II.

Við héldum suður með ströndum Suður-Ameríku að austanverðu. Í byrjun

júlí fórum við fyrir suðurodda Ameríku og stýrðum vestur í Kyrrahafið,

því að norðan til í því hafði hvalsins orðið vart síðast.

Farragút flotaforingi hafði með sér öll áhöld og tæki, sem notuð eru

við hvalaveiðar, sem eðlilegt var, úr því hann ætlaði að veiða hval; en

hann hafði og meira. Honum hafði tekist að ráða til fararinnar, konung

allra hvalveiðamanna, Ned Land.

Ned Land var frá Kanada. Hann var afburðamaður í iðn sinni. Hann var

sjóngóður, snarráður, ófyrirleitinn og hugrakkur, hverjum manni fremur.

Og svo fimur var hann að beita skutli, að fáum hvölum var undankomu

auðið, sem hann komst í skotmál við.

Eins og aðrir Kanadamenn talaði hann frönsku jafn vel og ensku. Ég held

honum hafi þótt gaman að tala frönsku. Það var víst helzt þess vegna, að

hann gaf sig meira að mér en öðrum á þessari löngu sjóferð. Annars var

hann heldur fátalaður.

Dagarnir vóru langir og leiðir á þessari úthafsför. Ned Land var oft á

vakki fram á skipinu og horfði á hvernig það klauf öldurnar fyrir

ofurafli gufunnar. Ég gaf mig oft á tal við hann og þá spjölluðum við um

alla heima og geima. Brátt varð ég þess var, að hann lagði lítinn trúnað

á sögurnar um náhvelið.

„Ég hefi elt ótal hvali“, sagði hann, „skutlað fjölda og drepið marga,

en engan hefi ég séð svo stóran eða rammefldan, að honum væri trúandi

til, að reka gat á stórt járnskip“.

Ég reyndi að sannfæra hann með því, að leiða honum fyrir sjónir, hve oft

það hefði komið fyrir á seinni öldum, að risastór sjóskrímsli hefðu sést

og stundum náðst.

Ned Land, sem sí og æ tottaði tóbakspípuna, gerði þá ekki annað, en

spýta út um annað munnvikið, og nöldra með fyrirlitningarróm: „Tómir

kolkrabbar!“

Ég reyndi þá að sannfæra hann um allar þær líkur, sem fengnar vóru með

tilstyrk vísindanna fyrir því, að náhveli væru til, og svo benti ég

honum á það, hvað fyrir hafði komið upp á síðkastið, og vitnisburð

fjölda merkra manna um það mál, manna, sem hann þekti eins vel og ég.

Ned Land hleypti brúnum og horfði á mig með háðsbros í munnvikunum. Hann

lagði ekki trúnað á eitt einasta orð, sem ég sagði.

„En heyrið þér þá“, sagði ég loks, og hugsaði, að nú skyldi til skarar

skríða, „hvaða grein gerið þér þá fyrir skemdinni á „Skotlandinu?““

Nú var Ned Land kominn í klípu!

„Það er“, stamaði hann, „það er . . . .“

„Hvað þá?“

„Haugalygi frá upphafi til enda“.

Meira hafði ég ekki upp úr honum; en ekki varð okkur þetta að

óvildarmáli.

Farragút flotaforingi hafði heitið tvö þúsund dala launum, þeim manni,

sem fyrstur kæmi auga á náhvelið. Óðar en komið var inn í Kyrrahafið

fóru allir að skygnast eftir því. Yfirmenn og hásetar vóru sí og æ uppi

á þilfari, hvort sem þeir áttu að vera þar eða ekki. Þeir sem höfðu

sjónauka miðuðu þeim út yfir sjónhringinn alla vega, en þeir, sem þá

höfðu ekki, urðu að beita berum augum. Þeir sem í förinni vóru, höfðu

auðvitað allan hugann á náhvelinu, og þá drógu ekki tvö þúsund dalirnir

úr áhuganum,—löngunin eftir því, að „verða fyrstur“ hafði gagntekið

alla eins og megn hitasótt.

Ég mændi út yfir hafið eins og hinir, og hafði ekki síður en þeir hugann

á náhvelinu; en mig langaði mest að vita hverrar tegundar dýr þetta

væri, og svo ákafur var ég orðinn upp á síðkastið, að ég stóð á þiljum

uppi frá morgni til kvölds, og gaf mér varla tíma til að matast. En

þegar svo langt var komið, þá fanst Konsæl það vera skylda sín, að gefa

mér viðvörun. Með afar kurteisum og fáguðum orðtækjum bað hann mig að

ofreyna ekki sjónina lengur á þessu.

Samt gat Konsæll ekki að því gert, að hann hafði glöggar gætur á því,

hvort ekki sæist neitt sérkennilegt á sjónum. Ned Land var sá eini, sem

lét sig þetta engu skifta. Það var eins og hann forðaðist að líta út á

sjóinn. Ég mátti til að setja ofan í við hann fyrir það, því vel gat það

komið að liði, að hann var öllum mönum sjónhvassari, hefði hann bara

fengist til að beita augunum.

„Það er til einkis“, sagði hann, „við önum þetta í blindni hvort eð er.

Það er sagt að þessi undraskepna hafi sést í Kyrrahafinu. Það eru tveir

mánuðir liðnir síðan, og hvar er það nú? Ef það er eins fljótt í förum

eins og sagt er, þá er hætt við að það hafi fært sig eitthvað síðan“.

Það var í raun og veru útlit fyrir, að Ned Land hefði rétt fyrir sér.

Freigátan strikaði úthafið þvert og endilangt, en enginn varð var við

náhvelið.

Og þar kom að lokum, að áhuginn fór að dofna. Menn fóru að verða

þreyttir á þessu tilbreytingalausa og árangurslausa ferðalagi. Þeim fór

að leiðast, að horfa út yfir hafið autt og endalaust! Það var hvort sem

var alveg árangurslaust! Smátt og smátt fóru menn að efast um, að þessi

undraskepna væri til í raun og veru, og svo mikil brögð urðu að þessu,

að skipshöfnin krafðist þess að síðustu, að haldið yrði heim og leitinni

hætt.

Það var komið fram í nóvembermánuð og við vórum staddir vestan til í

Kyrrahafinu í nánd við Japan. Þá ákvað Farragút að leitinni skyldi

haldið áfram í þrjá daga. Yrði einkis vart að þeim tíma liðnum, ætlaði

hann að stýra „Abraham Línkoln“ heim á leið aftur.

