Við fórum fyrir norðan Ástralíu og vórum komnir inn í Indlandshaf í
janúarmánuði 1868. Ég veitti því eftirtekt, að Númi hagaði ferðinni
öðruvísi þegar þangað kom. Í Kyrrahafinu fór Sæfarinn með fullum hraða
eftir ákveðinni stefnu. En þegar dró nær ströndum Vestur-Indlands, hægði
hann skriðinn og stýrði þá sitt á hvað, ýmist í norður eða suður. Liðu
svo nokkrir dagar að við hringsóluðum um sama svæði, en fórum svo að
þokast suður á við.
Það bar við einn dag, að ég sat í aðalsalnum, út við gluggann, og var að
horfa á urmul af fiskum, sem safnast hafði utan um skipið. Þá kom Númi
skipstjóri inn og gekk rakleitt til mín, út að glugganum.
„Við erum bráðum komnir til Ceylon“, sagði hann formálalaust.
„Perlutekjan er að vísu lítil á þessum tíma árs. Þó getur verið, að
nokkrir menn fáist við það núna. Langar yður ekki til að sjá þá kafa,
prófessor?“
Ég var fljótur að játa því, en mig furðaði á því, að Númi skyldi alt í
einu fá löngun til að nálgast þurlendið og mennina.
„Það er langt til Ceylon enn“, sagði ég, „og fari Sæfarinn ekki hraðara,
en undanfarna daga, þá . . . .“
Númi tók fram í fyrir mér:
„Við verðum komnir þangað á morgun“, sagði hann.
Hann horfði stöðugt út í sjóinn, og mér varð líka litið þangað, en
hnykti við heldur en ekki.
Ég kom auga á mann í sjónum, ekki liðið lík, sem barst með straumnum,
heldur bráðlifandi mann, sem klauf sjóinn með sterklegum sundtökum, fór
upp að yfirborðinu til að anda og kafaði svo aftur niður í djúpið.
„Þarna er maður sem liggur við druknun“, sagði ég. „Við verðum að bjarga
honum!“
Númi svaraði ekki, en laut fast að gluggarúðunni.
Maðurinn í sjónum kom rakleitt að glugganum, lagði andlitið að rúðunni
að utanverðu og skifti nokkrum merkjum og bendingum við Núma skipstjóra.
Svo synti hann upp að yfirborðinu aftur og sá ég hann ekki framar.
Þó mér þætti þessi óvænti atburður furðu gegna, hafði þó einn hlutur
vakið athygli mína. Þegar menn þessir nálguðust hvor annan, sinn hvoru
megin við gluggarúðuna, sá ég óðara, að þeir vóru af sama kyni báðir.
Flaug mér þá í hug, að þessi undarlegi skipstjóri mundi vera Indverji,
enda þótt hann talaði eins og mentaður Vesturlandamaður. Sundmaðurinn
leit út fyrir að vera almúgamaður, en eftir látbragði Núma og
andlitsfalli að dæma, mátti ætla að hann væri frjálsborinn aðalsmaður af
góðu bergi brotinn.
Númi skipstjóri fór yfir í hinn enda salsins og opnaði kistu, sem stóð
þar. Hann tók upp úr henni bögla marga, athugaði þá vandlega og raðaði
þeim svo niður aftur. Í bögglum þessum var tómt gull. Gizkaði ég á, að í
kistunni væru fimm miljónir króna í gulli.
Þegar Númi var búinn að láta alt ofan í aftur, læsti hann kistunni
vandlega, og hringdi bjöllu að því búnu. Þá komu inn 4 menn og báru
kistuna út. Heyrði ég á fótatakinu að þeir báru hana að stiganum. Rétt á
eftir fór Sæfarinn upp á yfirborðið; hlerarnir vóru opnaðir og kistunni
bisað upp á þilfarið.
Árla morguns daginn eftir kom Númi inn og settist að morgunverði með
okkur. Hann var óvanalega málhreifur, en mintist þó ekki einu orði á
það, sem gerst hafði daginn áður.
„Við skulum nú borða okkur sadda“, sagði hann, „það getur orðið langt
þangað til við fáum mat aftur“.
Matur var nógur á borðum, eins og vant var, og réttir margir. Sá ég að
sumir þeirra vóru búnir til úr fiski, en hvaða efni var í sumum var mér
ómögulegt að renna grun í, og hafði ég þó borðað þá mörgum sinnum. Þeir
vóru einkennilegir á bragðið, en mér var þó farið að fallast á þá upp á
síðkastið.
