Það var árið 1866, að sá kvittur kom upp og gekk staflaust um öll lönd,
að vart hefði orðið við sjóskrímsl eitt mikið og ilt.
Sumum fanst nú samt fátt um þessa sögu, sem heyrðu hana í fyrsta sinni.
Sögðu þeir þetta mundu vera sæorminn alkunna, sem kemur í ljós á hverju
ári og hverfur aftur án þess að gera nokkrum manni mein.
En í þetta sinn urðu margir að láta sannfærast, þó ekki væru þeir
auðtrúa, því skrímsl þetta var séð af mörgum skipum og hvað eftir annað.
Einu sinni sást það frá tveim skipum í senn, og var svo skamt frá þeim,
að gera mátti áætlun um stærð þess. Eftir því sem sagan sagði, var það
miklu meira vexti en nokkurt annað dýr, dautt eða lifandi, sem þekst
hefir í höfum jarðarinnar. Það fylgdi líka sögunni, að það væri ærið
hraðfara, því að á hálfsmánaðarfresti kom það í ljós á tveim stöðum með
þúsund mílna millibili.
Sögur um sjóskrímslið vóru á hvers manns vörum. Blöðin fluttu langar
greinar um það, og gamanvísur vóru sungnar um það á leikhúsunum.
Og lærðir menn háðu harðar rimmur. Þeir gátu ekki borið á móti því að
skrímslið væri til, svo margir menn höfðu séð það og svo var hitt, að í
undirdjúpum hafsins þóttust menn vita, að vera mundi risavaxinn gróður
og var ekki ólíklegt að í þeim miklu skógum hefðust við skrímsl og dýr
ýmisleg, sem öllum væru ókunn. Það var því ekki ólíklegt, að þetta
skrímsl hefði hröklast þaðan af tilviljun og flækst upp að yfirborðinu.
En þá var eftir að vita hvers konar skepna þetta var. Var það risavaxinn
kolkrabbi eða var hægt að skipa því í flokk með hvölunum?
Sagnirnar sem um það gengu vóru margar og misjafnar, svo lítið var á
þeim að byggja. Sögurnar um sjóskrímslið, sem gengið höfðu í blöðum og
manna munni bárust nú inn í vísindaleg tímarit og urðu þar óþrotlegt
þrætuefni.
Það var á öndverðu ári 1867, að ég var á heimleið til Parísar úr
vísinda-leiðangri í Nebraska, og var staddur í Nýju-Jórvík. Tíðindamenn
stórblaðanna þefuðu mig uppi þegar í stað, og leituðu álits míns um mál
þetta, sem þá var efst á baugi og mest um talað. Þótti þeim mikið undir
því komið, hvað ég segði um það, því ég var prófessor við
náttúrugripasafnið í París og höfundur bókarinnar: „Um leyndardóma
undirdjúpanna“. Ég gat ekki skorast undan því með öllu, en reyndi þó að
forðast allar staðhæfingar. Bar ég það fyrir, að enn væri ókunnugt um
eðli dýrsins og náttúru. Þó þótti mér mest líkindi til, að þetta væri
risavaxið náhveli, eftir öllum líkum að dæma.
Að dýrið væri hvalakyns, og einmitt af þessu tægi, réði ég af atviki,
sem kom fyrir, meðan ég stóð við í Nýju-Jórvík.
Það var í aprílmánuði, að gufuskipið „Skotland“, eitt með stærstu og
fegurstu skipum Cunard-línunnar, var á ferð úti í Atlantshafi, svo sem
150 mílur vestur af Englands-ströndum. Veður var kyrt og fagurt og
skipið klauf sjóinn með jöfnum hraða. Þá vissu menn ekki fyr til, en
skipið kiptist við, eins og það hefði höggvið niður eða rekist á
eitthvað. Farþegarnir urðu þegar óttaslegnir og Anderson skipstjóri
átti fult í fangi með að telja um fyrir þeim. Mikil hætta gat varla
vofað yfir, því innanrúmi skipsins var skift í 7 hluta með vatnsheldum
milligerðum, svo þó gat kæmi á skipið, og eitt rýmið fyltist sjó, hlaut
það að fljóta eftir sem áður.