Þetta glæddi áhugann að nýju. Nú var um að gera, að nota tímann vel, ef

það átti að lánast, að ná í þessa tvö þúsund dali. Svo var farið að

skima eins og áður.

En svo liðu þessir þrír dagar, að einskis varð vart. Fresturinn var

útrunninn að kvöldi hins fimta nóvember og þá breytti Farragút stefnunni

eins og hann hafði lofað og stýrði í landsuður.

Ég var staddur á þilfarinu, og var að tala við Konsæl, þegar myrkrið

færðist yfir. Tunglið óð í skýjum og varpaði flögtandi birtu yfir

öldurnar öðru hvoru. En þess á milli grúfði niðsvart náttmyrkrið yfir

úthafinu.

„Heimskulegt flan er þessi för orðin“, sagði ég, „nær hefði okkur verið

að fara rakleitt heim.“

„Og raða upp safngripunum húsbóndans“, sagði Konsæll.

„Og þar á ofan verðum við hafðir að háði og narri!“

„Það er ef til vill ekki rétt hjá mér, að segja sem svo . . . . .“,

sagði Konsæll.

„Láttu það fljúga, Konsæll“.

„Mér datt í hug, að það væri ekki hyggilegt af mönnum, sem eru eins

lærðir og húsbóndinn, að stofna sér . . . . .“.

Konsæll hætti í hálfu kafi, því upp úr miðri næturþögninni drundi

málrómur Ned Lands alt í einu.

„Hæ-hó! Sæormurinn mikli! Framundan á stjórnborða!“ æpti hann í sífellu.

Á einni svipstundu ruddust allir upp á þilfar; kyndarar og vélamenn

neðan af neðsta gólfi, hvað þá aðrir.

Það var að eins ein hugsun, ein spurning, sem fyrir öllum vakti: Hvað

gat Ned Land hafa séð í biksvörtu náttmyrkrinu?

Eins og tvö hundruð faðma frá skipinu var ljós blettur á sjónum,

líkastur því, sem birtu legði þar upp úr djúpinu. Ég sá undir eins, að

það var ekki maurildi; það var alt annar blær á þessari birtu. Skrímslið

hlaut að vera að eins fáa faðma fyrir neðan yfirborðið, en birtan, sem

ljómaði af því, var með öllu óskiljanleg. Ljósbletturinn var eins og

bungumyndaður og skærastur í miðjunni.

„Þetta er maurildi!“ kallaði einn yfirmannanna.

Ég laut fram á öldustokkinn og athugaði furðusýn þessa.

„Nei“, sagði ég, „maurildi ber ekki svona mikla birtu. Þetta er eitthvað

skylt rafmagnsljósi. En sjáið þið, það hreyfist, það færist áfram, aftur

á bak; það nálgast?“

Nú hætti okkur að lítast á blikuna. Ljósbletturinn nálgaðist freigátuna

með miklum hraða en hávaðalaust. Menn æddu um þilfarið og æptu af undrun

og ótta.

„Kyrrir!“ hrópaði Farragút. „Stýrið á stjórnborða; fulla ferð aftur á

bak!“

Við þessa skipun hljóp hver maður á sinn stað, og „Abraham Línkoln“

skreið aftur á bak í hálfhring.

„Stýrið á bakborða, áfram!“ drundi skipstjórinn, og freigátan rann af

stað frá ljósblettinum.

Það er að segja,—hún átti að fjarlægjast hann.

En þessi undraskepna kom á eftir, með tvöfalt meiri hraða.

Þetta var óskiljanlegt með öllu. Við stóðum á þilfarinu aðgerðalausir og

orðlausir af hræðslu. Dýrið gerði meira en nálgast freigátuna, það synti

hringinn í kringum hana, og fór hún þó með fullum hraða.—Svo hvarflaði

það frá, svo sem mílu vegar, kom svo aftur með fleygiferð og stefndi á

„Abraham Línkoln“, staðnæmdist eins og tuttugu skref frá skipinu

og—hvarf. Það hafði auðsjáanlega ekki farið í kaf, því birtan dvínaði

ekki smátt og smátt, heldur þvarr alt í einu, eins og þegar ljós

sloknar. Rétt á eftir kom það í ljós hinum megin við skipið, hvort sem

það hefir nú synt umhverfis það eða undir kjölinn. Við máttum búast við

árekstri þá og þegar, sem gat orðið okkur óhappadrjúgur.

Nú tók ég eftir einu, sem ég hafði ekki athugað áður: Freigátan fór á

flótta í stað þess að sækja á. Hún var ofsótt í stað þess að ofsækja. Ég

hafði orð á þessu við Farragút flotaforingja. En hann, sem annars var

stillingin sjálf, var nú auðsýnilega ruglaður og ráðþrota.

„Svo er það“, sagði hann, „en ég veit ekki hvaða óvættur þetta er, og

þori ekki að ábyrgjast skipið í þessu myrkri, það væri blátt áfram

heimskulegt af mér að gera það. En á morgun skiftum við um hlutverk“.

„Þér eruð þá viss um að þetta sé eitthvert dýr?“

„Já“, svaraði hann, „ekki er um það að villast; þetta er auðsjáanlega

risavaxið náhveli. En það er þrungið rafmagni, og ef það hefir lagtönn

eftir stærð, og löngun til að beita henni, er það áreiðanlega mesta

skaðræðisskepna, sem nokkurn tíma hefir í söltum sjó lifað. Ég verð að

fara varlega“.

Skipshöfnin var á flakki alla nóttina. Engum kom til hugar að festa

svefn. „Abraham Línkoln“ hafði ekki undan hvort sem var, og fór því með

hálfum hraða; og náhvelið hagaði sér eftir því. Það var auðséð, að það

ætlaði ekki að renna af hólmi.

Um miðnætti hvarf það samt, eða réttara sagt, slokknaði, svo við fórum

að halda að það hefði hundskast burtu. En einni stundu síðar heyrðist

heljar hvinur, eins og vatni væri þeytt út um pípu með feikna afli.

Á þilfarinu stóðum við Ned Land og Farragút.

„Ned Land“, kallaði flotaforinginn, „hafið þér oft heyrt hvali öskra?“

„Já“, anzaði Ned Land, „en ég hefi ekki heyrt hval öskra fyr, sem ég

hefi grætt á tvö þúsund dali, fyrir það eitt að sjá hann“.