„Þér vitið ekki hvað það er, sem þér borðið“, sagði Númi skipstjóri. „En
ég get fullvissað yður um, að það er holl fæða og nærandi. Það er langt
síðan ég og mínir menn höfum borðað annan mat“.
„Eru þessir réttir fengnir allir úr sjónum?“ spurði ég.
„Já“, sagði skipstjórinn. „Ég þarf ekki annað en festa net utan á
skipið, svo er það orðið fult af fiski eftir litla stund. En stundum fer
ég á dýraveiðar í neðansjávarskógunum; þar eru veiðiföng bæði mikil og
góð“.
„Ég get vel skilið, hvernig þér veiðið í net, en hitt er mér
torskildara, hvernig þér farið að því, að veiða dýr í skógunum
neðansjávar„, sagði ég, “og undarlegt þykir mér það, að aldrei skuli
vera kjötmeti á borðum yðar“.
„Kjöt af landdýrum sést hér aldrei“.
„En hvers konar steik er þetta?“ spurði ég og benti á einn diskinn.
„Þetta er kjöt að vísu“, sagði skipsjórinn, „en það er af sæskjaldböku.
Þetta, sem þér haldið líklega að sé svínakjöt, er höfrungalifur.
Matsveinninn minn er vel að sér í tilbúningi matar. Rjóminn er þeyttur
úr hvalamjólk, og sykurinn er búinn til úr eins konar þangtegund“.
Ég varð að samsinna því, að matsveinninn væri stöðu sinni vaxinn, því
maturinn var ljúffengur.
Númi tók til máls aftur: „Ekki nóg með það, að ég hafi öll matarföng úr
hafinu. Klæðnaður minn er líka sniðinn af efnum þess. Þráðurinn, sem
klæðið er ofið úr, er rakinn úr einskonar sætágum. Sængurdýnurnar eru
troðnar út með afar-smágerðu þangi.
Í stuttu máli sagt, get ég fengið úr sjónum allar lífsnauðsynjar
mínar“.
Að lokinni máltíð fórum við inn í bókaklefann og reyktum vindil, sem
auðvitað var vafinn úr blöðum af nikótínkendri sæurt. Númi sagði mér að
ætlun sín væri að skoða grynningarnar við Mandor, en þar er mest
perlutekja í heimi.
„Eruð þér tilbúinn?“ spurði skipstjórinn, lagði frá sér vindilinn og
stóð upp. „Félagar yðar verða ef til vill með í förinni?“
„Það held ég sjálfsagt“, sagði ég og stóð upp. „En nú liggur Sæfarinn
við botn og hér er 30 feta dýpi“.
„Það er svo til ætlast“, svaraði skipstjórinn.
„En getum við komist í bátinn fjórir?“ spurði ég.
„Nei, við förum fótgangandi“.
„Fótgangandi!“ át ég eftir, „—á mararbotni?“
„Já, einmitt það“.
Hann kallaði á Ned Land og Konsæl og fór með okkur miðskipa.
Mér datt í hug, að annaðhvort væri skipstjórinn brjálaður, eða hann væri
að gera skop að okkur. En svo fór hann með okkur inn í klefa einn og þá
fór ég að renna grun í hvað í ráði væri. Á þilunum héngu kafarafatnaðir
margir og nokkrir menn vóru þar til taks að hjálpa okkur til að fara í
kafarafötin. Föt þessi vóru úr togleðri og öll ein samfella, skálmar,
bolur, ermar og vetlingar. Undir iljunum vóru þung og þykk blýstykki.
Sterkar látúnsgjarðir héldu fötunum frá brjóstinu, svo ekki skyldi
þrengja að öndunarfærunum.
En hvaðan átti svo andrúmsloftið að koma? Númi skipstjóri hafði séð ráð
við þeim vanda. Þegar við vórum búnir að setja upp sterkan eirhjálm, sem
festur var með látúnskraga við upphlutinn, var pípa, sem lá úr honum,
sett í samband við hylki eitt, sem við höfðum á bakinu. Í hylki þessu
var samþjappað loft. Fann ég að hreint loft streymdi inn í hjálminn
þegar búið var að setja þetta saman. Um mittið girtum við belti og var í
því hnífur, rafmagnsgeymir og rafmagnslampi, sem kveikja mátti á og
slökkva eftir vild.
Svo vórum við fullbúnir til ferðarinnar. Búningur þessi var svo þungur,
að ég gat ekki hreyft mig úr sporunum. En Númi hafði líka gert ráð fyrir
því. Tveir menn tóku hvern okkar og bisuðu okkur inn í hliðarklefa. Að
því búnu lokuðu þeir hurðinni vandlega.
