sínu aftur?
En Númi stýrði stöðugt í suður og var því að svo stöddu engin undankomu
von.
Það vildi þó svo vel til, að þennan sama dag kom fyrir dálítill
atburður, sem hresti skap Kanadamannsins, og rifjaði upp fyrir honum
endurminningar glaðari daga.
Um hádegisbilið flaut Sæfarinn í yfirborðinu. Hittum við þá fyrir
hvalatorfu mikla, sem kom á móti okkur. Mér kom það ekki á óvart, því ég
vissi að hvalirnir leituðu æ nær og nær heimskautunum, undan hóflausum
ofsóknum hvalveiðamanna.
Hvalirnir hafa að þessu leyti haft töluverða þýðingu í landfundasögu
jarðarinnar. Við hvalaeltingar hafa fyrst Baskar og Astúrar og seinna
Englendingar og Hollendingar ratað á lönd og staði, áður óþekta. Þá er
sú saga til, að hvalveiðamenn, sem vóru að elta hval, komust svo langt
norður, að ekki vóru nema 10 mílur eftir að norðurheimskautinu. Þetta
getur verið lygi, en líklega reynist það samt satt þegar minst varir.
Við sátum uppi á þiljum. Veður var fagurt og særinn spegilsléttur. Ned
Land varð auðvitað fyrstur til að koma auga á hvalina, í nokkurra mílna
fjarlægð.
„Væri ég nú bara kominn á hvalveiðaskip!“ hrópaði hann upp yfir sig.
„Það vildi ég að . . . . . “
Ned stappaði niður fótunum, svo glumdi í járnþynnunum, og jós úr sér
formælingum yfir Núma og alt sem hann snerti.
„Yður langar víst alt af á hvalaveiðar?“ sagði ég.
„Langar!“ át hann eftir. „Það er eitt af því sem enginn getur gleymt,
herra prófessor“.
„Hafið þér aldrei stundað veiðar hér í suðurhöfum?“
Ned Land lét sem hann heyrði ekki til mín.
„Sjáið þið, hvar þeir koma!“ sagði hann. „Þeir vita sem er að ég get
ekkert gert þeim“.
Ned Land var allur á nálum.
„Eru hvalirnir hérna eins stórir og í norðurhöfunum?“ spurði hann.
„Naumast svo stórir“.
„Ég hefi séð hvali hundrað feta langa, herra prófessor. Og ég hefi
jafnvel heyrt getið um, að þeir gætu orðið hundrað og fimmtíu feta
langir“.
„Það held ég sé nú orðum aukið“, svaraði ég. „Þessir hvalir, eins og
líka búrhvelið, eru vanalega minni en sléttbakurinn“.
„Jæja“, sagði Ned, „ég hefi nú samt heyrt að þeir væru sumir ákaflega
stórir, jafnvel svo stórir, að menn sem hafa séð þá fljóta í
vatnsskorpunni, þakta þangi og skeljum, hafa haldið að það væru eyjar,
fárið á land á þeim, kveikt upp eld og . . . “
„Og bygt á þeim hús“, skaut Konsæll inn í.
„Þvaður!“ sagði Ned.
„Þér trúið því þó víst ekki sjálfur?“ sagði ég.
„Það má trúa öllu um hvali“, sagði Ned. „Það er fullyrt að þeir geti
synt umhverfis hnöttinn á hálfum mánuði“.
„Það er ekki óhugsandi“.
„Þér vitið ef til vill ekki, prófessor góður, að á þeim tímum þegar
jörðin var sköpuð, vóru hvalirnir miklu hraðsyndari en nú?“
„Ónei, ekki vissi ég það, Ned minn. Hvernig stóð nú á því?“
„Það skal ég segja yður, þá var sporðurinn á þeim eins og á öðrum
fiskum, og blöðkurnar snéru upp og niður. En þegar Guð almáttugur veitti
því eftirtekt, að þeir vóru alt of hraðsyndir, tók hann þá og snéri upp
á sporðinn, og síðan hafa þeir verið svona“.
„Er það satt að hvalir geti hvolft skipum?“ spurði Konsæll.
„Því trúi ég tæplega“, svaraði ég. „Það er þó sagt að árið 1820 hafi
hvalur ráðist á skipið „Essex“ og rekið það aftur á bak, með svo miklu
afli, að það skreið nákvæmlega fjóra metra á sekúndunni, þar til sjórinn
fossaði yfir þilfarið aftur á og skipinu hvolfdi“.
Ned leit á mig og kýmdi borginmannlega. Í svona umræðum lét hann ekki
fara með sig í gönur.
„Einu sinni sló hvalur svo óþyrmilega undir bátinn minn“, sagði hann,
„að við félagarnir, sem í honum vóru, hrukkum tólf álnir í loft upp. En
sá hvalur hefir auðvitað verið eins og svolítill hvolpur í samanburði
við hval prófessorsins“.
Konsæll réð sér ekki fyrir forvitni.
„Verða hvalirnir gamlir?“ spurði hann.
„Þúsund ára“, svaraði Ned viðstöðulaust.
„Hvernig vitið þér það, Ned?“
„Af því það er sagt svo“.
„Hvernig geta menn sagt um það?“
„Af því menn vita það“.
Hvalirnir færðust nær, og var eins og Ned ætlaði að gleypa þá með
augunum.
„Sjáið þið!“ sagði hann, „þeir eru fleiri en einn og fleiri en tveir.
Þarna eru tíu, tuttugu, stór hópur. Ilt er nú að vera svona tjóðraður og
ná ekki til þeirra“.
„Farið og talið um þetta við skipstjórann“, sagði Konsæll.