„Tvö þúsund dalina skuluð þér fá“, sagði flotaforinginn, „en ég vil fá

að vita hvort það er líkt þessu, þegar hvalir þeyta sjó út um

blástursholuna?“

„Já, svipað því er þetta hljóð“, svaraði Ned, „en miklu sterkara“.

Klukkan tvö sást ljósbletturinn aftur í nokkurri fjarlægð frá skipinu,

og við heyrðum greinilega að dýrið lamdi sjóinn með sporðinum.

Á freigátunni var hafður viðbúnaður mikill. Veiðarfærum var raðað með

borðum, svo hægt væri að ná til þeirra hvenær sem á þyrfti að halda. Í

framstafn voru látnar tvær fallbyssur. Var önnur svo gerð, að með henni

mátti skjóta skutli, en hin var fyrir sprengikúlur.

Klukkan 6 um morguninn fór að elda aftur. En þegar fyrsta sólarbjarmanum

sló á loftið, hvarf birtan af hvalnum aftur í einum svip. Stundu síðar

var orðið albjart, en þá lagðist yfir þoka, svo niðdimm, að varla sá út

úr augunum.

Ég fór upp í reiðann, svo hátt sem kaðlaþrepin náðu, en sumir af

foringjunum fóru alveg upp að sigluhúnum. Svo störðum við út í þokuna,

sem valt í hægðum sínum yfir hafflötinn.

Ned Land varð aftur fyrstur til að sjá dýrið.

„Sæormurinn!“ æpti hann. „Afturundan, á bakborða!“

Góðan kipp frá skipinu grilti í dökkleitt ferlíki, sem stóð eins og alin

upp úr sjónum. Dýrið lamdi sjóinn svo afskaplega með sporðinum, að

drifhvítur froðuferill sást aftur af því langa leið.

Freigátan nálgaðist hvalinn, og gafst mér nú færi á að athuga hann

nákvæmlega. Frásagnirnar um lengd hans voru auðsjáanlega orðum auknar.

Hann var á að gizka 100 faðma langur. Skrokkurinn var rennilegur, svo

ætla mátti að hann væri afar-hraðsyndur. Hann þeytti öðru hvoru sjó og

andgufu upp um blástursholuna; stóð sú stroka oft yfir 100 fet í loft

upp. Ég var nú ekki lengur í vafa um það, að þetta væri eins konar

hvalur.

Skipverjar biðu með óþolinmæði eftir fyrirskipunum skipherrans. Farragút

virti hvalinn fyrir sér grandgæfilega og kallaði svo á vélstjórann:

„Hafið þér kynt undir kötlunum?“ spurði hann.

„Kyndið þér meira! Eins og katlarnir þola!“

„Já“, svaraði vélstjórinn.

Menn æptu af fögnuði við þessa skipun. Nú átti til skarar að skríða.

Kolsvartir reykjarmekkir ultu upp úr reykháfum skipsins, en

gufukatlarnir nötruðu svo fyrir ofurmagni gufunnar, að alt var sem á

þræði léki.

Hvalurinn fór ekki úr stað, fyr en ekki voru nema 50 faðmar milli hans

og skipsins; þá tók hann viðbragð og synti undan með sama hraða og

skipið skreið. Stóð svo þessi eltingaleikur í þrjá stundarfjórðunga að

hvorki dró sundur né saman. Var ekki útlit fyrir að neitt ynnist með

þessu móti.

Farragút réð sér ekki fyrir reiði. Hann klóraði sér ákaft fyrir ofan

eyrað, svo húfan fór aftur á hnakka.

„Ned Land!“ hrópaði hann.

Ned Land gekk til hans.

„Sýnist yður ráðlegt að skjóta út bátum?“ spurði flotaforinginn.

„Fjarri fer því“, svaraði Ned. „Hér er ekki við lamb að leika. Þessi

skepna fer að eigin geðþótta og lætur ekki leika á sig“.

„Hvað er þá til ráða?“

„Ekkert annað en auka hraðann. Ég ætla að setjast undir bugspjótið með

skutulinn minn, og nái ég til dýrsins, þá skal ég hitta“.

„Vélstjóri!“ hrópaði flotaforinginn, „leggið þyngra á öryggishanana.“

Ned Land settist undir bugspjótið. Öryggishanarnir voru þyngdir og kolum

mokað á eldana að nýju. Skrúfan fór fjörutíu og þrjá snúninga á mínútu

og „Abraham Línkoln“ fór hálfa tíundu sæmílu á klukkustundinni.

En náhvelið synti líka hálfa tíundu mílu á klukkustundinni.

Gekk svo heila klukkustund, að enginn munur varð á millibilinu. Var

þetta smán mikil fyrir hraðskreiðasta skip ameríska flotans, enda voru

skipverjar alveg hamslausir. Þeir stóðu fram í stafni og jusu bölbænum

og formælingum yfir dýrið, en flotaforinginn reitti hárið af kollinum á

sér af bræði.

Enn var kallað á vélstjórann.

„Er gufuþenslan á hámarki?“ spurði foringinn.

„Já“, svaraði vélstjórinn.

„Hefir verið þyngt á öryggishönunum?“

„Já, þenslan er hálf sjöunda loftþyngd[1]“.

„Látið hana verða 10 loftþyngdir!“

Þetta var skipun, sem Vesturheimsmanni sómdi.

„Konsæll!“ kallaði ég, „nú springur skipið“.

„Eins og húsbóndanum þóknast“, svaraði Konsæll.

Ég verð að segja eins og satt er, að á þessu augnabliki var mér sama, þó

ég ætti það á hættu.

„Abraham Línkoln“ jók skriðinn. Hann gnötraði allur frá sigluhún ofan í

kjöl og reykháfarnir virtust vera alt of þröngir, svo þykkur var

mökkurinn, sem ruddist upp úr þeim í sífellu. Þrýstimælirinn sýndi 10

loftþyngdir, en skriðstikan 10 mílna hraða.

En þetta kom fyrir ekki, því hvalurinn synti líka með 10 mílna hraða,

alveg þrautalaust.

Ég get ekki lýst tilfinningum mínum á þessari stundu. Ég var gagntekinn

af einhverju eirðarleysi. En Ned Land sat á sínum stað, með skutulinn

reiddan um öxl. Þar kom að lokum, að saman fór að draga öðru hvoru.

„Við drögum hann uppi, við drögum hann uppi!“ æpti Ned og laut fram með

reiddan skutulinn.