Í klefa þessum var niðamyrkur. Ég heyrði sterkan hvin og fann kulda
leggja upp eftir líkamanum. Klefinn var orðinn fullur af sjó, sem
hleypt hafði verið inn í hann. Dyr vóru opnaðar á skipshliðinni og lagði
inn um þær daufa dagsskímu. Gengum við út á mararbotninn gegnum þessar
dyr.
Þegar þangað kom fann ég ekki til þyngslanna á kafarabúningnum. Mér var
létt um allar hreyfingar og gat ég séð til allra hliða gegnum glerrúður
í hjálminum.
Birtu lagði niður í djúpið, skærari en ég hafði búist við. Ég gat vel
greint hluti í 100 faðma fjarlægð. Þegar lengra dró hurfu myndirnar í
bláa móðu, sem döknaði smátt og smátt og hvarf að síðustu í
svarta-myrkri.
Sjórinn umhverfis okkur var líkur andrúmsloftinu, eins gagnsær og það,
en miklu þéttari í sér. Hátt yfir höfði mér sá ég móta fyrir yfirborði
sjávarins.
Við gengum eftir smágerfum, ljósum sandi. Að baki okkur sáum við
Sæfarann liggja eins og svartan, ílangan klett á botninum, en eftir
nokkra stund hvarf hann okkur sýnum.
Annað veifið gengum við fram á fiska, sem þutu upp af hræðslu, eins og
hrossagaukar í mýri. Steinar lágu á sandsléttunni til og frá, þaktir
lindýrum og sægróðri. Upp á háum klettum stóðu skankalangir krabbar og
störðu á okkur.
Alt í einu fór að halla undan fæti og gengum við niður brekkuna.
Dagsbirtan varð æ daufari og daufari og að síðustu sáum við ekki annað
en daufa rauðleita rökkurglætu.
Fram undan okkur var að sjá eins og svartan vegg. Það var
neðansjávarskógur.
Eikurnar vóru eins konar trjákendir þönglar, stofnarnir þráðbeinir og
greinarnar líka. Var mjög torvelt að komast áfram í skógi þessum. Trén
stóðu svo þétt, að við urðum að sveigja þau til hliðar til að komast
áfram; en trén sóktu í sama horfið aftur svo leiðin luktist að baki
okkar.
Það var nú orðið svo dimt, að við urðum að bregða upp ljósi. Varð þá
bjart umhverfis okkur sem um hádag væri. Virtist mér gróðurinn svo
fjölbreyttur eins og væri ég staddur í suðrænum frumskógi. En undarlega
kom hann mér fyrir augu, þessi fáséði myrkviður, þá er ég hafði virt
hann fyrir mér stundarkorn. Var örðugt að gera greinarmun á dýrum og
jurtum, svo mjög líktist hvað öðru. Ruglaði ég saman sæplöntum og
lindýrum, skelfiskum og þarastönglum.
Það var afar örðugt að komast áfram í skógi þessum. Þegar við vórum
komnir spottakorn inn í hann gerði Númi okkur vísbendingu um að nema
staðar. Við lögðumst niður á þarabing til að hvíla okkur. Varð ég feginn
hvíldinni, því ég var orðinn þreyttur. Það fór fyrir mér eins og öðrum
köfunarmönnum, að mig sótti svefn. Eftir nokkra stund lét ég aftur
augun og steinsofnaði.
Ekki veit ég, hve lengi ég hefi sofið, en þegar ég lauk upp augunum,
spratt ég á fætur í ofboði.
Nokkur skref frá mér sé ég standa sækönguló meira en álnar háa, og var
svo að sjá sem hún ætlaði þegar að ráða á mig. Ég varð skelkaður í
svipinn, enda þótt ég vissi, að kafarafötin mundu verja mig biti hennar.
Í sömu svifum vöknuðu félagar mínir. Réðist Númi skipstjóri á óféti
þetta og barði það niður með byssuskeftinu.
Eftir viðureignina við dýr þetta, sem var jafn andstyggilegt sem það var
meinlaust, datt mér í hug að hæglega gæti ég rekist á dýr, sem
kafarfötin væru ekki einhlít fyrir. Mér hafði ekki hugkvæmst það áður.
En upp frá þessu ásetti ég mér að vera var um mig.
Við lögðum af stað aftur, og vórum klukkustund að komast gegnum skóginn.
Númi stýrði förinni og fór jafnan fremstur. Þegar komið var út úr
skóginum fór að hækka undir fæti, og birta í sjónum.
Loks nam hann staðar. Sjórinn var hreinn og tær umhverfis okkur og
uppljómaður af sólskini. Fram undan okkur sáum við grynningar þaktar
perluskeljum.