Svo fór skipstjóri niður hið bráðasta, að gæta vegsummerkja. Sá hann þá,
að sjór féll inn í 5. rými, til mikilla muna. Til allrar hamingju vóru
gufukatlarnir ekki þar, því hefði svo verið og sjór komist í eldstórnar,
gat verið voði á ferðum.
Anderson stöðvaði skipið og lét háseta einn fara fyrir borð og kafa
undir það. Hann kom upp aftur eftir fáar mínútur og sagði, að rifa mikil
væri á botni skipsins, á að gizka 3 álna löng. Engin tiltök vóru á því,
að gera við svo mikinn leka. „Skotland“ varð því að halda áfram
ferðinni, þó með minni hraða en áður, og náði heilu og höldnu höfn í
Liverpool þrem dögum eftir áætlun. Skipið var hið bráðasta lagt í þurkví
og menn fengnir til að athuga skemdirnar. Þeir ætluðu varla að trúa
eigin augum! Svo sem 4 álnum fyrir neðan yfirborðslínu var stóreflis
glompa á skipinu, í lögun eins og jafnhliða þríhyrningur; járnþynnurnar
kliptar sundur svo rækilega og snyrtilega eins og það væri gert með
götunarvél.
Það dýr, sem þessu hafði valdið, hlaut að hafa lagtönn mikla og
hræðilega, og afar tröllaukið hlaut það að vera, úr því það gat rekið
gat á járnskipið svo snögglega, að naumast varð við vart. Það hlaut líka
að hafa góð sundfæri, fyrst það gat losað tönnina og hörfað frá nógu
fljótt eftir áreksturinn.
Þessi atburður vakti mikla athygli um allan heim, og umtal manna um
sjóskrímslið breyttist nokkuð. Áður höfðu menn litið á það, sem
skringilegan fyrirburð, kveðið um það háðvísur og hent gaman að því. En
nú hætti mönnum að standa á sama um það. Því var kent um urmul af
skipbrotum, sem ekki var fullkunnugt um, og sjófarendur vóru ekki
óhultir um sig fyr en þeir höfðu þurt land undir fótum.
Blöðin lýstu skrímslinu sem skæðasta mannfélags-óvætt, og í öllum
mentuðum löndum var skorað á stjórnirnar, að gera út skip til að elta
það og ráða það af dögum.
England gerði ráðstafanir til framkvæmda á þessu, en Ameríka varð fyrri
til, að ferðbúa skip. Um það leyti, sem skipið átti að leggja af stað,
kom bréf til mín frá flotamálaráðaneytinu ameríska. Var mér boðið þar
að fara með gufuskipinu „Abraham Línkoln“ í hinn fyrirhugaða leiðangur,
og fylgdi það með, að Farragút flotaforingi hefði tilbúinn klefa handa
mér á skipinu.
Áður en mér barst þetta bréf, hafði ég ekki ætlað mér annað fyrir, en
fara til Parísar og setjast að í litla húsinu, sem ég átti í
Grasafræðisgarðinum, og njóta lífsins meðal vina og kunningja
og—safnanna minna. Þegar ég var búinn að lesa bréfið breyttist þessi
fyrirætlun mín óðara. Mér fanst ég mega til, að fara að elta náhvelið,
eins og það væri sjálfsögð skylda eða öllu heldur hlutverk mitt í
lífinu.
Og svo hugsaði ég sem svo: „allar leiðir liggja til Rómaborgar“; hví
mátti ekki segja það sama um París. Nú skyldi blessuð skepnan verða svo
hugulsöm, að láta okkur ná sér nálægt ströndum Frakklands. Ekki var það
óhugsandi.
„Konsæll!“ kallaði ég.