En í sömu svipan tók dýrið viðbragð og rann áfram, með svo miklum hraða,

að sjálfsagt mundi nema 15 mílum á klukkustund. En ekki nóg með það, það

synti líka hringinn í kring um freigátuna, og fór hún þó með fullum

hraða. Skipverjar voru hamslausir af bræði. Nú var komið hádegi og við

vorum engu nær en um morguninn. Farragút sá að svo búið mátti ekki

lengur standa og hugsaði sér að taka til annara ráða.

Fallbyssan á framstafni skipsins var hlaðin í skyndi og henni miðað á

dýrið. Skotið reið af, en kúlan fór yfir hvalinn, og var það ekki að

undra, því færið var 1000 faðmar.

„Aftur!“ kallaði flotaforinginn. „Fimm hundruð dali skal ég gefa hverjum

þeim, sem getur lamað þessa djöfuls óvætt með skoti.“ Þá gekk fram gamall

maður gráskeggjaður,—mér er sem ég sjái hann enn,—hvasseygur var hann

og æðrulaus á svip, en andlitsdrættir allir sem í stein væru markaðir.

Hann gekk að fallbyssunni, hagræddi henni og miðaði lengi. Loks drundi

skotið og fylgdi því fagnaðaróp skipverja.

Kúlan hitti hvalinn, en—undur og bísn!—hún hrökk af skrokknum á honum

eins og hagl af húsþaki og féll í sjóinn langa leið frá.

„Er þá skepna þessi klædd með kvartils-þykkri járnhúð?“ sagði gamli

maðurinn, og var heldur ófrýnn.

„Fari það í sjóðbullandi!“, varð Farragút á orði. Nú var eftirsóknin

hafin á nýjan leik.

„Ég held áfram þangað til freigátan springur í loft upp“, sagði

flotaforinginn við mig.

Við vórum að vona, að dýrið þreyttist af þessari aflraun, þegar til

lengdar léti. En því var ekki að skifta.

Svo leið hver klukkustundin eftir aðra, að það hægði ekki vitund á sér.

Þetta var voðalegt kapphlaup. Á þessum eina degi fórum við áreiðanlega

frekar 250 sæmílur. Þó vórum við engu nær en daginn áður. Svo kom nóttin

og niðamyrkur lagðist yfir úthafið.

Ég hugsaði að þessi viðureign væri nú á enda og allar fyrirætlanir okkar

að engu orðnar.

En klukkan 11 um kvöldið sást rafljósbjarminn enn á ný, í lítilli

fjarlægð. Það var því líkast, sem náhvelið lægi kyrt, og væri mók á því

eftir áreynsluna. En það var tækifæri, sem Farragút ætlaði ekki að láta

ónotað. Hann rendi nú skipinu í áttina þangað, sem hvalurinn lá. Ned

Land kom sér fyrir undir bugspjótinu; hann hafði oft fengist við það

áður, að læðast að sofandi hvölum.

Skipið skreið nú ofurhægt og svo hávaðalaust, sem unt var. Þegar ekki

vóru eftir nema 150 faðmar að hvalnum, var vélin stöðvuð. Menn stóðu

kyrrir og héldu niðri í sér andanum. Ég stóð í stafninum, við bugspjótið

og hallaðist fram á borðstokkinn. Fyrir neðan mig sá ég hvar Ned Land

sat, með skutulinn reiddan um öxl, reiðubúinn að kasta honum, hvenær

sem færi gæfist.

Alt í einu tók hann viðbragð og þeytti skutlinum. Ég heyrði glamur, eins

og skutullinn hefði lent á einhverju hörðu. Rafmagnsbirtan af dýrinu

hvarf, en tvær voðalegar vatnsgusur hvolfdust ofan á þilfar

freigátunnar, með svo miklu afli, að alt lauslegt fór um koll og

skolaðist til og frá um þilfarið, eða féll út, bæði menn og munir. Ég

fann að skipið kiptist við afar-snögt, og áður en ég náði handfestu á

nokkrum hlut, steyptist ég á höfuðið í sjóinn.

Þetta var ljóta kafförin; þó kom ekkert fát á mig, því ég er góður

sundmaður, þegar ég segi sjálfur frá. Þegar mér skaut upp aftur fór ég

að litast um eftir freigátunni. Höfðu þeir nú tekið eftir því að ég féll

útbyrðis?

Í austurátt sá ég móta fyrir ferlíki, sem fjarlægðist óðum.

„Hjálp! Hjálp!“ hrópaði ég.

En skipið færðist sífelt fjær. Ég sá það á því, að rauða ljósið á

bakborða varð æ daufara og daufara. Mér var erfitt um sundið, því fötin

drógu mig niður. Ég ætlaði að fara að sökkva, en þá fann ég að þrifið

var í herðarnar á mér og mér var haldið uppi.

„Ert það þú, Konsæll“, stundi ég upp, „Þú hefir þá fallið fyrir borð

líka“.

„Ég hljóp út á eftir húsbóndanum“.

„En hvað er þá orðið um skipið?“ spurði ég.

„Það getum við ekki hirt um frekar“, svaraði Konsæll. „Þegar ég hljóp

fyrir borð heyrði ég sagt, að skrúfan og stýrið hefði brotnað“.

Þetta var engin feginsfrétt; en hvað sem því leið, urðum við að reyna að

bjarga lífinu á einhvern hátt.

Konsæll hjálpaði mér til að komast úr fötunum; svo syntum við til

skiftis, þannig, að sá sem hvíldi sig, lá á bakinu og hélt sér í hinn.

En svona gat það ekki gengið til lengdar. Hve lengi við höfum synt veit

ég ekki, en ég man, að ég var orðinn ákaflega þreyttur. Ég gat varla

haldið vitunum upp úr og var farinn að drekka sjó ákaft.

Þá gægðist tunglið fram undan skýjunum og brá birtu yfir öldurnar. Var

eins og ég hrestist við það nokkur augnablik. Ég lyfti upp höfðinu og

svipaðist um eftir freigátunni. Var hún þá komin svo langt, að ég sá að

eins móta fyrir henni. Nú misti ég þróttinn að fullu; ég var að sökkva

og heyrði óglögt að Konsæll var að kalla á hjálp.

En þá heyrði ég svarað einhversstaðar!

„Heyrðir þú þetta?“ umlaði ég.