Númi benti með hendinni yfir grynningarnar. Skeljarnar héngu á mjóum
taugum við klappir og steina. Það vóru fádæma auðæfi, sem lágu þarna á
mararbotni.
Við reikuðum til og frá og skoðuðum skeljarnar. Ned Land flýtti sér að
tína saman stærstu og fallegustu perlurnar.
Að liðnum tíu mínútum nam skipstjórinn staðar alt í einu og benti okkur
að fylgja sér í var, undir stórum kletti. Skamt frá okkur sáum við
svertingja kafa niður. Var hann að freista hamingjunnar að ná í
eitthvað, áður en perlutekjan byrjaði alment. Yfir höfðum okkar sá ég í
botninn á bátnum hans, sem ruggaði hægt á yfirborðinu. Við annan fótinn
á sér hafði hann bundið þungan stein til að verða fljótari að komast til
botns. Þegar hann náði botni, losaði hann steininn við sig, lagðist á
hnén og fór að tína skeljar í poka. Að því var hann svo sem hálfa
mínútu. Svo fór hann upp að yfirborðinu aftur, dró steininn upp í bátinn
á taug, sem fest var við hann, sótti í sig veðrið og stakk sér til botns
aftur. Gekk svo koll af kolli. En hvort hann hefir fundið nokkra perlu í
öllum þessum skeljum er ómögulegt að segja, þó hann legði lífið í hættu
fyrir þá von.
Við fengum fljótt sönnun fyrir því, hvað vinna þessi er hættuleg. Eitt
sinn þegar svertinginn stakk sér til botns og var að leggjast á hnén
tók hann viðbragð og snéri aftur upp til bátsins. Þá sá ég eitthvað
dökkleitt í sjónum fyrir ofan hann. Það var hákarl, og synti beint að
svertingjanum, með gapandi gini. Svertinginn vatt sér snögglega til
hliðar, en þá sló hákarlinn sporðinum á hann, svo hann féll til botns.
Hákarlinn snéri að honum aftur og sýndist þá öll von úti um
svertingjann. Í sömu svipan óð Númi skipstjóri fram móti hákarlinum og
mundaði hnífinn. Hákarlinn sá hann og snéri þegar að honum. Númi lét sér
ekki bregða, en þegar hákarlinn hugðist að gleypa hann, varpaði hann sér
til hliðar og lagði hnífnum á kaf í kvið hákarlinum. Sjórinn litaðist
blóði og sá ég ekki hverju fram fór í nokkrar sekúndur. Þegar þeir komu
í ljós aftur, sá ég að Númi hélt sér föstum á bæxli hákarlsins og lét
hnífinn ganga í skrokkinn á honum, en náði þó ekki að leggja hann í
hjartað. Hákarlinn braust um ákaflega. Mynduðust iðuköst í sjónum út frá
honum alla vega, svo mikil, að mér lá við falli. Númi misti loks taksins
og féll til botns. Þótti mér þá sem úti væri um hann. Ég ætlaði að
skunda til og hjálpa honum, en þessi voðasjón fékk svo mikið á mig, að
ég stóð sem steini lostinn og komst ekki úr sporunum. Í sömu svipan sá
ég hvar Ned Land óð fram og hafði á lofti skutulinn. Þegar hann náði
til hákarlsins, rak hann skutulinn á kaf í skrokkinn á honum. Sjórinn
varð að nýju svo litaður blóði, að ég sá ekki hverju fram fór um hríð.
Ég skreiddist nú á vettvang og var Númi þá staðinn upp. Hann gekk að Ned
Land og tók í hönd honum fast og innilega.
Svertinginn var horfinn. Hann hafði komist aftur upp í bátinn sinn, án
þess við tækjum eftir því. Hátt uppi í sjónum sáum við svart ferlíki.
Það var hákarlshræið sem flaut þar og barst burt með straumnum.
Það var liðið langt á dag og farið að skyggja. Við urðum því að hafa
hraðann á, að komast til skipsins aftur. Númi valdi nú aðra leið,
styttri og greiðfærari. Við gengum í tvær stundir eftir sandsléttum.
Vóru þær víðast auðar, en sumstaðar var sægróður mikill, þang og
þaraflækjur, taugar og tágar, sem flæktust um fætur okkar og seinkuðu
ferðinni. Það var nærri aldimt orðið þegar við sáum loks ljósin á
Sæfaranum. Varð ég alls hugar feginn þegar við náðum loks skipinu, og
tókum á okkur náðir eftir ferðalag þetta.