Konsæll var þjónn minn. Hann hafði fylgt mér á öllum ferðalögum, og var
mér trúr og hollur, enda var mér vel til hans. Konsæll var ættaður og
upprunninn frá Flæmingjalandi, og líkur löndum sínum í háttum og
skapferli. Hann var framúrskarandi hugrór maður, en þó djarfur og
dáðrakkur. Hann varð aldrei hissa á nokkrum hlut, skifti aldrei skapi,
var friðsamur og háttprúður, en hraustur og handtakagóður, ef til þess
kom. Hann var ákaflega vanafastur og vanakær. Í fám orðum,—Konsæll var
hreinasta fyrirmynd, sem þjónn. En Konsæll hafði líka kreddur fyrir sig,
og lét aldrei af þeim. Aldrei nefndi hann mig í ávarpi eða viðtali öðru
vísi en í þriðju persónu.
„Konsæll!“ endurtók ég, og fór að taka saman dót mitt, því nú var kominn
í mig ferðahugur.
Konsæll var mér eftirlátur,—óhætt var um það. Ég var ekki vanur að
spyrja, hvort hann vildi fylgja mér á ferðum mínum, það var sjálfsagður
hlutur. En nú stóð nokkuð óvanalega á. Það var ófyrsjáanlegt hve löng
þessi ferð mundi verða, og svo áttum við í vændum, að fást við þessa
voðaskepnu, sem gat molað stærsta hafskip eins og eggskurn. Hvað skyldi
Konsæll segja til þess?
„Konsæll!“ kallaði ég enn.
„Var húsbóndinn að kalla?“, svaraði Konsæll og vatt sér inn um dyrnar.
„Já hafðu alt tilbúið. Við leggjum af stað að tveim stundum liðnum.“
„Eins og húsbóndanum þóknast“, svaraði Konsæll ofur rólega.
„En það liggur mikið á. Láttu í koffortið mitt svo mikið, sem í það
kemst af fötum, nærklæðnaði og hálslíni. Vertu nú bara fljótur.“
„En safngripina húsbóndans?“
„Safngripina mína—sendum við til Parísar.“
„Eigum við þá ekki að fara til Parísar?“
„Ha? Ó-nei, ekki nú þegar,“ svaraði ég út í hött.
„Gott“.
Við förum dálítinn útúrkrók, Konsæll, við tökum okkur far með „Abraham
Línkoln“.
„Eins og húsbóndanum þóknast“.
„Þú veizt víst hvað stendur til,—að við ætlum að fara að eltast við
óargadýr, þetta illræmda náhveli, og þú mátt geta því nærri, að höfundur
bókarinnar: „Um leyndardóma undirdjúpanna“,—sem er tvö bindi í 4. bl.
broti—getur ekki hafnað því tilboði, að verða með í förinni. Þetta er
heiðarlegt hlutverk, en hættulaust er það ekki. Ómögulegt að segja, hvað
fyrir getur komið.—Getur verið, að dýrið sé ilt viðureignar, en
Farragút flotaforingi, er nú líka karl í krapinu.“
„Ég ætla að fara með húsbóndanum“, svaraði Konsæll rólega.
„Hugsaðu þig nú vel um, Konsæll minn“, sagði ég, „þetta getur orðið
óhappa ferð. Það getur vel farið svo, að við komum ekki lifandi aftur“.
„Eins og húsbóndanum þóknast!“
Að tveim stundum liðnum stigum við á skip. Ég sagði Farragút
flotaforingja nafn mitt og svo var mér vísað á klefann, sem mér var
ætlaður. Á þilfarinu iðaði alt í einni bendu, fólk og farangur, því þá
var komið að burtfararstundu.
„Abraham Línkoln“ var einkar fagurt skip, hraðskreið freigáta af nýjustu
gerð. Gufuþenslan í katlinum var komin á hámark.
Farragút lét kasta landfestum og kallaði niður í vélrýmið:
„Áfram!“
Vélin komst á hreyfingu og tók að snúa skrúfuspöðunum með sívaxandi
hraða.
Á ströndinni stóð múgur og margmenni, og æpti endalaus húrraóp meðan
skipið var að skríða út höfnina, og veifaði höttum og vasaklútum, til að
veita okkur síðustu fararheillaóskirnar.