„Já“, svaraði Konsæll, og gerði nú sitt ýtrasta til að hrópa „hjálp“ út

yfir eyðimörku hafsins.

Aftur var svarað og ekki langt undan. Hvað gat þetta verið?

Nú gat ég ekki haldið mér uppi lengur. Ég varð að eins var við, að ég

var dreginn af stað, rakst á eitthvað, sem þétt var fyrir og að mér var

tosað upp úr sjónum,—svo misti ég meðvitundina.

Þegar ég raknaði við til meðvitundar aftur, fann ég að verið var að núa

mig í ákafa.

„Konsæll!“ kallaði ég af veikum mætti.

„Húsbóndinn hringir!“ heyrði ég að sagt var í málróm Konsæls. En maður

sá, sem laut ofan að mér var ekki Konsæll.

„Ned!“ sagði ég.

„Rétt er það“, svaraði hvalveiðakóngurinn.

„Hefir þú þá fallið fyrir borð líka?“

„Já“, svaraði Ned, „en ég var svo heppinn að hitta strax á fljótandi

eyju“.

„Eyju?“

„Já,—eða sama sem, nefnilega sæorminn. Nú skil ég hvers vegna

skutullinn minn hrökk af dýrinu. Náhvelið þitt er búið til úr

hnoðnegldum járnþynnum, hr. prófessor“.

Ég reis upp í flýti. Þetta dýr eða—hvað það átti að heita—þessi

hlutur, sem við vórum staddir á, var hálfur upp úr. Við hlið mér sat

Konsæll hálf rænulaus og illa útlítandi, ekki síður en ég. Ég fór nú að

athuga skepnu þessa. Þetta var ekki dýr, það var af og frá! Um það var

ekki lengur að villast, að það var gert úr hnoðnegldum járnþynnum, eins

og Ned Land sagði.

Þetta var ekkert náttúruafbrigði, heldur eitthvað enn furðulegra. Það

var einhver „ógerningur“, gerður af manna höndum.

„Neðansjávarskip!“ varð mér að orði. „Snildarlega gert, með afar-sterkar

vélar!—Við erum þá ekki langt frá mönnum; okkur er borgið“.

Ned Land var á öðru máli um það, og lá við að við færum að trúa því, að

hann hefði rétt fyrir sér. Við börðum á járnþynnurnar af öllu afli og

Ned Land stappaði með járnbryddu stígvélunum alt hvað af tók. Þó urðum

við einskis hljóðs varir inn í skipinu.

„Það verður skemtilegt, þegar hann fer í kaf“, sagði Ned.

Ekki þótti mér það nú svo skemtileg tilhugsun. En við áttum ekki annars

úrkosti, en dvelja þar yfir nóttina, sem við vórum komnir.

Þegar loksins fór að lýsa af degi, heyrðum við skrölt í járnslám og

hlekkjum og sáum hlera opnast í þilfarinu. Þar kom maður upp og

skygndist um. Þegar hann sá okkur rak hann upp hljóð, hvarf niður aftur

og skelti hleranum á eftir sér. Rétt á eftir komu átta karlmenn upp á

þilfarið. Þeir tóku okkur, án þess að mæla orð frá vörum og fóru með

okkur niður í skipið.

Hlemmurinn féll aftur yfir höfðum okkar og við vórum staddir í

niðamyrkri. Við fórum ofan járnstiga og inn um dyr, sem lokað var á

eftir okkur. Þar vórum við látnir einir.

Þarna var svo mikið myrkur, að ég hefi aldrei komið í annað eins. Ekkert

náttmyrkur getur jafnast á við það.

Ned Land lét eins og óður væri. Hann sparkaði öllu um koll, sem lauslegt

var inni, og datt sjálfur um sumt af því.

„Það er dálagleg gestrisni að tarna!“ þrumaði hann. „Og þar að auki eru

þetta sjálfsagt mannætur, þegar til kemur!“

„Við erum ekki komnir á steikarateininn ennþá“, sagði Konsæll.

„Nei, en í ofninn“, svaraði Ned Land.

Það var ekki þar fyrir, það gat vel verið satt sem hann sagði, því ég

fann að þilin vóru úr járni alt í kring.

Alt í einu varð svo bjart inni, að ég varð að láta aftur augun. Kveikt

hafði verið á ljósmiklum rafmagslampa, sem festur var í loftið.

Við fórum nú að litast um. Herbergi þetta var 4 álnir á hvern veg og

járn í öllum veggium og loftinu. Gólfið sá ég ekki, vegna ábreiðu, sem á

því lá. Á miðju gólfi stóð viðhafnarlaust tréborð og 4 stólar.

Okkur gafst ekki mikill tími til umsvifa því rétt í þessu opnaðist

hurðin og inn gengu tveir menn. Var annar þeirra lítill vexti, en

knálegur. Hann gekk á undan.

Hinn, sem á eftir fór, var miklu hærri, og varð okkur þegar starsýnt á

hann. Hann var fagurlega vaxinn, fríður sýnum og hinn höfðinglegasti.

Hann hafði alskegg, stutt; augun voru dökk og starandi,—nærri

kaldranaleg—og ennið hátt. Það var fljótséð að ekki mundi auðvelt að

hafa áhrif á tilfinningar þessa manns. En gáfaður maður hlaut hann að

vera. Það var auðséð á honum.

Hann var auðsjáanlega yfirmaður skipsins, því þegar þeir vóru komnir inn

úr dyrunum, vék hinn sér til hliðar. Hann staðnæmdist frammi fyrir okkur

og starði á okkur langa stund. Ekki hraut honum orð af vörum fyr en

loks, að hann ætlaði út aftur; þá talaði hann við förunaut sinn á máli,

sem ég skildi ekki.

Hvað átti ég að taka til bragðs? Ég vonaði að hann skildi frönsku og

ávarpaði hann á því máli,—talaði svo skýrt og skilmerkilega, sem mér

var unt. Ég sagði honum nöfn okkar og hvað manna við værum og hvernig á

því stóð, að við vórum þar komnir.

Ókunni maðurinn hlustaði á mig með stillingu og kurteisi. En ekki sást

nokkur vottur þess, að hann skildi mig og ekki svaraði hann.

Ned Land varð auðvitað fokvondur. Hann endurtók alla frásögu mína á

ensku, og viðhafði all-ófögur orð með köflum. Hann endaði mál sitt á því

að heimta mat; sagði að við værum komnir í dauðann af hungri og yrðum að

fá mat.