Ned Land lét ekki segja sér það tvisvar. Hann þaut eins og örskot niður
í skipið til að leita að Núma. Eftir örstutta stund kom hann aftur og
skipstjórinn með honum.
„Á ég ekki að skutla einn handa yður?“ spurði Ned, „svona til að gleyma
ekki gamalli iðju“.
„Hvaða gagn er að því?“ spurði skipstjórinn og leit yfir hvalatorfuna.
„Hvers vegna drepa til gamans og að óþörfu? Ég veit það vel, að það eru
sérréttindi, sem mennirnir hafa tekið sér; en ég kæri mig ekki um að
hafa dráp til dægrastyttingar. En hvað sem um það er, þá er nóg búið að
gera að hvaladrápi, meira en nóg. Hvalirnir eiga nógu marga meinlega
óvini, þar sem eru búrhveli og sverðfiskar, svo ég held okkur sé sæmra
að láta þá óáreitta“.
Ned Land varð súr á svipinn við þennan siðalærdóm. Að tala svona við
veiðimann er að eyða orðum að óþörfu. Ned botnaði auðsjáanlega ekkert í
því sem Númi sagði. Hann stakk höndunum í vasana og gekk á burt
blístrandi.
Númi virti fyrir sér hvalina um stund og snéri sér svo að mér.
„Nú skuluð þér sjá, að ég hafði rétt fyrir mér, þegar ég sagði, að
hvalirnir ættu nóga óvini. Sjáið þér svörtu deplana þarna suður frá?“
„Já“.
„Það eru búrhveli, grimmar skepnur og skaðlegar, sem rétt er og
nauðsynlegt að útrýma“.
Ned Land snéri sér við skjótlega og skipstjórinn tók eftir því.
„En það er þarflaust að stofna lífi sínu í voða af þeirri ástæðu“, sagði
Númi. „Sæfarinn hefir trjónu, sem er fyllilega eins traust vopn og gott
eins og skutull Ned Lands“.
Ned Land dró ekki dulur á tilfinningar sínar. Hve nær hafði annað eins
heyrst! Hann ypti öxlum og spýtti út úr sér.
Búrhvelin nálguðust óðfluga. Þau höfðu auðsjáanlega orðið vör við
hvalina og bjuggust til atlögu. Það var fyrirsjáanlegt, hver endir mundi
verða á þeim leik.
Skíðishvalirnir höfðu engar verjur móti búrhvelunum. Þau vóru afar
kjaftstór og höfðu 25 tennur í skoltinum.
Númi hervæddi Sæfarann móti illhvelunum. Hann fór til stýrisins, en við
félagarnir þrír settumst við gluggann í aðalsalnum. Að því búnu fór
skrúfan að snúast og auka skriðinn á skipinu.
Viðureignin var þegar hafin, er Sæfarinn kom inn í illhvelaþvöguna. Svo
var að sjá fyrst í stað, sem búrarnir gæfu ekki mikinn gaum þessum nýja
gesti, sem gekk þar ókvaddur að orustu. En það varð annað ofan á, þegar
fram í sótti.
Slík og þvílík aðsókn! Það kvað svo ramt að, að Ned Land var frá sér
numinn. Númi skipstjóri beitti Sæfaranum eins og heljarmiklum skutli.
Hann rann á hvalina og skifti skrokkunum í sundur í miðju, svo bútarnir
sprikluðu lifandi í sjónum. Sporðaslögin dundu á Sæfaranum, en þess
gætti ekki. Hann gekk á röðina og drap hvern búrann á fætur öðrum,
snérist í hring, fór ýmist upp eða niður, ýmist aftur á bak eða áfram,
svo hvalirnir gátu á engan veg flúið, en tættust í sundur fyrir
stáltrjónu Sæfarans.
Þessi blóðugi bardagi stóð yfir heila klukkustund. Stundum slóu sér
saman tíu til tólf hvalir og ætluðu að mylja Sæfarann undir sér. Við
sáum út um gluggana upp í gapandi ginin á þeim, alsett tönnum, og
heiftþrungnar, rauðar glirnurnar. Ned Land réð sér ekki; hann jós yfir
þá óbóta hrakyrðum, því ekki fékk hann annað að gert. Við fundum að þeir
réðu á skipið, eins og soltnir hundar á hræ. En Sæfarinn varð ekki
forviða. Þeir vóru eins og fis fyrir honum, þó þungir væru og
stórvaxnir.
Loks var þessi orusta á enda og við fórum upp að yfirborðinu. Hlerunum
var skotið upp og við flýttum okkur upp á þilfarið.
Sjórinn var þakinn sundurflettum skrokkum. Sterkasta púðursprenging
hefði ekki tætt kjötþjósir hvalanna meir í sundur. Sjórinn var blóði
litaður svo langt, sem til sást. Örfáir hvalir sáust á flótta út við
sjónhringinn.
Númi skipstjóri kom upp á þilfarið og snéri sér að Ned Land.
„Jæja Ned Land, hvað segið þér nú?“
„Mikið er að gert að vísu“, sagði hann, „en verkið . . . . .“
„Það eru skaðræðisskepnur, sem ég hefi drepið“.
„Ég vil heldur vera veiðimaður en slátrari“, sagði Ned.
„Þér viljið heldur drepa til gamans, en gagns“.
Ég var orðinn dauðhræddur um að þeim mundi lenda saman í illdeilum, út
af þessu. En Ned sýndi nú, eins og áður, fyrirlitningu tóma. Hann var
búinn að kalla Núma slátrara og þá var hann ánægður. Hann stakk höndunum
í vasana, ofur rólega, snéri baki við Núma og fór niður í klefann sinn.