XIII.

Svona er nú sagan um þessa merkilegu ferð. Ætli nokkur maður leggi

trúnað á hana? Ég get ekkert um það sagt, enda gildir mig það einu. Ég

hefi sagt frá viðburðunum eins og ég hefi reynt þá, og hvergi hallað

réttu máli. Og nú þekki ég hafið. Ég hefi farið á tæpum tíu mánuðum

umhverfis hnöttinn neðansjávar og séð öll undur og stórmerki, sem falin

eru í skauti hafsins. En hvað er orðið af Sæfaranum? Hefir hann losnað

úr heljargreipum rastarinnar? Er Númi skipstjóri enn á lífi? Hafa ekki

blóðfórnirnar sefað enn að fullu hefndarþorsta hans? Ætli öldurnar skoli

ekki eitt sinn handritasafni hans á land, svo vitneskja fáist um þennan

merkilega mann og æfiferil hans? Ég vona að svo fari. Ég vona að

undraskipið sem gert hefir undirdjúpin að alfaravegi, hafi komist

klaklaust út úr ægisvelg rastarinnar, sem svo mörg skip önnur hafa

farist í. Ég vona að Númi lifi enn í þessum nýju heimkynnum sínum,

úthöfunum, og haldi þar áfram að rannsaka „leyndardóma undirdjúpanna“.

En þá hefir enginn átt kost á að rannsaka eins vel og Númi skipstjóri og

ég.

Sæfarinn (Ferðin kring um hnöttin neðansjávar) · 第 15 / 15 题