En það leit ekki út fyrir, að ókunni maðurinn skildi Ned Land heldur. Ég

var einmitt farinn að hugsa um að reyna latínu, en þá segir Konsæll.

„Ef húsbóndanum þóknast, gæti ég reynt þýzku“. Það hafði mér ekki dottið

í hug áður. Konsæll var flæmskur og talaði auðvitað þýzku. Ég gat að

eins lesið hana og—sannast að segja—með herkjum. Ég var því fljótur

til að samþykkja það.

Í þriðja sinn var honum nú sagt hverir við værum og hvers vegna við

værum þangað komnir. En í þetta sinn var það Konsæll sem sagði frá, með

allri þeirri kurteisi og formkreddum, sem honum var lagið. En árangurinn

varð alveg sá sami,—alls enginn. Ókunni maðurinn snéri sér nú að

förunaut sínum og mælti við hann nokkur óskiljanleg orð. Svo fóru þeir

út úr herberginu báðir.

Skömmu seinna opnaðist hurðin á ný og kom inn þjónn með þur föt. Þótti

okkur Konsæl gott að fá fötin, en Ned Land sefaðist ekkert fyr en

þjónninn loks kom með mat; þá var eins og hýrnaði yfir Kanadamanninum.

Að lokinni máltíð lögðum við okkur fyrir og sváfum vært og lengi. Þegar

við vöknuðum og vórum að nudda stírurnar úr augunum, vissum við ekki fyr

af, en skipstjórinn snaraðist inn í herbergið. Hann stóð kyr stundarkorn

og virti okkur fyrir sér. Svo hóf hann máls og talaði á hreinustu

frönsku:

„Herrar góðir! Mér er jafnlétt um að tala frönsku eins og þýzku og

ensku. Ég skildi því mæta vel alt það sem þið sögðuð. En ég vildi fyrst

vita deili á ykkur og íhuga svo málið í næði. Ég hefi verið í miklum

vafa um, hvað gera skal við ykkur. Þið eruð komnir hingað á skip mitt

fyrir sakir óhappaatvika. Þið hafið truflað lífsrás mína og rósemi . . “

„Ósjálfrátt“. greip ég fram í fyrir honum.

„Ósjálfrátt!“ át hann eftir. „Var það ósjálfrátt að „Abraham Línkoln“

var gerður út til að ofsækja mig? Var það ósjálfrátt að þér fóruð með

skipinu og tókuð þátt í ofsóknunum? Var það ósjálfrátt að þið skutuð á

skip mitt og Ned Land kastaði skutli á það?“

„Við vissum ekki annað en skip yðar væri sjóskrímsl, sem nauðsyn bæri

til að eyðileggja“, svaraði ég.

„En hefðuð þið nú vitað að þetta var niðansjáfarskip; hefðuð þið ekki

elt það og skotið á það, alveg eins og sjóskrímsl?“

Mér varð svarafátt. Ég fann með sjálfum mér, að Farragút flotaforingi

mundi ekki hafa gert neinn mun á því.

„Eins og þið getið sjálfir séð og skilið“. sagði ókunni maðurinn, „ber

mér að skoða ykkur sem óvini mína. Vildi ég verða laus við ykkur, þyrfti

ég ekki annað en seta ykkur upp á þilfarið og fara svo í kaf. Ég hefi

fylsta rétt til að gera það“.

Hann talaði ofur-rólega og reiðilaust, en þó stökk honum ekki bros. Var

auðséð að hann meinti það, sem hann sagði.

„En hvað sem því líður“, bætti hann við, „þá hefi ég ákveðið að hafa

ykkur hérna á skipinu framvegis. Þið getið verið eins og frjálsir menn

og hreyft ykkur svo mikið sem rúm leyfir“.

„Er það meiningin að við eigum að vera hér á skipinu alla æfi?“ spurði

ég.

„Já“, svaraði ókunni maðurinn, „þið megið hætta að hugsa um þurlendið,

því þangað komið þið aldrei framar, enda missið þið einskis í við það“.

„Ég strýk héðan undir eins og færi gefst“, sagði Ned Land.

„Yður er heimilt að reyna það“, svaraði ókunni maðurinn þurlega.

Það var sýnilega engrar tilslökunar að vænta af þessum manni. Við urðum

að sætta okkur við það, sem hann vildi vera láta.

„Er mér leyfilegt að spyrja um nafn yðar?“ sagði ég.

„Gagnvart yður er ég ekki annað en Númi skipstjóri. En gagnvart mér

eruð þér og félagar yðar farþegar með skipi mínu, Sæfaranum“.

Númi skipstjóri opnaði dyrnar og kallaði á þjón. „Það er búið að bera

mat á borð í herbergi ykkar„, sagði hann við Ned Land og Konsæl. “Viljið

þið fara með manni þessum“.

Svo snéri hann sér að mér.

„Nú, hr. Aronnax, má ég fylgja yður til borðs? Morgunverðurinn er

tilbúinn“.

Ég snæddi morgunverð með skipstjóranum og var hjá honum það sem eftir

var dagsins. Fór hann með mig fram og aftur um skipið og sýndi mér alt

sem markvert var, sem var æði margt. Var hann hinn þægilegasti viðmóts

og leysti úr öllum spurningum með alúð og nákvæmni.

Við fórum fyrst eftir löngum gangi, sem var uppljómaður af

rafmagnsljósi. Þaðan fórum við inn í borðstofuna. Þar var rúmgott inni

og snyrtilega um gengið. Húsgögn vóru öll úr eik og greipt fílabeini.

Skápar vóru skreyttir dýrum krystöllum og stóðu á þeim og svo borðinu

skrautmunir úr dýrum málmum og hreinu postulíni.

Þaðan fórum við að skoða bókasafn skipsins. Bókaskáparnir þöktu veggina

frá gólfi og upp í loft. Borð mikið stóð á miðju gólfi en legubekkir á

tvær hendur, fóðraðir dýrindis skinni. Öll vóru húsgögn þessi úr svörtum

palísanderviði og koparrend víða. Í safni þessu sagði Númi að væru tólf

þúsund bindi, og væri mér heimilt að nota það eftir vilja og þörfum.

Þessu boði varð ég mjög feginn, upp á framtíðina.

Þar var samankomið úrval úr bókmentum allra þjóða, og urmull af

vísindabókum, einkum ritum um náttúrufræði. Meira að segja fann ég þar

bókina mína: „Um leyndardóma undirdjúpanna“.

Loks komum við inn í aðalsalinn. Það var stórt herbergi og

prýðilegt,—fimtán álnir á lengd og 9 álnir á breidd. Á þiljunum héngu

málverk eftir frægustu snillinga í Evrópu. Marmaralíkneski, gerð í

fornum stíl, stóðu þar í hornunum, en lítil borð stóðu hér og hvar á

gólfinu. Borðfletirnir vóru úr skygndu gleri, en undir glerinu gat að

líta fjölda hinna fáséðustu dýrindismuna úr ríki hafsins. Þar vóru meðal

annars marmennilssmíði svo fögur, að ég hefi hvergi séð önnur eins, og

perlur svo stórar og hreinar, að mér var blátt áfram ómögulegt að meta

þær til verðs. Forte-píanó stóð þar í einu horninu; það var opið, og

leit út fyrir að vera oft notað.

Úr aðalsalnum héldum við áfram fram eftir skipinu, og varð fyrir okkur

gangur með tveimur hurðum á þilinu annars vegar. Vóru þar tvö herbergi

samhliða og var annað herbergi skipstjórans, en hitt sagðist hann ætla

mér til íbúðar, meðan ég dveldi á skipinu. Ekki var það miður búið að

þægindum öllum og viðhöfn en önnur herbergi þar á skipinu.

Fremst í skipinu var klefi með innibyrgðu, samanþjöppuðu andrúmslofti,

og annar samskonar sagði Númi að væri við afturstafn skipsins.

Frá klefum þessum var stöðugt nýju lofti veitt um alt skipið eftir

þörfum. Á hverjum morgni var farið upp að yfirborðinu og nýjar

loftbyrgðir teknar í klefana.

Klefi skipstjórans var einfaldur og skrautlaus—ólíkur mjög öðrum

herbergjum skipsins, sem öll vóru búin skarti og dýrindis húsbúnaði.

Þegar við komum þangað inn, lýsti Númi fyrir mér byggingu skipsins og

gerð allri. Það var réttar 100 álnir á lengd og í lögun eins og vindill.

Það var 12 álnir að þvermáli um miðju. Byrðingurinn var tvöfaldur, en

tengdur saman alt umhverfis, með þverbitum úr járni. Þoldi skipið því

afarmikinn þrýsting. Hreifivélar skipsins vóru knúðar með rafmagni og

svo sterkar, að Sæfarinn gat hæglega farið 15 mílur á vöku. Stýrið var

eins og á öðrum skipum, en auk þess vóru tveir láréttir spaðar eða

vængir utan á hliðunum, miðskipa. Þeim mátti halla fram og aftur og

beina á þann hátt stefnu skipsins upp á við og niður á við, þegar gangur

var kominn á það. Auk þessa vóru klefar á skipinu eða hólf, sem fylt

vóru sjó, ef skipið átti að sökkva, en tæmd, þegar það átti að leita

upp. Á sama hátt mátti einnig ráða djúpstöðu þess, þó það væri á ferð. Á

framenda skipsins var dálítill turn og í honum stýrishjólið. Gluggar

vóru á turninum öllum megin og gat stýrimaður séð þaðan til allra hliða.

Á afturenda þess var annar turn. Í honum var afar-skært rafljós, sem

notað var á nóttum og í kafförum.

Í skipstjóraklefanum og aðalsalnum vóru ýms skipstjórnaráhöld. Þar vóru

hin vanalegu skipstjórnaráhöld, svo sem sigurverk, sem gekk fyrir

rafmagni, loftvog, áttaviti og sólhæðarmælir. En auk þessa vóru þar

margs konar áhöld önnur, sem Númi hafði sjálfur fundið upp, til að mæla

með hraða, stefnu og djúpstöðu skipsins.

Númi skipstjóri skýrði fyrir mér, með mikilli nákvæmni, hvernig áhöld

þessi væru gerð og notuð. Hann sagði mér, hvernig hann færi að því, að

ná rafmagni úr ýmsum efnum í sjónum, og hvernig hann hefði reiknað þetta

alt út fyrirfram, áður en hann byrjaði á skipssmíðinni. Var þetta alt

svo flókið og margvíslegt, að ég verð að sleppa því hér.

Ég var alveg forviða á þessu öllu saman.

„Þér hafið þá sjálfur staðið fyrir smíðinni, og gert allar teikningar og

áætlanir“, sagði ég.

„Já“, svaraði skipstjórinn, „ég hefi stundað nám við háskólana í Berlín,

París og New-York og numið þar svo mikið, sem útheimtist til þessa“.

„En hvernig gátuð þér smíðað skipið svo, að ekki yrði hljóðbært um allan

heim?“

„Það skal ég segja yður, Aronnax minn. Ég hefi fengið sinn hlutann úr

hverri áttinni. Kjölurinn er smíðaður hjá Krausot í Frakklandi,

skrúfumöndullinn hjá Pen & Co. í Lundúnum, súðaþynnurnar hjá Lírd í

Liverpool, skrúfan hjá Scott í Glasgow, þéttiloftsklefarnir hjá Sail &

Co. í París, vélarnar hjá Krúpp í Essen, stafnfleygurinn í Motala í

Svíþjóð, verkfærin hjá Hart í New-York o. s. frv. Verksmiðjurnar fengu

þessar pantanir undir ýmsum nöfnum, og áttu að senda hlutina á ýmsar

hafnir. En svo lét ég skip, sem ég átti sjálfur, smala öllu saman“.

„En þá var þó eftir að laga þetta til og setja það saman“, sagði ég.

„Já, ég setti upp verkstæði á óþektri eiðiey úti í miðju Kyrrahafi og

þar lauk ég smíðinni á Sæfaranum, með tilstyrk manna þeirra, sem nú eru

með mér hér. Þegar við vórum búnir að því, brendum við öllu, sem eldur

gat eytt, en köstuðum hinu í sjóinn, svo engin vegsummerki sáust eftir“.

„Það hefir kostað nokkuð, skipið yðar, get ég ímyndað mér“.

„Já“, svaraði Númi, „með öllum áhöldum kostar það mig eina milljón, sex

hundruð og áttatíu þúsund krónur. En með öllum söfnum og dýrgripum, eins

og það er nú, er það ekki of hátt virt á fimm miljónir króna“.

„Þér hljótið að vera afar auðugur maður?“

„Já, hr. prófessor, það er ég. Mér væri hægðarleikur að borga allar

ríkisskuldir Frakklands, tólf miljarða“.

Því næst fylgdi Númi mér aftur á skipið, til þess að sýna mér vélrýmið.

Við fórum fram hjá eins konar strompi, og var á honum hurð. Sá ég að

járnstigi lá upp eftir honum og spurði skipstjórann hvað gert væri við

hann.

„Við förum upp í bátinn eftir þessum stiga“, svaraði hann.

„Svo, þið hafið þá bát“.

„Já, lokaðan bát, af sömu gerð og Sæfarann, en miklu minni. Hann liggur

í dæld á þilfarinu og er festur með skrúfum. Á þilfarinu er hleri og

annar í botninum á bátnum. Þeir standast á. Með því að opna hlerana get

ég farið upp í bátinn. Hleranum á þilfarinu er lokar á eftir mér, en

sjálfur loka ég hlerunum í bátnum. Svo losa ég um skrúfurnar og þá þýtur

báturinn upp að yfirborðinu í einum svip. Þegar ég finn að báturinn

flýtur ofansjávar, opna ég hlera á þilfari hans, síðan reisi ég sigluna,

set upp segl og sezt við stýrið“.

„En hvernig komist þér niður til skipsins aftur?“

„Það get ég ekki. Sæfarinn verður að koma upp til mín. Báturinn er

tengdur við skipið með löngum látúnsvír, sem rafmagnsstraumur leikur um,

og fylgir það bátnum eftir neðansjáfar. Þarf ég því ekki annað en þrýsta

á tippi, ef ég vil gefa því vísbendingu“.

Alt þetta var svo einfalt og þó svo haganlega fyrirkomið, að það vakti

aðdáun mína.

Þegar við komum lengra fram í ganginn, sá ég inn í herbergi Ned Lands og

Konsæls. Sátu þeir að snæðingi og vóru hraustir og hressir að sjá. Ég sá

matsuðuklefann, og hvernig maturinn var soðinn við rafmagnshita. Við

fórum framhjá klefum skipverjanna, en ekki sá ég inn í þá, því hurðirnar

vóru aftur. Seinast skoðaði ég vélrýmið. Þar sá ég þessar undravélar,

sem gengu fyrir rafmagni og gátu snúið skrúfuásnum tuttugu snúninga á

sekúndunni.

„Nú ætla ég að gefa yður næði til rannsókna yðar og vísindaiðkana“,

sagði skipstjórinn, þegar við komum inn í aðalsalinn aftur. „Við erum

núna staddir í nánd við Japan, eins og þér sjáið á kortinu þessu. Braut

skipsins er mörkuð á það á hverjum degi, svo þér getið séð hvað ferðinni

líður. Bókasafnið og salinn er eður heimilt að nota eftir vild. Með

yðar leyfi ætla ég að hverfa frá um sinn“.

Númi fór nú út, að svo mæltu, en ég sat einn eftir.

Hver var hann, þessi undralegi maður? Hann var framúrskarandi að gáfum

og fróðleik, en fyrirleit þurlendið og mennina af lífi og sál. Hver var

hann? Og hvert ætlaði hann að fara með mig?

Þessu var ég lengi að velta fyrir mér, eftir að skipstjórinn fór. Ég sat

hugsi langa lengi, þar til loks ég stóð upp og gekk inn í herbergi mitt,

til að taka á mig náðir.

Árdegis daginn eftir kom Konsæll og Ned Land inn í salinn til mín. Þeim

varð fyrst fyrir að spyrja, hvernig á þessu stæði og hvar við værum

staddir.

„Tuttugu og fimm föðmum fyrir neðan yfirborð sjáfar“, svaraði ég.

„Þetta er stór-merkilegt“, sagði Konsæll.

Ég sýndi Konsæl öll þau undur af fágætum náttúrugripum, sem vóru í

salnum. Hann var vanur að fylga mér á söfnunum í París og bar gott

skynbragð á þess konar hluti.

Ned Land spurði mig spjörunum úr, um Sæfarann og Núma skipstjóra. Hann

var á fjáður að vita hve skipshöfnin væri fjölmenn, því hann hafði þegar

hugsað sér að myrða alla skipverja, eða byrgja þá inni, en taka skipið

á sitt vald.

Ég reyndi að telja um fyrir honum og fá hann ofan af þessu. En alt í

einu sloknaði ljósið í salnum og við stóðum eftir í kolsvarta-myrkri.

Við stóðum hreyfingarlausir og þegjandi og biðum þess, sem verða vildi.

Svo heyrðist glamur, líkt því sem járnþynna væri dregin eftir

skipshliðinni, og í sama vetfangi lagði skæra birtu inn í salinn um tvo

glugga. Í gluggum þessum vóru afarþykkar glerrúður og lágu yfir þær

sterkar koparstengur til styrktar. Sáum við út um gluggana sterka

rafljósbirtu, sem lýsti upp sjóinn langa leið frá skipinu, í allar

áttir. Það var fögur sjón og stórkostleg. Ljósbrotið var svo

einkennilegt í vatninu að því verður ekki með orðum lýst. Nálægt skipinu

var sjórinn sem fljótandi eldhaf, en smádofnaði er lengra dró frá og

eyddist loks í sæmyrkrinu yfir og undir og alt um kring.

Við horfðum hugfangnir á þessa dásamlegu sjón. Brátt kom í ljós urmull

af fiskum og allskonar sædýrum. Fylgdu þeir skipinu eftir og hringsóluðu

kringum það, eins og fuglager í lofti. Sumir þessara fiska vóru

undursamlega fagrir, fór þar saman blikandi litskrúð, fagurt sköpulag og

aðdáanlega mjúkar og skjótar hreyfingar.

Alt í einu hvarf þessi töfrasjón. Hlerunum var rent fyrir gluggana og

ljósi brugðið upp á rafmagnslömpunum í salnum. En lengi á eftir sátum

við eins og í leiðslu og rifjuðum upp í huganum þennan merkilega

fyrirburð. Hann var svo nýstárlegur og nærri yfirnáttúr legur að

hugmyndalíf okkar var snortið um langan tíma.

[1] Loftþyngd er sá þrýstingur kallaður, sem loftið gerir á

yfirborð jarðarinnar; en hann samsvarar hérumbil 15 punda þunga á

hverjum ferþumlungi yfirborðs. Þýð.

Sæfarinn (Ferðin kring um hnöttin neðansjávar) · 第 4 / 15 题